Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2011, Qupperneq 70
70 | Fólk 13.–15. maí 2011 Helgarblað
Alltaf handtek-
inn í Rússlandi
Vesturport-leikarinn Björn Hlynur Haraldsson
er í viðtali í nýjasta hefti tímaritsins Monitor
þar sem hann segir meðal annars frá við-
skiptum sínum við rússnesku lögregluna.
Segir Björn hana hafa óeðlilegan áhuga á
því sem hann er með í vösunum og aðeins í
fyrsta skipti um daginn hafi hann ekki verið
handtekinn á ferðum sínum um Rússland.
„Ég get varla verið í Rússlandi því þar er ég
alltaf bara handtekinn af löggunni. Það er
alltaf verið að reyna að pretta mig í Rússlandi
og ég hef ekki skap í það. Þar sem lögreglan
reynir að ræna mig líður mér ekkert rosalega
vel,“ segir Björn Hlynur sem þessa dagana
leikur eitt af aðalhlutverkunum í Húsmóður-
inni, nýjasta verki Vesturports.
Ómar náði
bílnúmerinu
Útvarpsmaðurinn Ómar Eyþórsson, sem
stýrir morgunþættinum Ómar á X-inu, varð á
fimmtudaginn vitni að því þegar ökumaður
keyrði utan í annan bíl fyrir utan eina af
verslunum Lyfju. Ómar var snar í snúningum
og hripaði niður bílnúmerið. Hann sendi svo
ökufantinum kveðju á Facebook-síðu sinni:
„[Bílnúmerið]. Þú hefðir ekki átt að stinga
af eftir að þú keyrðir utan í Landcruiserinn
fyrir utan Lyfju áðan. Ég náði númerinu og
lét eiganda hins bílsins fá það.“ Eigandi
skemmda bílsins hefur væntanlega verið
Ómari mjög þakklátur enda fátt leiðinlegra
að koma að skemmdum bíl og vita ekki hver
sökudólgurinn er.
„Jú, ég hef verið alveg töluvert fá-
klæddari í þessari seríu en í þeirri
fyrstu,“ segir söng- og leikkonan Þór-
unn Antonía Magnúsdóttir og hlær
dátt, aðspurð um þær fjölmörgu sen-
ur sem hún hefur sést á brjóstahald-
aranum einum klæða í annarri ser-
íu af gamanþættinum Steindanum
okkar. „Þetta er mjög fyndið því
Ágúst Bent, kærastinn minn, er leik-
stjórinn og við vinnum því að þessu
saman. Það hafa því alveg komið upp
mjög fyndnar aðstæður við tökur,“
segir hún.
Ein slík var fyrir þarsíðasta þátt
þar sem Þórunn svaf hjá tinmann-
inum úr Galdrakallinum í Oz í sketsi
sem kallast Flagarinn. „Í Flagaranum
þurfti ég að þykjast sofa hjá Steinda á
meðan kærastinn minn tók það upp.
Svo er Steindi besti vinur Bents. Ég
held að það lendi ekkert mörg pör í
þessu. Ég málaði Steinda silfurlitað-
an og svaf svo hjá honum fyrir fram-
an kærastann minn,“ segir Þórunn og
hlær.
„Ég var alveg klár í þetta frá fyrsta
degi,“ segir Þórunn en hún var hvergi
bangin við þessar léttklæddu senur
og tók vel í þær allt frá byrjun. „Það
er engin feimni við Bent eða Steinda.
Þetta er nú allt fyrir grínið. Þetta er
líka ákveðin yfirlýsing hjá mér að
gera þetta. Það er ekki eins og ég sé
einhver sílikonbomba. Mér finnst
bara kúl að sýna hvernig alvöru kon-
ur líta út,“ segir Þórunn. „Það hef-
ur samt alveg komið upp að ég hef
verið að borða pítsu eða eitthvað og
strákarnir hafa þá látið mig vita að ég
eigi að vera á bikiníi daginn eftir. Þá
er maður alveg bara: „Takk fyrir að
gefa mér svona mikinn fyrirvara.“ En
maður hlær bara að þessu.“
Þótt Þórunn hafi farið á kostum
í tveimur leiknum sjónvarpsseríum
nú á skömmum tíma er hún fyrst og
fremst söngkona og hefur góð gen til
þess en hún er dóttir Magnúsar Sig-
mundssonar. Þórunn var með vin-
sælt lag á síðasta ári sem hún tók upp
ásamt Berndsen og þau tvö unnu
einnig saman að nýja laginu sem
kemur í spilun í dag, föstudag. „Lag-
ið heitir Out of touch og er af vænt-
anlegri sólóplötu minni. Ég er aðeins
að breyta um stíl í tónlistinni og gera
þetta meira poppað. Ég er í upptök-
um núna og vonandi kemur platan
bara seinna í sumar,“ segir söng- og
leikkonan Þórunn Antonía Magnús-
dóttir.
tomas@dv.is
Þórunn Antonía hvergi bangin við fáklæddar senur í Steindanum:
„Er engin sílikonbomba“
Svaf hjá tinmanninum Í eitt af
þeim skiptum sem Þórunn var fáklædd í
Steindanum svaf hún hjá hinum hjartalausa
tinmanni, leiknum af besta vini kærasta síns
sem tók upp atriðið.
Ekkert feimin Þórunn er hvergi bangin
við að koma léttklædd fram og sýna hvernig
alvöru konur líta út.
Á
níu vikum missti ég átj-
án kíló,“ ljóstraði Matthías
Matthíasson kátur upp í sam-
tali við DV. Matti hefur vakið
verðskuldaða athygli fyrir framgöngu
sína í Eurovision og er flestum ljóst
að hann er í mun betra formi í dag
en þegar undankeppnin fór fram hér
heima. Enda segist Matti vera mjög
ánægður með árangurinn hingað til.
Aðalkeppnin í fyrsta skipti
Matti er að taka þátt í aðalkeppni
Eurovision í fyrsta skipti en hefur
nokkrum sinnum áður tekið þátt
í undankeppninni hér heima. Í ár
mætti hann til leiks með tvö lög í úr-
slitunum, annars vegar Eldgos eft-
ir nafna sinn Matthías Stefánsson
og hins vegar lagið Aftur heim eft-
ir Sigurjón Brink. Matti flytur lagið
eins og flestir vita með fimm öðrum
vinum Sigurjóns eða Vinum Sjonna
eins og hópurinn er kallaður. Sigur-
jón sjálfur ætlaði upprunalega að
flytja lagið en varð bráðkvaddur á
heimili sínu stuttu áður en undan-
úrslitin fóru fram. Matti sem tók að
sér flutninginn ásamt vinum Sigur-
jóns hefur lengi verið þekktur inn-
an íslenska tónlistarbransans enda
var hann söngvari hljómsveitarinnar
Papa áður en hún lagði upp laupana
í febrúar 2008.
Fékk sjokk þegar hann sá sig
Þegar ljóst var að Vinir Sjonna voru
á leiðinni í úrslitin í Düsseldorf sagði
Matti frá því að nú þyrfti hann að
fara í megrun. Hann stóð greinilega
við stóru orðin og tók af sér tvö kíló
að meðaltali á viku. Matti segist hafa
fengið hálfgert sjokk þegar hann sá
sig í sjónvarpinu í fyrstu undan-
keppninni og ákvað að taka sig á:
„Ég hætti að borða brauð, viðbættan
sykur og mjólkurvörur.“ Galdurinn á
bak við þetta er ekki flókinn ef marka
má Matta: „Ég bara skipti um
mataræði.“ Samkvæmt Matta
hefur þetta breytta mataræði auk
minni áfengisdrykkju haft tilætluð
áhrif. Honum líður mikið betur og
segir að allt sé að gerast varðandi út-
litið. Matti fór ekki á fullt í ræktinni
heldur var það eingöngu mataræðið
sem var tekið í gegn.
Heldur áfram á sömu braut
Matti ætlar að halda áfram á sömu
braut með breyttu mataræði og taka
af fimmtán kíló til viðbótar en seg-
ir að hann stefni þó ekki á einhvern
ákveðinn kílóafjölda á endanum:
„Hjá mér er þetta bara breyttur lífs-
stíll.“ Matti er augljóslega á réttri leið
enda skýrir hann frá því að að ís-
lenski Eurovision-hópurinn sitji við
Rínarfljótið og borði salat. Ljóst er að
Matti verður í fínu formi þegar hann
syngur fyrir milljónir manna í úrslit-
um Eurovision í Düsseldorf í Þýska-
landi á laugardagskvöld.
gudni@dv.is
n Matthías Matthíasson Eurovision-
fari breytti um mataræði n Kominn
í mun betra form n Hætti að borða
brauð og viðbættan sykur
„Á níu vikum
missti ég
átján kíló“
„Samkvæmt
Matta hefur þetta
breytta mataræði auk
minni áfengisdrykkju haft
tilætluð áhrif. Honum
líður mikið betur og
segir að allt sé að gerast
varðandi útlitið. Matti
fór ekki á fullt í ræktinni
heldur var það eingöngu
mataræðið sem var tekið
í gegn.
Matti Matt í undan-
keppninni á Íslandi Áður
en hann breytti um mataræði.
Matti í Düsseldorf Eftir
að hann missti átján kíló.