Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2011, Qupperneq 48

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2011, Qupperneq 48
48 | Minning Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kgk@dv.is 13.–15. maí 2011 Helgarblað Gísli Benóný Kristjánsson Fyrrv. skrifstofustjóri Eddu f. 24.4. 1920, d. 1.5. 2011 Harpa B. Guðbjartsdóttir Menntaskólanemi og knattspyrnukona f. 29.4. 1990, d. 30.4. 2011 Þorsteinn Björnsson Grunnskólanemi f. 12.4. 2002, d. 2.5. 2011 merkir íslendingar Grímur Thomsen skáld fæddist á Bessastöðum á Álftanesi, sonur Þor- gríms Thomasson, gullsmiðs, skóla- meistara á Bessa- stöðum og al- þingismanns, og k.h., Ingibjargar Jónsdóttur hús- móður. Grímur lærði hjá Árna Helga- syni, biskupi í Görðum, sem þá var virtasti kenn- ari ungra manna hér á landi. Hann hóf lögfræðinám í Kaup- mannahöfn 1837 en sneri sér fljótlega að heimspeki og bókmenntum, tók magisterspróf í samtímabókmenntum með lofs- einkunn 1845 og varði ritgerð sama ár er síðar var metin doktorsritgerð. Grímur komst von bráðar í gott álit sem fagurfræðingur. Verð- launaritgerð hans um franskar bókmenntir og doktorsritgerð um Byron lávarð vöktu umtals- verða athygli. Hann lagði lag sitt við helstu skáld og menntamenn Dana, s.s. H.C. Andersen og Oehlenschlager og fékk háan konungsstyrk sem hann nýtti sér til ferða suður í Evr- ópu. Hann starfaði síðan i utanríkis- þjónustu Dana, var skrifstofu- stjóri þar frá 1856 en fékk lausn á eftirlaunum frá 1866. Grímur kom síðan heim, bjó á Bessastöðum frá 1868 og var alþing- ismaður með hléum 1869-91. Grímur er eitt helsta skáld Íslendinga á 19. öld: karlmannlegur, þjóðlegur og rómantískur en hann sótti sér gjarnan yrkisefni í sögu þjóðarinn- ar eins og rómantískum skáldum var þá tamt. Sum kvæða hans þykja stirðkveðin en það á alls ekki við um þau öll. Grímur var upphaf- lega handgenginn Jóni Sigurðssyni forseta og kom þá m.a. að útgáfu Nýrra félagsrita, en gerðist síðar íhaldssamur í þjóðfrelsismálum og þótti nokkuð forn í hugsun. Grímur Thomsen Skáld og alþingismaður f. 15.5. 1820, d. 27.11. 1896 Merkir Íslendingar Merkir Íslendingar Ásgeir Ásgeirsson var fæddur í Kóra- nesi á Mýrum. Foreldrar hans voru Ásgeir, kaupmaður í Kóranesi, síðar bókhaldari í Reykjavík Eyþórsson, kaupmanns í Reykjavík Felixsonar og k.h. Jensína Björg Matthíasdóttir, trésmiðs í Reykjavík Markússonar, af Eyrarætt. Ásgeir lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1912, lauk guðfræðiprófi frá Háskóla Ís- lands 1915, var við framhaldsnám við háskólana í Kaupmannahöfn og Uppsölum 1916–1918. Ásgeir kenndi sund í Vestmanna- eyjum sumurin 1914 og 1915, var biskupsritari hjá Þórhalli Bjarnar- syni biskupi 1915–16, sem síðar varð tengdafaðir hans, var bankaritari við Landsbankann í Reykjavík 1917-18 og var kennari við Kennaraskólann 1918-27 og fræðslumálastjóri 1926. Ásgeir var upphaflega fram- sóknarmaður, samherji mágs síns, Tryggva Þórhallssonar sem var for- sætisráðherra 1927–31. Ásgeir var sjálfur fjármálaráðherra 1931–32 og var skipaður forsætis- og fjármála- ráðherra 1932 og gegndi því til 1934. Ásgeir var bankastjóri Útvegs- bankans á árunum 1938–52 en bauð sig þá fram til forseta eftir and- lát Sveins Björnssonar, og sigraði Bjarna Jónsson vígslubiskup sem hafði verið frambjóðandi stjórnar- flokkanna, Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokk. Ásgeir var þá orð- inn Alþýðuflokksmaður en hann fékk mikinn stuðing frá sjálfstæðis- manninum og tengdasyni sínum, Gunnari Thoroddsen, sem þá var borgarstjóri. Þekktasta slagorð Ás- geirs í forsetakosningunum var: Fólkið velur forseta. Ásgeir gegndi forsetaembættinu til 1968. Ásgeir Ásgeirsson Forseti íslenska lýðveldisins f. 13.5. 1894, d. 15.9. 1972 Gísli fæddist á Ísafirði og ólst þar upp. Hann flutti til Reykjavíkur 1943 og í Kópavoginn 1952 þar sem hann bjó alla tíð síðan. Hann stundaði nám við Barna- og gagnfræðaskóla Ísafjarðar og lauk prófi frá Samvinnuskólanum 1944. Á skólaárunum kynntist Gísli öllum almennum störfum til sjávar og sveita. Hann hóf svo að námi loknu störf hjá Prentsmiðjunni Eddu þar sem hann starfaði síðan, fyrst sem bókari, síðan gjaldkeri en lengst af og um árabil sem skrifstofustjóri. Þá sá hann um bíó- stjórn Kópavogsbíós í fjögur og hálft ár frá stofnun fyrirtækisins. Gísli tók virkan þátt í fjölda íþrótta- greina og vann að íþróttamálefnum á ýmsum vettvangi. Hann lék knatt- spyrnu með Knattspyrnufélaginu Herði á Ísafirði og með ÍR í Reykjavík og keppti í ýmsum greinum skíða- íþrótta með Skátafélaginu Einherja á Ísafirði og síðar með ÍR. Þá keppti hann í handbolta og frjálsum íþrótt- um hjá ÍR og sýndi fimleika hjá ÍR og á Ísafirði. Gísli var flokks- og sveitaforingi hjá Skátafélaginu Einherjum og stofn- aði skátafélag á Hólmavík 1938. Hann var áhugaskíðaþjálfari í Strandasýslu 1938, þjálfari í skíðagöngu hjá KR 1945 og liðsstjóri á þremur vetrarólympíu- leikum, í Ósló 1952, Cortina 1956 og í Grenoble 1968, auk þess sem hann fór sem fararstjóri á heims- meistaramótið á skíðum í Falum og Aare 1956. Gísli sat í stjórn Knatt- spyrnufélagsins Harðar 1939–43, var um skeið for- maður skíðadeildar ÍR og tvívegis í aðalstjórn ÍR um nokkurra ára skeið í hvort sinn. Þá sat hann í stjórn Skíðasambands Íslands í nær tvo áratugi, í stjórn HK í Kópavogi í nokkur ár og var fulltrúi í ólympíunefnd í mörg ár. Þá starfaði Gísli lengi í Lionshreyf- ingunni í Kópavogi. Hann var mik- ill áhugamaður um skógrækt og sat í stjórn Skógræktarfélags Kópavogs. Fyrir störf sín að félagsmálum var Gísli gerður að heiðursfélaga ÍR, HK og Skógræktarfélags Kópavogs. Fjölskylda Gísli kvæntist 28.7. 1951 Sigurbjörgu Jóhönnu Þórðardóttur, f. 5.2. 1924, húsmóður og kennara, dóttur Þórðar Kristjánssonar, hreppstjóra á Breiða- bólstað á Fellströnd, og k.h., Steinunn- ar Þorgilsdóttur, húsfreyju og kennara. Synir Gísla og Sigurbjargar eru Unnsteinn Þórður, f. 7.3. 1952, arki- tekt í Reykjavík, var kvæntur Guðrúnu Jónsdóttur og eiga þau tvö börn, Söruh og Davíð sem er kvæntur Elínu Krist- insdóttur og eiga þau þrjú börn, Óliver Breka, Ísak Rökkva og Álfheiði Myrru; Magnús, f. 11.6. 1957, skrifstofustjóri, bú- settur í Kópavogi, var kvæntur Elínu Kristins- dóttur og eiga þau þrjú börn, Hrafnhildi Ósk, Halldór Örn en sambýlis- kona hans er Sigurbjörg Helga Gunnbjörnsdóttir og dóttir þeirra er Freyja Lind, og Hlyn Má en unnusta hans er Jóna Sigríður Halldórsdóttir; Kristján, f. 8.10. 1960, bankastarfsmaður, bú- settur í Lúxemborg, kvæntur Guðrúnu Benediktu Elíasdóttur og eiga þrjú börn, Salóme Mist, Benediktu Gabrí- elu en sambýlismaður hennar er Jó- hann Agnar Einarsson, og Gísla Ben- óný; Gísli Örn, f. 17.4. 1965, rafvirki, búsettur í Kópavogi en sambýliskona hans er Birna Bjarnadóttir og eiga þau þrjú börn, Kjartan Steinar, Kristófer Hlífar og Sigurbjörgu Jóhönnu. Foreldrar Gísla: Kristján Hannes Magnússon, f. í Króksbæ á Ísafirði, 4.4. 1890, d. 13.7. 1961, verkamaður og sjó- maður á Ísafirði, og k.h., Rannveig Sal- óme Sveinbjörnsdóttir, f. 9.7. 1895, á Súgandafirði en alin upp á Kirkjubóli í Skutulsfirði, húsmóðir á Ísafirði. Útför Gísla fór fram frá Kópavogs- kirkju, mánudaginn 9.5. sl. Harpa Björt fæddist í Reykjavík en ólst upp og bjó í Kópavoginum alla tíð. Hún var í Hjallaskóla en síðustu árin stund- aði hún nám við Menntaskólann í Kópavogi og hugði á háskólanám í sál- fræði. Harpa Björt æfði og keppti í knatt- spyrnu með Breiðabliki frá barns aldri. Hún var valin leikmaður ársins af Kópavogsbæ árið 2006, lék með ungl- ingalandsliðinu undir 17 ára og hafði leikið sjö landsleiki með liðinu. Þá hafði Harpa Björt mikinn áhuga á ljósmyndun. Fjölskylda Systkini Hörpu Bjartar eru Baldur Freyr Einarsson, f. 16.1. 1979, en sonur hans er Ísak Nói, f. 15.1. 2010; Sunneva Edith Ragnarsdóttir, f. 30.7. 1983, en syn- ir hennar er Baldur Elmar Hauksson, f. 13.3. 2003, Elvar Máni Hauksson, f. 10.1. 2006, og óskírður, f. 20.12. 2010; Reynir Ragnarsson, f. 22.12. 1984, en sambýliskona hans er Erla Signý Krist- jánsdóttir og eru börn þeirra Ragn- ar Natan, f. 9.7. 2006, Agnes Edith, f. 19.11. 2007, og Aníta Ósk, f. 28.7. 2009; Dagur Þór Hjartarson, f. 1.12. 1989. Foreldrar Hörpu Bjartar eru Guð- bjartur Guðbjartsson, f. 18.11. 1959, flugvirki, búsettur í Danmörku, og Bryndís Björk Sigurjónsdóttir, f. á Reykjanesvita 7.2. 1960. Ætt Guðbjartur á þrjú hálf- systkini. Guðbjartur er sonur Guðbjarts, kennara og myndhönnuðar, nú búsettur erlendis, bróð- ur myndlistarmannanna Benedikts og Veturliða Gunnarssona, og Gunn- ars Kristins, fyrrv. forseta Skáksambands Íslands og fyrrv. Íslandsmeistara og Reykjavíkurmeistara í skák og fyrrv. landsliðsmanns í knatt- spyrnu. Guðbjartur var sonur Gunnars, verkamanns á Suðureyri, hálfbróð- ur Páls, skólastjóra Stýrimannaskól- ans í Reykjavík, föður Níelsar Dungal læknaprófessors. Gunnar var son- ur Halldórs, útvegsb. að Seljalandi í Skutulsfirði Halldórssonar, b. að Meira-Hrauni í Skálavík Guðmunds- sonar, húsmanns að Seljalandi Jóns- sonar. Móðir Gunnars var Guðrún Jónasdóttir. Móðir Guðbjarts kenn- ara var Sigrún, dóttir Benedikts Gabrí- els, sjómanns í Bolungarvík Jóns- sonar, Jónssonar, húsmanns að Ósi Sumarliðasonar. Systir Jóns yngra var Margrét, langamma Þorvarðar, fyrrv. framkvæmdastjóra Krabbameins- félags Íslands, og Valdimars, fyrrv. menntaskólakennara Örnólfssona. Móðir Benedikts var Sigr- íður Friðriksdóttir, b. á Látrum Halldórssonar, Eiríkssonar, Pálssonar. Móðir Sigrúnar var Val- gerður Þórarinsdóttir, b. á Látrum í Mjóafirði Þórar- inssonar, b. þar Sigurðs- sonar, b. þar Narfasonar. Móðir Guðbjarts Guð- bjartssonar og amma Hörpu Bjartar er El- ísa Björk Magnúsdóttir röntgentæknir. Bryndís Björk á þrettán systkini. Byndís Björk er dóttir Sigurjóns, sem er látinn, lengi vitavörður í Reykjanes- vita Ólafssonar Hannesar Fjeldsted, verkamanns í Kópavogi Lárussonar Fjeldsted, b. í Kolgröfum í Eyrarsveit. Móðir Ólafs Hannesar var Sigríður Hannesdóttir. Móðir Sigurjóns vita- varðar var Kristjana Sigurjónsdóttir, húsmanns á Hofsstöðum Þorkelsson- ar. Móðir Kristjönu var Sigríður Jóns- dóttir. Móðir Bryndísar Bjarkar var Sig- ríður Pálína Konráðsdóttir sem er lát- in, dóttir Jóns Konráðs, sjómanns og verkamanns á Skagaströnd Klemens- sonar, og Ólínu Margrétar Sigurðar- dóttur. Útför Hörpu Bjartar fór fram frá Hjallakirkju mánudaginn 9.5. sl. Þorsteinn fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann var nemandi í Hóla- brekkuskóla. Þorsteinn æfði knattspyrnu með íþróttafélaginu Leikni og karate hjá karatedeild Fylkis. Þá hafði hann mikinn áhuga á veiði. Fjölskylda Systir Þorsteins er Katrín Ingunn Björnsdóttir, f. 12.10. 1998, grunn- skólanemi. Foreldrar Þorsteins eru Björn Davíð Þorsteinsson, f. 17.7. 1971, verkfræðingur í Reykjavík, og Krist- rún Bragadóttir, f. 11.8. 1976, kenn- ari. Ætt Foreldrar Kristrúnar eru Halla Bjarnadóttir, f. 1938, húsmóðir og bóndi á Vatnsleysu í Biskupstungum, og Bragi Þorsteinsson, f. 1935, bóndi á Vatnsleysu í Biskupstungum. Foreldrar Björns Davíðs voru Þor- steinn Eyjólfsson, f. 1921, d. 2001, flugstjóri, og Katrín Sveinbjörg Þórð- ardóttir, f. 1941, d. 1994, húsmóðir. Útför Þorsteins fór fram frá Graf- arvogskirkju, mánudaginn 9.5. sl.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.