Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2011, Qupperneq 42
42 | Viðtal 13.–15. maí 2011 Helgarblað
Græðandi tími
Síðustu dagar hafa verið annasam
ir. Hópurinn hefur unnið mjög mik
ið en hefur reynt að njóta hverrar
stundar. „Það er mjög
gott fyrir okkur að fá
að vera hér saman. Við
erum mjög einbeitt í
því sem við erum að
gera en það er allt gert
í gleði. Allir í hópnum
eru vinir Sjonna. Meira
að segja fjölmiðlafulltrú
inn okkar, Felix Bergs
son, var vinur hans. Og
búningahönnuðurinn er
vinkona mín. Við höfum
mjög gott fólk í kringum
okkur. Það skiptir máli,“
segir hún lágróma. Það
var ekki orðum ofaukið
að hún væri nánast radd
laus eftir undanúrslitin.
„Við höfum það mjög gott
saman. Stemningin hér er
eins og á heimavist. Það
er mjög græðandi fyrir okkur að vera
hér saman og sú heilun mun halda
áfram.“
Draumurinn rættist
Draumurinn um að komast í úrslita
keppnina hefur ræst. „Ef við gerum
það þá vinnum við ...“ fullyrti Þór
unn í viðtalinu við Nýtt Líf og hló.
Nú er hún ekki eins brött og vill alls
ekki að fólk beri of miklar vænting
ar til þeirra. „Mig dreymir bara um
að við förum á svið, gerum okkar
besta og njótum þess að taka þátt.
Þetta var okkar draumur, að komast
í lokakeppnina og láta lagið hljóma.
Allt eftir þetta er bónus. Okkur er al
veg sama þótt við lendum í 25. sæti.
Við verðum alveg jafn glöð með það,“
sagði hún í samtali við DV.
Frá upphafi og fram til þessa hafa
þau einsett sér að undirbúa atriðið
sem allra best í stað þess að gera sér
einhverjar væntingar eða fyrirfram
ákveðnar hugmyndir. „Við ákváðum
strax að halda fókusnum aðeins á at
riðinu og höfum gert það allan tím
ann. Við hugsum ekki um það hvar
við munum enda eða hvernig þetta
fer. Hin atriðin skipta okkur heldur
engu máli. Við eigum bara að ein
beita okkur að okkar atriði.
En við finnum öll fyrir Sjonna og
það mjög oft. Strákarnir finna vel fyr
ir honum, sérstaklega á sviðinu. Það
er bara svo hræðilegt að hann skuli
ekki vera með okkur.“
Sigurjón Brink var fæddur í Reykjavík 29. ágúst
1974. Hann ólst upp í Breiðholtinu og stundaði
nám á listnámsbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti
og Margmiðlunarskólanum.
Áður en Sigurjón sneri sér alfarið að tónlist
inni starfaði hann meðal annars við snittugerð og
veisluþjónustu hjá föður sínum í Stúdíóbrauði og
hjá stjúpföður sínum í Verkveri. Hann var mik
ill áhugamaður um hestamennsku og var félagi í
hestamannafélaginu Gusti. Auk þess
lék hann og keppti í golfi.
Tónlistin átti þó hug hans allan og
hann var ungur að árum þegar hann
smitaðist af ástríðunni. Á unglingsár
unum stofnaði hann hljómsveitina
In Bloom sem naut mikilla vinsælda.
Sigurjón sat við trommurnar, söng bak
raddir og var þar að auki einn helsti
lagahöfundur sveitarinnar. Árið 1994 gaf
hljómsveitin út plötu, fór til Bandaríkj
anna og átti meðal annars titillag sjón
varpsmyndarinnar Missing Brendan.
Love is you
Seinna var hann aðalsöngvarinn í
hljómsveitinni Flavors þar sem
hann spilaði einnig á gítar.
Hljómsveitin gaf út plötuna
Go your own way árið 2004
og samdi Sigurjón öll lögin og
flesta textana.
Fyrir jólin 2009 gaf hann svo
út sólóplötuna Sjonni Brink.
Á henni eru lög eftir hann og
Guðmund Jónsson í Sálinni,
þar á meðal Brosið þitt lýsir
mér leið, Flökkuhjartað og
Skuggaspil.
Undanfarin misseri var
hann í hljómsveitinni Rokk
ásamt Pálma Sigurhjartar
syni, Benedikt Brynleifssyni,
Róberti Þórhallssyni og Vigni
Snæ Vigfússyni. Með hljóm
sveitinni Rokk flutti Sigurjón
lagið Love is you eftir Pálma
Sigurhjartarson sem gefið var
út í tilefni 70 ára afmælis John Lennon. Bítlarnir
fylgdu honum lengi. Árið 2005 setti Sigurjón upp
tónleikinn Bítl í Loftkastalanum ásamt Jóhann
esi Ásbjörnssyni, Hilmi Snæ Guðnasyni og Pálma
Sigurhjartarsyni. Síðar tók hann þátt í afmælistón
leikum Sgt. Peppers Bítlaplötunnar í Háskólabíói,
John Lennon tribute tónleikum, Eagles tribute tón
leikum og minningartónleikum um Vilhjálm Vil
hjálmsson.
Lék Buddy Holly
Sigurjón tók einnig þátt í uppsetningu fjölmargra
leikverka og tónleika. Af leiksýningum sem Sig
urjón tók þátt í má nefna Le Sing á Broadway,
Cuckoos Cabaret, Footloose og Woychek í Borgar
leikhúsinu. Sigurjón var einn af stofnendum Vest
urports og samdi meðal annars tónlistina við leik
ritið Brim sem Vesturport setti upp.
Að undanförnu lék Sigurjón hlutverk Richie
Valens í söngleiknum Buddy Holly, tónlistarmanns
sem dó einnig langt fyrir aldur fram þegar hann var
nýuppgötvaður listamaður. Eftir fráfall Sigurjóns
sögðu margir að ferill hans hefði rétt verið að hefj
ast þar sem fólk væri smám saman að gera sér grein
fyrir því hversu hæfileikaríkur hann væri í raun og
veru. Í sýningunni söng Sigurjón hið ógleymanlega
La Bamba en sýningum var hætt eftir fráfall hans.
Þá hefur lagið Okkar ástarvor, sem Sigurjón flutti
ásamt Björgvin Halldórssyni á nýútkominni dúetta
plötu Björgvins, notið mikilla vinsælda á öldum
ljósvakans. Enn fremur hafði Sigurjón starfað sem
dagskrárgerðarmaður á Bylgjunni ásamt því að
semja lög fyrir aðra tónlistarmenn.
Hugljúfur og elskaður
Sigurjón tók þrívegis þátt í úrslitum Söngvakeppni
Sjónvarpsins, fyrst árið 2005 með lagið Hjartaþrá
eftir Bryndísi Sunnu Valdimarsdóttur og árið eftir
með lagið Áfram sem hann samdi ásamt Bryndísi
Sunnu. Þá tók hann þátt í fyrra með lagið Water
slide sem hann samdi sjálfur.
Lag hans Aftur heim er framlag Íslendinga til
keppninnar í ár. Ekkja Sigurjóns, Þórunn Erna
Clausen, samdi textann og fékk vini Sigurjóns til
liðs við sig, en þeir Pálmi Sigurhjartarson, Matth
ías Matthíasson, Hreimur Örn Heimisson, Gunnar
Ólason, Vignir Snær Vigfússon og Benedikt Bryn
leifsson flytja lagið þar sem Sigurjón varð bráð
kvaddur að heimili sínu 36 ára gamall, tveimur
dögum áður en hann átti að flytja lagið í forkeppn
inni hér heima.
Sigurjón var afskaplega vinamargur og mættu
um 1.500 manns þegar hann var jarðsunginn.
Hann var hvers manns hugljúfi og elskaður, sagður
mikill húmoristi, hlýr og góður vinur.
Ekkja Sigurjóns er leikkonan Þórunn Erna Clau
sen en þau gengu í hjónaband árið 2008 eftir sex
ára sambúð. Hann eignaðist fjögur börn, Aron
Brink, 15 ára, Kristínu Maríu Brink, 10 ára, Hauk
Örn Brink, 6 ára, og Róbert Hrafn Brink, 3 ára.
Eftir fráfall hans var hvatningarsjóðurinn Áfram
stofnaður fyrir börn hans. Sjóðurinn hefur það að
markmiði að hvetja og styðja börn hans í framtíð
inni. Fyrir þá sem vilja leggja sjóðnum lið er reikn
ingsnúmer sjóðsins 054614401730 og kennitala
2512784909.
Til minningar um Sigurjón Brink
„Það er svo gott að
taka þátt í svona
verkefni sem snýst ekki
um keppnina heldur kær-
leikann.
Sönn vinátta Sigurjón tók þátt í undankeppni Eurovision í
fyrra þar sem hann söng lagið Waterslide með vinum sínum.
Love is you Er slagorð ferðar-
innar, enda var ástin það sem einna
helst einkenndi Sjonna að mati
Þórunnar. MYND JÓNATAN GArðArSSoN
M
Y
N
D
JÓ
N
A
TA
N
G
A
r
ð
A
r
SS
o
N
M
Y
N
D
JÓ
N
A
TA
N
G
A
r
ð
A
r
SS
o
N
M
Y
N
D
JÓ
N
A
TA
N
G
A
r
ð
A
r
SS
o
N