Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2011, Síða 53

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2011, Síða 53
Fókus | 53Helgarblað 13. maí 2011 H elga Braga Jónsdóttir er landsmönnum flest- um kunn enda hefur hún glatt okkur árum saman, í leikhúsi, kvikmyndum, með uppi- standi og á sjónvarpsskjánum. Hún segir grín alltaf tengt þjóðarsálinni enda segi húmor- inn mikið til um hvernig manneskjur við erum og hvernig samfélagi við lifum í. Sjálf hafði hún mest gaman af Ladda og Eddu Björgvins þegar hún var að alast upp en með árun- um heillaðist hún af stelpunum í sjónvarpsþáttun- um Absolutely Fabulous sem slógu í gegn á síðasta áratug síðustu aldar. Þar héldu þær um taumana Jennifer Saunders og Dawn French sem eru virtir grínistar og handritshöfundar í Bretlandi í dag. „Ég horfi mikið meira á svona stelpugrín enda höfðar það meira til mín þar sem ég er kvenmaður. Stundum næ ég engu sambandi við það sem strák- arnir eru að gera en það á kannski meira við um út- lendingana? Fóstbræðurnir voru mjög skemmtilegir og Radíusbræður sem voru þeir fyrstu til að vera með uppistand á Íslandi,“ segir Helga og bætir við að sér þyki áberandi hvað karlmenn séu framarlega í gríninu hér á landi, sem í mörgu öðru. „Þetta eru allt strákar… Það eru alls staðar strákar í fronti í sjónvarpi, fyrir utan kannski Dyngjuna á Skjá einum, en það eru ekki grínþættir. Ég myndi vilja fleiri konur í þennan bransa og ég tel alveg vöntun á því og eftirspurn. Hugsanlega hefur menn- ingin breyst eitthvað að undanförnu? Mér finnst eins og það sé eitthvert afturhvarf með kröfurnar sem eru gerðar á konur eða kröfurnar sem þær gera til sín sjálfar. Þetta mætti alveg breytast eitthvað,“ segir Helga. Spurð að því hvort íslenskur húmor sé mikið öðruvísi en grín annarra þjóða segir hún okkur ef- laust nær Bretum þar sem landið liggur einfaldlega nær Bretlandseyjum. „Við erum aðeins kaldhæðnari en Amerí kan ar og eigum meira skylt með Bretum og Dönum. Franskt og íslenskt grín fer hins vegar ekki eins vel saman, Frakkar eru meira í líkamlegu og grótesku gríni,“ segir Helga og bætir við að grínið okkar sé orðið grófara. „Það má miklu meira enda er samfé- lagið allt orðið þannig og það er bara af hinu góða,“ segir Helga Braga glöð í bragði. Alin upp við 70 mínútur M argrét Björnsdóttir heitir 19 ára grínisti sem stóð uppi sem sigur- vegari í keppninni Fyndnasti verslingurinn í Versló. Í kjölfarið var henni boðið að vera með á grínkvöldi hjá Mið-Íslandi í Þjóðleikhúskjallaranum þar sem hún sló í gegn hjá áhorfendum. Hún tók líka að sér að skemmta á árshá- tíð Arion banka og segir það hafa gengið vel: „Fólkið hló allavega mikið.“ Margrét er að klára prófin þessa dag- ana en vinnur þess utan í tískuvöruversl- un og á veitingastað meðan hún safnar sér fyrir langferð til Asíu. Hún er ánægð með strákana í Mið-Ís- landi og segir þá ógeðslega skemmtilega. Þegar hún er spurð að því hvað sé það fyrsta sem komi upp í hugann þegar hún heyri orðin íslenskt grín dettur henni helst í hug að nefna Mið-Ísland, Pétur Jóhann Sigfússon og Sveppa. „Ég ólst upp við að horfa á 70 mín- útur sem barn. Var kannski úti að leika mér á kvöldin en þegar klukkan var orðin fimm mínútur í tíu þá flýtti ég mér alltaf heim að horfa á þáttinn. Það var svona fastur liður hjá mér. Fyrst voru það Simmi og Jói en svo bættust Sveppi og Pétur Jóhann við. Mér finnst Steindi Jr. líka frábær. Það er til ógeðslega mikið af fyndnu fólki á Íslandi.“ Spaugstofan meikar ekkert sens Margrét á sér ótal eftirlætisgrínista, bæði hér á Íslandi og erlendis, en þeir eru af báðum kynj- um. Hún nefnir þær Tinu Fey og Söruh Silver- man sem báðar hafa slegið í gegn í Bandaríkj- unum en Ricky Gervais og Eddie Izzard eru meðal hennar eftirlætisuppistandsgrínista. Margrét segir þó ýmsu ábótavant í íslensku sjónvarpi en hún telur Spaugstofuna hafa sung- ið sitt síðasta fyrir löngu. „Spaugstofan var fyrst hjá RÚV en er núna komin yfir á Stöð 2. Hvað er það eiginlega?! Það meikar ekki sens. Ég er almennt ósátt við dag- skrána í sjónvarpi á Íslandi. Það er hægt að gera miklu betur. Það þarf að koma nýju fólki að enda ótrúlega mikið af hæfileikaríku og fyndnu fólki á Íslandi. Það ætti ekki að vera neitt vesen að finna eitthvert fyndið lið. Steindi er reynd- ar frábær. Hann er að gera góða hluti í sjón- varpinu. Það mætti bara vera meira af þessu og minna af Spaugstofunni,“ segir Margrét að lokum. Allir gleyma séra Flóka A ri Eldjárn hefur getið sér gott orð sem uppistandsgrínari og textahöfundur. Hann segist lengi hafa haft áhuga á gömlu gríni og þá sér í lagi því gríni sem hann skilur ekki enda taki það stakka- skiptum á milli áratuga og eftir því sem menn- ingin þróast. „Jú, sjáðu til,“ segir Ari. „Flest grín á það sameiginlegt að menn eru ekkert að spandera í það nema þeir reikni algjör- lega með því að það virki. Svo skoðar maður gamalt grín og skilur ekkert í því. Allar tilvitn- arnir hafa misst gildi sitt og fólkið sem verið er að grínast með er löngu gleymt. Ég hef hugsað talsvert um það að þetta verða eflaust mín ör- lög, að eftir fjörutíu ár verði allt sem ég sagði dottið úr gildi,“ segir Ari en bendir jafnframt á að grín eldist misjafnlega vel. „Þú ert drekinn“ „Fóstbræður eldast mikið betur en til dæmis Spaugstofan af því Spaugstofan er revía sem fjallar um menn og málefni líðandi stundar. Með tíð og tíma gleyma allir hver séra Flóki var en fólk getur árum saman hlegið að „Þú ert drekinn“-brandaranum.“ Ari segir íslenskan húmor stórmerki- legan og eflaust miklu þróaðri en fólk telur almennt. Hann segir okkur hafa svarta og kaldhæðna kímnigáfu sem eigi margt skylt með húmor Breta, Dana og Bandaríkja- manna. „Fyrsti eftirlætisgrínistinn minn var Eddie Murphy, hann fór algerlega á kostum í sínu uppistandi. Svo er auðvitað fullt af skemmti- legum Bretum,“ segir Ari og nefnir þá helst Eddie Izzard sem kom hingað til lands í tví- gang. Þá nefnir hann einnig skemmtilega Norðmenn sem kalla sig Team Antonsen: „Team Antonsen er frábærlega skemmtilegt. Þeir voru það ferskasta í Noregi fyrir sjö árum. Gerðu einmitt skets um Dani sem sló í gegn hjá Íslendingum þar sem danskan hljómar svo furðulega að hún er gersamlega óskiljanleg. Hvað Danina varðar þá þarf auðvitað ekki að nefna strákana í Klovn en svo er annar Dani, Anders Matthesen kallaður Öndin, algjörlega frábær. Hann er uppistandari og grínari sem hefur alveg slegið í gegn, mikill snillingur.“ Frábært að selja íslenskt grín úr landi Spurður hvað honum finnist um þann áfanga að Vaktirnar svokölluðu í leikstjórn Ragnars Bragasonar með þá Jón Gnarr og Pétur Jóhann í fararbroddi hafi verið seldar úr landi segir Ari það algjörlega frábært. „Það er verið að taka þættina til sýninga á BBC4 þar sem mikið er lagt upp úr því að sýna vandað erlent efni. Mér finnst hug- myndin ein um að þetta sé gerlegt alveg æðisleg. Okkur finnst alltaf mikil upphefð í því að útlendingar hafi gaman af því sem við erum að gera. Sykurmolarnir voru til dæmis eitthvert jaðarband hér á Íslandi sem sló í gegn um allan heim. Ég held að fólk hafi verið svolítið lengi að átta sig á því en í dag vita allir að íslensk tónlist er góð útflutningsvara. Af hverju ekki grínið líka? Vaktirnar eru einfaldlega vandaðir þættir með góðri persónusköpun. Þarna erum við með góðar persónur sem eru að fokka hver í annarri og það geta allir tengt við þær og hlegið að þessu.“ Hvað er svona fyndið við þetta? segir Steindi og spyr hikandi: „Er þetta kannski svolítið asnalegt...?“ Í dag segist hann eiga marga uppáhaldsgrínista og fylgjast vel með öllu, meira að segja því sem krakkarnir í menntaskólunum séu að gera. Af erlendu gamni er Lonely Island í eftirlæti en það eru þrír félagar sem byrjuðu að senda út sketsa á netinu sem voru svo uppgötvaðir af Saturday Night Live. „Mér hefur aldrei fundist grín blómstra jafn mikið og núna. Hér heima eru það Hugleikur, Mið-Ís- land, Þorsteinn Guðmundsson og fleiri sem eru skemmtilegir en að mínu mati bjargaði internetið gríninu. Ef ekki væri fyrir netið þá væri þessu öllu hálfstýrt af fjöl- miðlum og útgefendum og frelsið ekki jafn mikið.“ Að lokum segir Steindi Fóst- bræður hafa tekið stórt skref og átt sinn hlut í að breyta kímnigáfu Ís- lendinga en nú séu þeir Bengt að reyna slíkt hið sama með þáttun- um Steindinn okkar. „Grínið okkar er samt ekkert fyrir alla. Þetta er fyrir grínunn- endur. Ef húmorinn höfðar til allra þá erum við bara að gera eitthvað rangt. Og ég endurtek enn og aft- ur: Ef fólk á Barnalandi fer að tala vel um mig – þá hætti ég að grín- ast!“ segir Steindi að lokum. „Allt strákar í frontinum“ ROSKINN EKKJUMA ÐUR tók allt í einu upp á þv í að ganga með grasið í skónum á eftir ekkjufrú einni, en hún var þessu mjög fr ábitin. Hann lét sér þó ekki s egjast heldur færði si g upp á skaftið með ý msum eftirgangsmun um og gjöfum. Meðal ann ars gaf hann henni my ndir af sér í ýmsum st ellingum. Mörgum þótti þó kast a tólfunum þegar han n gaf henni mynd af s ér á náttfötunum. Íslensk fyndni 1948 „Við grínumst allan sólarhringinn“ Hugleikur Dagsson 2008

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.