Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2008, Blaðsíða 26
föstudagur 1. ágúst 200826 Fréttir DV
Dýrasta hamborgaratilboð landsins
er í Þrastarlundi samkvæmt verð-
könnun sem DV gerði í nokkrum
vegasjoppum víðs vegar um land-
ið. Þar kostar tilboðið 1.350 krón-
ur og er án goss. Ódýrasta tilboð-
ið er á Hlíðarenda á Hvolsvelli en
þar kostar það 870 krónur án sósu.
Næstum 500 króna munur er á. Ekki
er þó hægt að segja til um hvort og
þá hversu mikill gæðamunurinn er
á tilboðunum.
Ódýrast á Norðurlandi
Hagstæðast er að fá sér ham-
borgaratilboð á Norður- og Aust-
urlandi. Frá Húsafelli, um Vestfirði
og að Staðarskála fara öll hamborg-
aratilboð yfir 1.000 krónur. Það er
svo í N1 á Blönduósi, einni vin-
sælustu stoppistöð landsmanna,
sem tilboðið fæst á 875 krónur. Frá
Blönduósi, yfir á Austfirði og að
Kirkjubæjarklaustri eru öll ham-
borgaratilboð undir 1.000 krónum
en í Skaftaskála er tilboðið á 1.095
krónur. Í Víkurskála í Vík og Hlíð-
arenda á Hvolsvelli, þar sem jafn-
framt er ódýrasta kókflaskan, fer
verðið aftur undir 1.000 krónur. Það
er svo Þrastarlundur sem er dýr-
asta vegasjoppa landsins, þar kost-
ar hamborgaratilboðið heilar 1.350
krónur.
Hyrnan og Baula
Pylsa með öllu í Hyrnunni í
Borgarnesi kostar 200 krónur og
er þar með ódýrasta pylsan á land-
inu. Hamborgaratilboð á sama stað
kostar 990 krónur og með ódýrari
hamborgaratilboðum í könnuninni.
Að stoppa í Hyrnunni er því nokkuð
hagstætt miðað við aðra staði. Stutt
er á milli hennar og Baulu þar sem
borgaratilboðið er á 1.130 krónur.
Kristberg Jónsson, eigandi Baulu,
segir að það sé búið að vera bilað
að gera hjá þeim, eins og hann orð-
ar það, og telur góða borgara vera
ástæðuna. Hann býður líka upp á
fjölskyldutilboð á 3.970 krónur. „Við
erum líka með þyrlupall hérna,“
segir Kristberg sposkur. Stutt er síð-
an veiðimenn brugðu á það ráð að
fara eftir hressingu í Baulu og vöktu
athygli fyrir að ferðast þangað á
þyrlu frá nálægri á.
Vegasjoppur skemmtilegri
„Það sem mér finnst skemmti-
legast að gera á ferðalögum um
landið er að fara í sjoppur úti á
landi,“ segir Páll Ásgeir Ásgeirsson,
ritstjóri Útiveru og höfundur leið-
sagnabókarinnar 101 Ísland. „Þær
eru miklu skemmtilegri en sjoppur
í Reykjavík því þar fæst allt saman.“
Páll er mikilll og kunnur ferðalang-
ur meðal Íslendinga. Síðastliðið
sumar fór hann í sex vikna ferða-
lag um landið að vinna við bókina
101 Ísland: áfangastaðir í alfaraleið
og heimsótti hann margar sjopp-
ur. Hann hefur þó misjafna skoð-
un á hamborgaratilboðum. „Það
er ágætt að fá sér hamborgara en
ég ætla ekki að halda því fram að
þeir séu hollir. Hins vegar tel ég að
franskar kartöflur séu eitraðar og
það er lífshættulegt að borða þær,“
segir Páll glaður.
Heimsækja alla staði
Páli er sérstaklega minnisstæð-
ur einn staður á landinu eftir ferða-
lagið. „Það er matvörubúð sem við
fórum í á Kópaskeri. Hægt var að fá
nýbakað bakkelsi, kaffi og svo gat
maður sest niður í anddyrinu og
lesið blöðin. Þar sátu einnig heima-
menn og töluðu um daginn og veg-
inn. Þetta er svona staður sem sam-
einar allt sem maður vill upplifa á
ferðalagi.“ Páll er á þeirri skoðun
að fólk á ferðalagi um landið eigi
að stoppa í hverju einasta þorpi og
heimsækja allar sjoppur og kaffi-
hús. Þar leynast margir skemmti-
legir hlutir sem maður fær ekki
að kynnast í bæklingum. „En það
stendur núna í bókinni minni 101
Ísland,“ segir Páll og hlær.
Ógleymanlegur hamborgari
Páll fór í sumar í fimm daga
ferðalag í Þjórsárver með hópi fólks
og var það ævintýraleg ferð. „Við
gengum úr Kerlingafjöllum, aust-
ur í Þjórsárver, yfir Þjórsárjökul
og þvert yfir Sprengisand. Enduð-
um svo í Nýjadal. Þetta var geysis-
kemmtilegur leiðangur og við feng-
um frábært veður, “ segir Páll
Aðspurður hvort hann hafi feng-
ið sér hamborgara á leiðinni svar-
ar hann neitandi. „Það kemur fyrir
að maður fái sér hamborgara eft-
ir langar ferðir og þá sérstaklega
erfiðar fjallgöngur. Það er einn
ógleymanlegur hamborgari sem
ég fékk mér eitt sinn á Systrakaffi
á Kirkjubæjarklaustri,“ segir Páll.
„Ég gef þeim fyrstu einkunn,“ bætir
hann við að lokum.
Verð í Vegasjoppum
HyrNaN BorgarNesi
Hamborgaratilboð 990
Pylsa með öllu 200
Barnaís með dýfu 190
0,5 lítrar kók 165
Baula Borgarfirði
Hamborgaratilboð 1130
Pylsa með öllu 220
Barnaís með dýfu 245
0,5 lítrar kók 175
Húsafell
Hamborgaratilboð 1.250 (án goss)
Pylsa með öllu 230
Barnaís m.dýfu 230
0,5 lítrar kók 175
BjarkarluNdur
Hamborgaratilboð 1.100
Pylsa með öllu 300
Barnaís með dýfu ekki til
0,5 lítrar kók 220
flÓkaluNdur
Hamborgaratilboð 1.250
Pylsa með öllu ekki til
Barnaís með dýfu ekki til
0,5 lítrar kók 190
VeitiNgaskáliNN á Brú
Hamborgaratilboð 1.180
Pylsa með öllu 220
Barnaís með dýfu ekki til
0,5 lítrar kók 165
staðarskáli
Hamborgaratilboð 1180
Pylsa með öllu 220
Lítill ís með dýfu 165
0,5 lítrar kók 165
N1 BlöNduÓsi
Hamborgaratilboð 875
Pylsa með öllu 220
Barnaís með dýfu 165
0,5 lítrar kók 165
VarmaHlíð
Hamborgaratilboð 890
Pylsa með öllu 200
Barnaís með dýfu 185
0,5 lítrar kók 160
ak- iNN á akureyri
Hamborgaratilboð 980
Pylsa með öllu 230
Lítill ís með dýfu 280
0,5 lítrar kók 190
VersluNiN ásByrgi
Hamborgaratilboð 995
Pylsa með öllu 290
Barnaís með dýfu ekki til
0,5 lítrar kók 160
söluskáliNN egilstöðum
Hamborgaratilboð 995
Pylsa með öllu 210
Barnaís með dýfu 240
0,5 lítrar kók 175
skaftaskáli á
kirkjuBæjarklaustri
Hamborgaratilboð 1.095
Pylsa með öllu 215
Lítill ís með dýfu 150
0,5 lítrar kók 170
Víkurskáli í Vík
Hamborgaratilboð 995 (án goss)
Pylsa með öllu 205
Lítill ís með dýfu 170
0,5 lítrar kók 170
HlíðareNdi HVolsVelli
Hamborgaratilboð 870 (án sósu)
Pylsa með öllu 220
Lítil ís með dýfu 165
0,5 lítrar kók 165
ÞrastarluNdur
Hamborgaratilboð 1.350 (án goss)
Pylsa með öllu 250
Barnaís með dýfu 220
0,5 lítrar kók 200
Veisla í Vegkantinum
Það er alltaf jafnmikil stemning í því að stoppa í vegasjoppu á för sinni um landið og sjá hvað er í boði. Jafn-
vel fá sér eina máltíð. páll ásgeir ásgeirsson, ritstjóri Útiveru og höfundur leiðsagnabókarinnar 101 Ísland,
segir að sjoppur úti á landi séu miklu skemmtilegri en sjoppur í Reykjavík. DV gerði létta verðkönnun á
nokkrum stöðum víðs vegar um landið og komst að því að verðið er mjög misjafnt frá einum stað til annars.
ásdís Björg jÓHaNNesdÓttir
blaðamaður skrifar: asdisbjorg@dv.is