Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2008, Síða 51
föstudagur 1. ágúst 2008 51Sport
Knattspyrnuliðin mega eKKi neita tekin var ákvörðun
um það fyrir dómstólum að ekkert knattspyrnufélag í heiminum
mætti neita leikmönnum sínum um að fara á Ólympíuleikana
svo lengi sem þeir eru yngri en 23 ára. Knattspyrnukeppnin á Ól-
ympíuleikunum fer þannig fram að liðin mæta með hóp af leik-
mönnum yngri en 23 ára ásamt þremur eldri. Lið hafa hingað til
verið dugleg að neita sínum leikmönnum því þeir koma þá ekki
heim fyrr en tímabilið í flestum deildum er hafið. um leið og var
úrskurðað um þetta var argentínska landsliðið ekki lengi að kalla
á Leo Messi hjá Barcelona sem mun leika með argentínu á ÓL.
miKið lagt upp úr strandblaKi strandblak er orðin ein vin-
sælasta íþróttagreinin á Ólympíuleikunum og ætla forsvarsmenn
leikanna í Peking að sjá til þess að allt verði í toppstandi á strönd-
inni. Búist er við fjölda áhorfenda því mun færri komust að en
vildu á úrslitaleikina í strandblaki á leikunum í aþenu fyrir fjórum
árum. sem fyrr eru Brasilíumenn sigurstranglegastir bæði í karla-
og kvennaflokki en Bandaríkjamenn eru einnig mjög sterkir.
LESTU NÚNA SPORTIÐ Á DV.IS!
Þjóðarstoltið undir
Jóhann Sveinsson, Ragnheiður
Ragnarsdóttir, Sarah Blake
Bateman, Sigrún Brá Sverr-
isdóttir og Örn Arrnarson.
Sundfólkið æfði í
Singapúr fyrir Ólymp-
íuleikana og DV náði
tali af Erni Arnarsyni
sem er fullur eftir-
væntingar. „Fyrst
og fremst er
markmiðið að
bæta mína
tíma,“ segir
Örn Arn-
arson
en
sterkasta grein hans
er 100 metra bak-
sund. „Ef ég kemst í
undanúrslit eða úrslit
tel ég það vera mjög góðan
árangur. Ég er í miklu betra
formi en ég hef verið í undan-
farin ár enda meiðslalaus. Eins og
staðan er núna eru menn mjög jafn-
ir. Það getur munað tíundu hluta úr
sekúndu hvort þú kemst upp úr riðl-
inum eða sitjir eftir. Þess vegna væri
alveg frábært að komast í úrslit,“
segir Örn en hann lenti í fjórða sæti
á Sumarólympíuleikunum í Aþenu
árið 2004. „Aðstæður þarna úti líta
mjög vel út. Laugin er mjög góð og
menn tala um að þetta sé mjög flott
hjá Kínverjunum,“ segir Örn
Júdó
Þor-
móð-
ur Jónsson
keppir fyrir Ís-
lands hönd í júdó.
Hann fékk úthlut-
að svokölluðu „wild
card“-sæti sem þýðir að
hann er einn þeirra kepp-
enda sem fengu úthlutað auka-
sæti þar sem hann var nærri því
að ná ólympíulágmarki.
Hann hefur verið að byggja sig
upp og stimpla sig inn eftir að hafa
jafnað sig af meiðslum sem hann
varð fyrir upp úr miðju síðasta ári,
rétt um það bil sem hann fór að
vinna sig upp styrkleikalistann.
Þormóður kemur þó inn í mótið
neðstur allar Evrópumanna á styrk-
leikalistanum.
„Ég stefni bara að því að kom-
ast í gegnum fyrstu viðureignina
því annars er þetta búið,“ segir Þor-
móður en ef hann leggur fjóra and-
stæðinga að velli vinnur hann gull á
Ólympíuleikunum. Um er að ræða
útsláttarkeppni og er hann einn
32 keppenda. Enn á eftir að draga í
keppninni og því óljóst hverjum Þor-
móður mætir. „Ef ég á að vera alveg
hreinskilinn veit ég að þetta verður
upp í móti. En það getur allt gerst og
ég hef unnið menn sem eru á þessu
móti,“ segir Þormóður sem æfir stíft
þessa dagana.
eKKert til sparað
Kínverjum er mikið í mun
um að koma vel fyrir.
sterKur stráKur
Bergur Ingi Pétursson er
efnilegur sleggjukastari.