Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2011, Síða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2011, Síða 56
56 | Lífsstíll 13.–15. maí 2011 Helgarblað www.skra.is ÞÍ 2 01 10 50 9 RR S Nú geturðu tilkynnt flutning á netinu Strandvarðagellur kenndar við Baywatch eiga ekki sjens í brettagellur. Snyrtivöruframleiðandinn sænski MAC á heiður skilinn fyrir að höfða til sterkra og harð- kjarna kvenna við markaðssetningu á vörum sínum. Fyrri lína þeirra skartaði ofurhetjunni Superwoman og nú kynnir framleiðand- inn línu fyrir jaðarsportgellur sem stunda brimbrettareið. Nýja línan kallast Baby Surf og er skemmtilega sumarleg og litrík. Kinnaliturinn kemur sérstaklega á óvart með gylltri skreytingu sem blandast litnum og gefur skemmtilegt glit á örlítið sólbrúnar kinnar. Varir eiga það til að verða þurrar og skorpnar í sólinni, þá er gott að eiga góðan varasalva eða varalit með sólar- vörn og miklum raka. Hann fæst í nokkr- um litum, rauðum, rauðbrúnum og þá hlutlausum lit sem fer vel við freknóttar eða sólbrúnar strandpíur. Bronspúður, kórallitir, bláir litir með grænu skini og vatnsheldur maskari og margt annað er að finna í þessari nýju línu. MAC leggur áherslu á harðkjarna konur sem lifa lífinu á ystu nöf: Brimbrettagellur Þ að er hægt að stunda brim- bretti á Íslandi,“ segir Ingólf- ur Olsen, brimbrettakappi með meiru. „Það eru þó nokkrir sem stunda sportið og það er eiginlega alveg einstakt sörf hér á landi. Við verðum aldrei fyrir von- brigðum og eigum okkur frábæra leynistaði hér og þar við Íslands- strendur þar sem eru góðar öldur.“ Ingólfur bendir byrjendum á að þeir geti prófað að byrja að fara á brimbretti við Reykjanesið, jafnvel í Reykjavík og Hafnarfirði. Þeir fara að öllu með gát. Það er ekk- ert mál að fara á brimbretti ef þú ert í rétta gallanum. „Fólk verð- ur verulega hissa þegar það sér okkur festa brimbrettin á bílana og heldur að það sé einfaldlega of kalt til þess að fara á brim- bretti í sjóinn. Það er ekki of kalt því það eru til svo góðir bún- ingar sem verja vel gegn kuld- anum. Þegar það fer að hitna og nær dregur hausti getum við verið í þynnri galla og sleppt hönskum og hettum.“ Heillast af sportinu Ingólfur segir að þegar fyrstu al- mennilegu öldunni sé náð sé ekki aftur snúið. „Fólk heillast algjörlega af þessu sporti og þeirri náttúru- fegurð sem það er stundað í. Þeir eru líka ófáir brimbrettakapparnir sem ferðast hingað til lands til þess að prófa að fara á brimbretti við ís- lenskar svartar strendur. Það er erfitt er að læra á brim- bretti einsamall og það flýtir töluvert fyrir og eykur ánægju að læra þau grunnatriði sem til þarf til þess að geta sörfað sína fyrstu öldu. Þegar þessari fyrstu almennilegu öldu er náð er svo ekki aftur snúið.“ Ingólfur segir það besta við að fara á brimbretti við Ísland vera hversu fáir séu í sjónum hverju sinni. „Úti eru um 100 manns í sjón- um en hér eru það í mesta lagi 15 manns og það er frábært því þetta er heimsklassasörf og eitt best geymda leyndarmál hér á landi.“ Mikið stelpusport Fjölmargar stelpur stunda brimbretti hér á landi. Linda Sumarliðadóttir er ein þeirra. „Ég er enn að læra að sörfa en mér finnst best að fara á brimbretti við Þorlákshöfn. Það eru skemmtilegir möguleikar þar. „Það er jafnt á strákum og stelpum í þessu sporti held ég. Ég veit alla vega um fjölmargar sem fara á brim- bretti.“ Hún segir best fyrir byrjendur að læra af þeim sem stunda sport- ið. „Það er rekinn brimbrettaskóli hér á landi, strákarnir á Surfing.is reka hann og það má heimsækja þá á Arctic Adventures sem þeir eru í samstarfi við á Laugavegi 11. Annars má læra á bretti gegnum vini, sumir læra úti þar sem er auðvelt að nálg- ast búnað og kennslu og þarf ekki að vera í heilbúningi. Þetta er rosalega gaman og ég mæli með þessu,“ segir Linda. kristjana@dv.is Hægt að fara á brimbretti við Ísland Útivist í fallegri náttúru Íslenskar strendur eru hreinar og fagrar og ekkert kalt að stunda sportið ef fólk er í rétta klæðnaðinum. Sörf við Íslandsstrendur Vel geymt leyndarmál, segir Ingólfur Olsen brimbrettakappi. Mynd Pete StevenSon Kinnalitur Með gylltri skreytingu sem gefur fallegt glit á kinnarnar. Litrík lína fyrir brimbrettagellur Nýja línan frá MAC er fyrir strandlífið í sumar. Opið mán. fim. 12–18 • fös. 12–16 • lau. lokað Eikjuvogur 29 • 104 Reykjavík • Sími 694 7911 Mikið úrval af leggings n Kuldi er engin fyrirstaða n Algengt að fara á brim- bretti við Reykjanes, Þorlákshöfn og í Hafnarfirði n Best fyrir byrjendur að læra af þeim lengra komnu WWW.bioparadis.is hverfisgötu 54 / 101 reykjavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.