Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2011, Page 58

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2011, Page 58
58 | Lífsstíll 13.–15. maí 2011 Helgarblað n Nokkrar ráðleggingar um fatnað í fjallgöngum og útivist F jallgöngur og útivera almennt njóta nú meiri vinsælda meðal almennings en nokkru sinni áður. Sífellt fleirum verður ljóst að sú nánd við náttúruna sem aðeins gönguferðir geta skapað gefur manninum einhverja óútskýr­ anlega orku og veitir honum meiri sálarró en nokkurt lyf sem fundið hefur verið upp. Ekki þarf að segja neinum sem á annað borð hefur komið út fyrir hússins dyr hve hvikul og óstöðug íslensk veðrátta er. Oft er sagt í gamni við ferðamenn að ef þeir eru ekki ánægðir með veðrið þá þurfi þeir ekki að bíða nema í fimm mínútur. Öllu gamni fylgir nokk­ ur alvara og þetta grín er sannara en margt annað. Ein af forsendum þess að njóta útivistar er að vera í fatnaði sem heldur göngumanni hlýjum og þurrum. Og hvernig skyldi nú vera farið að því? Lífið er Lagskipt Þessu markmiði er yfirleitt náð með því að klæða sig í lagskiptan fatnað. Vel búinn úti­ vistarmaður er í þunnum nærfötum innst. Þau eru til úr ýmsum efnum en best eru þau sem eru í sem mestri ull. Margir framleiðendur blanda ullina með ein­ hverjum gerviefnum en ekkert efni stenst saman­ burð við ull. Yfir innsta lagið kem­ ur svo millilag sem er oftast þunn eða milli­ þykk flíspeysa, ullarpeysa eða eitthvað sambæri­ legt. Göngubuxur úr flís­ blöndum og gerviefnum sem þó stöðva vindinn eru til frá mörgum fram­ leiðendum og eru mis­ jafnlega góðar og mis­ jafnlega dýrar. Fyrir auralitla byrjendur geta íþróttabuxur eða hlaupa­ buxur verið ágætur val­ kostur. Þessum tveimur lögum er ætlað að halda á okkur hita við flestar venjulegar aðstæður. Þriðja lagið á að bæta við einangrun og halda okkur þurrum. Það er því að jafn­ aði buxur og jakki eða úlpa sem heldur vatni en andar samt svo ekki safnist raki og sviti upp innan frá og bleyti göngumann. Mjög mörg vörumerki eru í boði á markaðnum og margt af þessum fatnaði er frekar dýrt og því brýnt að vanda valið. Að jafnaði er samhengi milli verðs og gæða og fatnaður sem er ódýr endist illa og heldur ekki eins vel vatni og það sem kostar meira. Margir halda því reyndar fram að enginn öndunarfatnaður standist íslenskt slagveður þegar rigningin er lárétt og vindurinn lemur göngumann af offorsi. Við þær aðstæður þrýstist vatn inn með saumum, rennilásum og hettum og jafnvel beinlínis inn um ódýr öndunarefni. Til eru mælikvarðar til að skil­ greina vatnsheldni og rétt að spyrja afgreiðslu­ fólk út í það. að vera sveigjanLegur Við venjulegar sumaraðstæður myndu flestir ganga í tveimur lögum en vera með hlífðar­ fatnað í bakpokanum til öryggis. Það þýðir samt ekki að göngumaður sé alltaf í nær­ bol og flísjakka með reimað upp í háls. Þegar gengið er upp brattar brekkur er gott að vera léttklæddur. Þegar göngu­ maður blotn­ ar af svita missir hann hluta af þeirri einangrun sem fatnað­ urinn veitti áður. Þess vegna er góð regla að reyna eftir megni að klæða sig ekki of mikið. Ágæt viðmiðun er sú að göngu­ manni sé hálf­ kalt þegar hann leggur af stað. Þá mun komast þægi­ legt jafnvægi á eftir stutta göngu og göngumanni verður þægilega hlýtt án þess að svitna. Þannig er göngumaður sífellt að leita eft­ ir réttu jafnvægi eftir því sem veðrið breytist, hitinn lækkar þegar kemur ofar í fjallið og gengið er úr skjóli út í beljandann á berangri. Hvar er Húfan mín? Hitatapi og þægindastigi er í rauninni auð­ veldara að stýra með húfu og vettlingum en aukajaakka. Ef göngumanni er kalt á göngunni getur verið betra að setja á sig hlýrri húfu og fara í vettlinga. Þessir hlutir eru því afar mikil­ vægir og aldrei skyldi neinn fara í gönguferð án þess að hafa meðferðis góða húfu og vett­ linga. Gott er að hafa annað sett til vara í bak­ pokanum ef veður breytist og þarf að skipta. Mörgum finnst gott að hafa vatnsþéttar lúffur meðferðis en þær stöðva vindinn alveg og getur því verið nóg að vera með þunna ullar­ vettlinga innan undir þótt vonskuveður sé. Al­ mennt eru belgvettlingar hlýrri en fingravett­ lingar. Legghlífar eru nauðsynlegur hluti af búnaði göngumanns. Þær eru bestar úr öndunarefni því ef þær eru of þéttar þá svitna menn undir þeim. Legghlífar koma einkum að góðum not­ um í lausamjöll, aurvaðli og þegar gengið er í blautu grasi. góðir skór eru undirstaðan Skórnir eru mikilvægasti hluti búnaðar göngu­ manns. Hægt er að klæða af sér kulda með fatnaði sem er orðinn slitinn og farinn úr tísku en það er engum hollt að skælast á fjöll á íþróttaskóm eða slitnum skóm. Bestir eru leðurskór sem styðja vel við ökklann og eru með eins fáum saumum og kostur er. Vanda skal valið á skóm og máta í síbylju þangað til þægilegustu skórnir finnast. Gott er að vera í þykkum sokkum við þá iðju og hlusta vel á ráðgjöf afgreiðslufólks í útivistarbúðum. Betra er að gönguskór séu rúmir en þröngir. Góðir gönguskór eru dýrir og því nauðsynlegt að vanda valið og hirða þá vel með því að bera á þá leðurfeiti eða áburð milli ferða og halda þeim hreinum. annar búnaður Annar búnaður sem þarf til útivistar þegar fatnaði og skóm sleppir er ekki ýkja flókinn. Flestir vilja hafa göngustafi sér til stuðnings og þeir auka brennslu, veita stuðning og styrk og er auðvelt að verða afar háður þeim. Sumir vilja einn staf, aðrir tvo og sumir engan. Nauðsynlegt er að eiga 30–35 lítra bakpoka til að geyma aukafatnað, nesti, hlífðarfatn­ að og annað það sem maður gæti viljað hafa með sér. Hitabrúsi og nestisbox er ómissandi en í bakpokanum getur einnig verið sjónauki, myndavél, bækur, plástur, setmotta og vatns­ brúsi svo fátt eitt sé nefnt. nokkrar góðar útivistarbúðir Útilíf er stærst á markaðnum og eru verslanir þeirra á nokkrum stöðum, til dæmis í Glæsi­ bæ, Holtagörðum, Kringlunni og Smáralind. Fjallakofinn er við Reykjavíkurveg í Hafnar­ firði og á Laugavegi. Íslensku alparnir eru í Skeifunni og þar er einnig verslunin Everest. Íslensku framleiðendurnir 66 North og Cinta mani eru báðir með verslanir í Hafnar­ firði. 66 North er svo með verslun í Banka­ stræti, Kringlunni og Faxafeni, og þar er einnig útsölumarkaður þeirra. Cintamani er í Kringl­ unni og Bankastræti. Zo­On er með verslun í Kringlunni og í Kópavogi. Intersport á Bíldshöfða er allstór versl­ un og einnig mætti nefna Útivist og sport í Faxafeni. Af þessu má ráða að sá sem þarf að kaupa sér útivistarfatnað eða búnað á talsvert starf fyrir höndum og þarf að gefa sér góðan tíma. páll Ásgeir Ásgeirsson Útivist Í hverju ætlarðu að vera? Þegar rignir Þegar rignir er afar mikilvægt að vera í þéttum og góðum hlífðarfatnaði sem þó andar vel. Myndin er tekin í leiðangri Ferðafélags Íslands um Jökulgil. eitt lag á sumardögum Á blíðum sumardögum eru fjallgöngumenn jafnan aðeins í einu lagi fatnaðar og jafnvel léttklæddari en það eins og þessir garpar með Ferðafélagi Íslands á Vörðufelli. Þrenn lög Þessar fjallakonur kunna vel að klæða sig í þremur lögum af fatnaði á köldum vetrardegi, með vandaðar húfur, trefla og vettlinga. Myndin er tekin í næstsíðustu göngu Ferðafélags Íslands: 52 fjöll á ári 2010. sóldýrkendur á stuttbuxum Stuttbuxur eru algeng sjón í gönguhóp- um í sumarferðum. Þessir sóldýrkendur eru með Ferðafélagi Íslands á Djúpárdal. Hlífðarfatnaður Góð húfa, klútur eða buff sem hlífir andliti og úlpa með góðri hettu koma að góðum notum í vondu veðri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.