Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2011, Síða 60

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2011, Síða 60
60 | Tækni Umsjón: Páll Svansson palli@dv.is 13.–15. maí 2011 Helgarblað M icrosoft gerði söguleg kaup í vikunni þegar það yfirtók Skype. Þetta vinsæla sam­ skiptaforrit er í raun runnið undan rifjum manna frá þremur nor­ rænum þjóðum en fyrirtækið Skype var stofnað af frumkvöðlunum Nikl­ as Zennström frá Svíþjóð og Dan­ anum Janus Friis árið 2003 en þeir höfðu áður gert garðinn frægan með skráardeilingarforritinu Kazaa. Líkt og með Kazaa voru það Eistarnir Ahti Heinla, Priit Kasesalu og Jaan Tallinn sem skrifuðu allan kóða hugbúnað­ arins og eiga kannski frekar skilið að heita frumkvöðlar en þeir Zenn­ ström og Friis. Stærstu kaup Microsoft Ekki er liðin nema vika síðan fréttir bárust af því að Google og Facebook stæðu í viðræðum við Skype, varð­ andi hugsanleg kaup á fyrirtækinu eða einhvers konar samstarf. Öllum að óvörum varð það gamla brýnið Microsoft sem hreppti hnossið og stal senunni. Virði Skype var talið vera rúmlega þrír milljarðar Banda­ ríkjadala og samkvæmt bandarísk­ um fréttamiðlum höfðu Google og Facebook boðið um þrjá og hálf­ an milljarð þegar síðast var vitað. Microsoft keypti fyrirtækið hins veg­ ar á átta og hálfan milljarð Banda­ ríkjadala sem gerir þetta stærstu kaup Microsoft frá upphafi. Ástæða kaupanna Hugbúnaðarrisinn Microsoft hefur ekki gengið gæfunnar braut undan­ farinn áratug og hefur átt erfitt með að halda forskoti sínu. Það er eins og fyrirtækið hafi horft á af hliðarlín­ unni síðustu ár, á meðan Google og Apple stýrðu leiknum með hönnun, hugviti og nýjungum. Hverju sem um er að kenna hefur ákveðin hnign­ un átt sér stað innan fyrirtækisins, stærðin ein og sér er ekki nóg, ef hug­ vit, dirfsku og framtíðarsýn skortir. Kaupin á Skype eru því eins og klór í bakkann að sumra mati, ákvörðun sem tekin hafi verið til að friðþægja alla þá hluthafa þessa stórfyrirtæk­ is sem óttast að Microsoft hafi misst af snjallsíma­ og spjaldtölvubylting­ unni. Og til að tryggja að Google áskotnist ekki gríðarstór auglýsinga­ markaður til viðbótar við það sem fyrir er. Rökrétt útspil En yfirtakan á Skype er sennilega eina rökrétta útspil fyrirtækisins og hluti af vel útfærðri „strategíu“ til að tryggja Windows Phone­ stýrikerfinu brautargengi á næstu mánuðum. Samstarf Microsoft við Nokia mun leiða af sér að inn­ an árs fara Nokia Windows símar að streyma í hillur verslana og þá með Skype­útfærslu fyrir Windows Phone stýrikerfið sem slær keppi­ nautunum við. Microsoft mun þá reyna að höfða til nýrra kynslóða snjallsímakaupenda og með þol­ inmæði tryggja sér öruggt sæti á snjallsímamarkaðnum. Ein leiðin væri að nýta Skype í samkeppni við stóru fjarskiptafyrirtækin og bjóða upp á ódýrari talsímaþjónustu. Stórkostleg þjónusta Skype mun hér eftir heita Micro­ soft Skype og verða sér deild inn­ an Microsoft. Steve Ballmer, aðal­ framkvæmdastjóri Microsoft, var kokhraustur við kaupin; „Skype er stórkostleg þjónusta sem elskuð er af milljónum manna víðsvegar um heiminn. Í sameiningu munum við stuðla að framtíð rauntíma­ samskipta og tryggja tengsl milli fjölskyldna, vina, viðskiptamanna og samstarfsfólks, hvar sem er í veröldinni.“ Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is · Stórviðburður · Síðasta uppboð vetrarins Listmunauppboð Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu fer fram mánudaginn og þriðjudaginn 16. og 17. maí, kl. 18 báða dagana í Galleríi Fold, á Rauðarárstíg Valtýr Pétursson Á uppboðinu verður gott úrval verka samtímalistamanna svo og fjöldi frábærra verka gömlu meistaranna. í dag föstud. 10–18, laugard. 11–17, sunnud. 12–17, mánud. 10–17 (öll verk) þriðjud. kl. 10–17 (verkin sem ekki eru boðin upp á mánudag) Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is Stærstu fréttir vikunnar í tækniheiminum eru söguleg kaup Microsoft á Skype. Margir markaðsgreinendur telja þessa gríðarmiklu fjárfestingu ekki getað borgað sig upp en aðrir segja þetta vera snilldarútspil hugbúnaðarrisans. Skype frá upphafi n 2003 Skype stofnað af frumkvöðl- unum Niklas Zennström frá Svíþjóð og Dananum Janus Friis. Eistarnir Ahti Heinla, Priit Kasesalu og Jaan Tallinn sáu um þróun hugbúnaðarins. n 2003 Fyrsta tilraunaútgáfa forritsins. n 2005 eBay kaupir Skype fyrir 2,75 milljarða Bandaríkjadali. Skype kynnir myndspjall í desember. Skráðir notendur komnir í 75 milljónir. n 2006 Skráðir notendur komnir í 100 milljónir. n 2007 Skráðir notendur komnir í 277 milljónir. n 2008 Skráðir notendur komnir í 405 milljónir. n 2009 Skype fyrir iPhone- og Blackberry-snjallsíma. eBay selur stóran hluta Skype til fjárfestingarfyrirtækisins Silver Lake, eBay heldur eftir 30 prósenta hlut og stofnend- urnir Zennström og Friis eru í félagi með 14 prósenta hlut. n 2010 Skype fyrir Android-stýrikerfi. Skráðir notendur komnir í 560 milljónir. 120 millj- ónir manna sér þjónustuna í hverjum mánuði, þar af rúmlega 8 milljónir sem greiða fyrir þann möguleika að geta hringt beint í símanúmer. Um 40 prósent notenda Skype nýta sér myndspjallsmöguleika forritsins að jafnaði. n 2010 Skype innleiðir myndspjall fyrir iPhone 4 og 3GS-snjallsíma. Skype innleiðir stöðuuppfærslur og samhæfingu við Facebook. Samstarf hefst við Panasonic og Sam- sung um sérstaka útgáfu af Skype fyrir svokölluð netsjónvörp. n 2011 Microsoft kaupir Skype fyrir 8,5 milljarða Bandaríkjadala. Stofnendurnir Zennström og Friis fá 1,2 milljarða Bandaríkjadala í sinn hlut við kaupin. Skráðir notendur komnir í 663 milljónir. Talið að um 600 þúsund nýir notendur skrái sig daglega. Zennström og Friis n Athafnamennirnir Janus Friis og Niklas Zennström hittust fyrst í Kaupmannahöfn árið 1996. Zennström var þá yfirmaður Tele2 í Danmörku en Tele2 er evrópskt fjarskipta- fyrirtæki sem býður upp á net- og símaþjónustu auk kapalkerfa fyrir sjónvarp. Friis var ráðinn þetta ár til að stýra þjónustudeild fyrirtækisins og í framhaldinu unnu þeir saman að ýmsum verkefnum. n Þeir skildu síðan við Tele2 árið 2000 og hófu undirbúning að skráardeiliforritinu Kazaa sem leit síðan dagsins ljós árið eftir og varð gríðarvinsælt. Ásamt Skype og Kazaa hafa þeir félagar komið öðrum áhugaverðum og árangursríkum verkefnum á koppinn, þar á meðal Joost, sem er vefþjónusta sem býður upp á sjónvarp í gegnum netið (joost.com). Örvænting eða snilld hjá Microsoft? Ballmer kokhraustur við kaupin Steve Ballmer og Tony Bates, aðal- framkvæmdastjóri Skype, takast í hendur á sameigin- legum blaðamannafundi í San Francisco í vikunni. MyNd ReuteRS Með digurt veski eftir vikuna Zennström og Friis eru orðnir vellauð- ugir menn eftir sölu á 14 prósenta hlut sínum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.