Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2008, Blaðsíða 74
föstudagur 1. ágúst 200874 Helgarblað DV
Tónlist
Töff Teymi
Jay-Z ætlar að vinna með Kanye West og timbaland
á nýju plötunni sinni. Jay-Z ætlar að láta tónlistina
ráða ferðinni og leyfa þeim lögum sem verða góð
að fara á plötuna hvort sem upptökunum verður
stjórnað af timbaland eða Kanye West. upphaflega
átti upptökustjórinn einungis að vera timbaland.
umsJón: Krista Hall krista@dv.is
Ný plata frá
Dylan
Til stendur að gefa út
plötu með Bob Dylan, Tell
Tale Signs, 6. október. Platan
samanstendur af ótútgefnu
efni Dylans, stúdíóupptökum,
demóum og upptökum af tón-
leikum kappans frá árunum
1986 til 2006. Platan kemur
út á tveimur geisladiskum, á
þriggja diska lúxusútgáfu og á
fjórum vínylplötum. Allt þetta
er hægt að panta fyrirfram á
vefsíðu Bobs Dylan. Á vefsíð-
unni er líka að finna mp3-út-
gáfu af áður óútgefnu lagi. Með
plötunni fylgir 60 blaðsíðna
bæklingur með sjaldséðum
myndum og fleiru.
Tilbúinn í fjörið
Hljóðútsendingin klúðraðist
Það urðu eflaust margir varir við
það á miðvikudagskvöldið í Kast-
ljósinu þegar Sprengjuhöllin spilaði
nýja lagið Sumar í Múla í lok þátt-
arins og útsendingunni var snar-
lega hætt með auglýsingahléi. Berg-
ur Ebbi Benediktsson, aðalsöngvari
hljómsveitarinnar, segir að tækn-
inni hafi verið um að kenna. „Þetta
var beint í Kastljósinu og hljóð-
útsendingin klúðraðist. Þetta var
mjög leiðinlegt en þetta var eitt-
hvað vesen með hljóðútsendinga-
bílinn,“ segir Bergur. Kastljósið tek-
ur oftast upp tónlistaratriði fyrr um
daginn. „Tekið er upp fyrr um dag-
inn þegar til er stúdíóupptaka af
laginu en þarna var hugmyndin að
hafa þetta í beinni útsendingu og
ekkert að svindla neitt. Mér skilst
að það hafi ekkert farið á milli mála
að þetta voru tæknileg mistök. Þetta
gerist bara og ég nenni ekkert að
vera stressaður fyrir eigin hönd að
fólk haldi að við séum léleg hljóm-
sveit, ég hef meiri trú á fólki en það,“
segir Bergur.
Strákarnir í Sprengjuhöllinni
eru þrælánægðir með nýja lagið og
segir Bergur að það hafi fengið góð
viðbrögð. „Lagið er forsmekkur að
því sem koma skal á plötunni og
við ætlum að halda áfram að spila
það ásamt fleiri nýjum lögum,“ seg-
ir Bergur. Ný plata kemur út í lok
október og tekur hljómsveitin upp
í lok ágúst. „Við erum aðeins að
prófa lögin núna og bara fyrst og
fremst að æfa mjög mikið. Við erum
að einbeita okkur að plötunni en
verðum að spila á laugardeginum á
Innipúkanum á NASA,“ segir Berg-
ur að lokum.
astrun@dv.is
Sprengjuhöllin spilaði nýja lagið Sumar
í Múla í Kastljósinu:
BítlarNir í
hláturskasti
Óútgefnar upptökur með
Bítlunum fundust í Liver-
pool þegar maður þar á bæ
var að taka til á háalofti föður
síns. Upptakan er 30 mínútna
löng og hljóma meðal annars
nýjar útgáfur af I Feel Fine og
I‘m A Loser. Á einum stað á
upptökunni heyrist í Bítlun-
um springa úr hlátri á meðan
lagið Follow The Sun er tekið
upp. Líklega voru upptök-
urnar gerðar árið 1964 fyrir
sjónvarpsþátt á BBC sem hét
Top Gear. Upptakan verður
boðin upp í ágúst hjá Cameo
Auctioneers. Búist er við því að
upptökurnar seljist á 8.000 til
12.000 pund.
trúlofun á tón-
leikum
Uppselt var á tónleika með
hljómsveitinni Bloc Party í Los
Angeles í vikunni. Tónleik-
arnir voru óvenjulegir vegna
þess að par trúlofaði sig uppi
á sviði um miðja tónleikana.
Mikil stemning var á tónleik-
unum og varð allt vitlaust þeg-
ar lagið Hunting For Witches
var spilað. Tónleikarnir stóðu
yfir í 80 mínútur og var sungið
með allan tímann. Aðalsöngv-
arinn Kele Okereke var í Bar-
ack Obama-stuttermabol en
trommarinn var ber að ofan
næstum alla tónleikana.
Sprengjuhöllin
Ætlar ekki að stressa sig
yfir tæknilegum
mistökum Kastljóssins.
Rokkað um verslunar-
mannahelgina
Hverjir spila með Bjartmari um
helgina? Kannski verður það
rúnar Júl rokkkóngur Íslands.
Bjartmar Guðlaugsson
ætlar að spila með vel
völdum leynigestum á
Organ á laugardaginn.
Hann er vel upphitað-
ur fyrir tónleikana.
Bjartmar Guðlaugsson
spilar sína þekktustu slagara á
laugardaginn á Organ.
„Ég er æðislega spenntur fyrir því
að spila á Organ á laugardags-
kvöldið, það er svo mikið prósak að
tengja við þjóðina og sérstaklega ef
maður hefur verið aðeins til baka,“
segir Bjartmar Guðlaugsson tón-
listarmaður sem ætlar að spila með
leynigestum á laugardagskvöldið á
Organ. „Ég held að þetta verði bara
mjög skemmtilegt. Við höfum ver-
ið að undirbúa þetta og ég fæ ein-
hverja gesti á sviðið en hverjir það
verða er ennþá huldumál, en eitt er
víst að það verður rokkað því það
verða ýmsir góðir úr rokkinu sem
spila með mér,“ segir Bjartmar.
Helstu slagararnir
Hann segir að kíkt hafi verið á
prógrammið á miðvikudagskvöldið
og æft verði aftur á fimmtudaginn
(í gær). „Við erum búnir að liðka
okkur aðeins til að vera tilbúnir fyr-
ir fjörið. Við ætlum að taka þessa
helstu slagara en með öðru í bland.
Ég tek breiða mynd af þeim lögum
sem ég hef gert í gegnum tíðina og
alveg helling af slögurum. Þetta er
jú verslunarmannahelgin og það
verður mikið fjör,“ segir Bjartmar.
Í báðum landshlutum
„Ég er nú alltaf að spila en það
hefur verið meira svona lókal. Ég er
í fínu formi núna, ég ætla bara að
fara að auka spiliríið,“ segir Bjart-
mar. Hann á heima 12 kílómetr-
um norðan við Egilsstaði á Eiðum
og unir sér vel í sveitinni þar sem
hann hefur átt heima í fimm ár.
„Þetta er smá húsaþyrping þarna
við Eiðar, voða fínt og flott. Það er
svakalega fínt að búa hér og ég er
með gott vinnupláss hérna, það er
frábært rými til að hugsa og semja.
Ég er líka mikið í bænum því ég
spila mikið í bænum, þannig að ég
er í báðum landshlutunum,“ segir
Bjartmar. Aðspurður hvort keyrsl-
an sé ekki mikil segir Bjartmar það
ekki vera vandamál. „Ég fíla það
rosalega vel að keyra á milli og nýt
hvers einasta augnabliks því lands-
lagið er svo ofboðslega breytilegt
og það er svo gaman að keyra.
Þetta land er svo mikið listaverk frá
náttúrunnar hendi og það er um að
gera að njóta þess,“ segir Bjartmar.
astrun@dv.is