Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2008, Síða 32
föstudagur 1. ágúst 200832 Menning DV
Lygasögu-
ganga í Viðey
Lygasöguganga í Viðey verð�
ur endurtekin vegna góðrar
þátttöku, en 336 manns mættu
í gönguna sem var síðastlið�
inn þriðjudag. Ekki komust
allir með í ferðina sem vildu
og er því áhugasömum bent
á að hafa samband við Eld�
ingu hvalaskoðun til að panta
miða í ferðina. Farið verður frá
Skarfabakka að vanda klukkan
19.15 næsta þriðjudagskvöld, 5.
ágúst. Siglingin til Viðeyjar tek�
ur um fimm mínútur og gangan
sjálf einn og hálfan til tvo tíma.
Gjald í ferjuna er 800 krónur
fyrir fullorðna, 400 krónur fyrir
börn 6 til 18 ára í fylgd fullorð�
inna og frítt fyrir börn yngri en
6 ára. Þátttaka í göngunni er
ókeypis og öllum heimil.
Myndlist
Verksmiðjan á Hjalteyri breytist í listamiðstöð um helgina:
Tímamót í sögu Hjalteyrar
Listarmönnum af þremur kyn�
slóðum sem vinna í sex löndum.
Listamennirnir eiga það sameiginlegt
að hafa gert með sér samkomulag um
að standa fyrir menningarviðburðum
og bjóða upp á
vinnuaðstöðu í
verksmiðjunni
í framtíðinni. Ef ætlunin gengur að
óskum má líklega segja að um tíma�
mót sé að ræða í sögu Hjalteyrar.
Sýningin sem opnuð verður um
helgina ber yfirskriftina Start þar sem
unnið er með innsetningar, kvik�
myndir, myndbönd, hljóð, málverk,
teikningar og gjörninga, svo eitthvað
sé nefnt. Þátttakendur eru Sigga Björg
Sigurðardóttir, Kristján Guðmunds�
son, Magnús Pálsson, Alexander
Steig, Boekie Woekie, Nicolas Moul�
in, Ghazi Barakat og Arna Valsdóttir.
Þá eru ekki allir upptaldir sem standa
að verksmiðjunni. Sýningin verður
opnuð klukkan 14. Á sunnudaginn
milli klukkan 14 og 17 fer svo fram
listasmiðja fyrir börn og foreldra.
Vonir standa til að listastarfsem�
in í verksmiðjunni brúi bil á milli
þéttbýlis og landsbyggðar en einn�
ig landsbyggðar og umheims. Þess
má geta að Hjalteyri er smábyggð�
arkjarni norðan Akureyrar þar sem
var mikið athafnalíf á fyrri hluta 20.
aldar. Fólki fækkaði síðan verulega
en íbúatalan árið 2003 var 60�70
manns.
Upplýsingar um dagskrá versk�
miðjunnar er að finna á verksmidj�
an.blogspot.com.
Hrafnkelsdag-
ur á Aðalbóli
Á laugardaginn verður hald�
inn sérstakur Hrafnkelsdag�
ur á Héraði í þriðja sinn. Páll
Pálsson leið�
sögumaður
hittir gesti
við Söluskál�
ann (N1) á
Egilsstöð�
um klukk�
an 13.00
og þaðan
verður farið
með rútu
um sögu�
slóðir Hrafnkelssögu. Rútu�
ferðin kostar 2.000 krónur fyrir
13 ára og eldri og skráning er í
síma 471 2788. Þátttakendurn�
ir munu ganga síðasta hluta
leiðarinnar heim í Aðalból þar
sem Stoppleikhópurinn mun
sýna leikþátt byggðan á sög�
unni klukkan 17.00. Að dagskrá
lokinni verður þátttakendum
boðið upp á grillmat.
Listasýning
í Grímsnesi
Á sunnudaginn er lokadagur
sýningar Ragnhildar K. Sand�
holt í Minni Borg í Grímsnesi.
Þetta er fyrsta einkasýning lista�
konunnar sem áður hefur tekið
þátt í nokkrum samsýning�
um. Á sýningunni gefur að líta
olíumálverk sem Ragnhildur
hefur unnið að á undanförnum
árum, en myndefnið er gjarn�
an sótt í Grímsnesið þar sem
Ragnhildur dvelur oft í sum�
arbústað með fjölskyldunni.
Sýningin er opin 11.00 til 17.00,
laugardaga og sunnudaga og
ber heitið Tré og perlur.
Þóra Karítas hefur nýlokið löng�
um degi í upptökum þegar við hitt�
umst á Oliver klukkan að verða átta
síðastliðið miðvikudagskvöld. Þetta
var fyrsti dagur af mörgum næstu
vikurnar í tökum á þáttaröðinni
Ástríður sem sýnd verður á Stöð 2
á komandi vetri. Um er að ræða tólf
þátta gamanseríu, en þó með róm�
antískum blæ, sem gerist innan ís�
lenska fjármálageirans.
Þóra segir fyrsta daginn hafa ver�
ið ótrúlega skemmtilegan. „Þetta er
svolítið nýtt og framandi en ég fékk
sem betur fer smá forsmekk þegar ég
lék í viku í Stelpunum þegar ég var
nýútskrifuð. Það var því smá stress
og fiðringur í maganum þangað til
við vorum búin með fyrsta atriðið.
Nú hlakka ég bara til framhaldsins,“
segir Þóra en hún útskrifaðist úr
Webber Douglas Academy of Dra�
matic Art í London árið 2006. Síðan
þá hefur hún meðal annars leikið í
Svörtum ketti hjá Leikfélagi Akur�
eyrar, hlutverk May í Fool 4 Love eft�
ir Sam Shepard sem var sýnt í Aust�
urbæ og færði henni tilnefningu til
Grímunnar sem leikkona ársins fyrr
í sumar, og Alegru í Engisprettum
sem frumsýnt var í Þjóðleikhúsinu
fyrr á árinu.
Einstakt tækifæri
„Það er ótrúlega flottur hópur af
fólki sem vinnur að þáttunum,“ segir
Þóra um samstarfsfólk sitt í Ástríði.
„Og þau eru svo vön sjónvarps�
vinnu, svo miklir fagmenn. Maður
þarf eiginlega bara að go with the
flow. Það er einstakt tækifæri fyrir
mig að komast inn í þetta og mik�
ill skóli.“ Leikstjóri þáttanna er Silja
Hauksdóttir en hún leikstýrði með�
al annars myndinni Dís og nokkrum
seríum af gamanþáttunum Stelp�
urnar sem sýndir hafa verið á Stöð
2. Þar fyrir utan hefur hún unnið að
fjölmörgum verkefnum í sjónvarps�
framleiðslu og auglýsingagerð. Hún
skrifar jafnframt handritið í sam�
vinnu við Ilmi Kristjánsdóttur og
Kötlu Margréti Þorgeirsdóttur og
hefur Sigurjón Kjartansson yfir�
umsjón með handritaskrifunum. Á
meðal annarra leikara í þáttunum
eru Ilmur, sem leikur sjálfa Ástríði,
Kjartan Guðjónsson, Rúnar Freyr
Gíslason, Friðrik Friðriksson og
Þórir Sæmundsson.
Að sögn Þóru er ekki kafað djúpt
í fjármálageirann sem slíkan í þátt�
unum. Þeir fjalli meira um ástina
og lífið og ekki sé ólíklegt að marga
langi hreinlega að verða ástfangnir
þegar þeir sjái þættina. „Mig hefur
lengi langað til að sjá svona rómant�
íska seríu gerða hér á Íslandi. Þáttur�
inn gerist í fjárfestingarbanka og þar
á allt sér stað sem á sér stað í raun�
veruleikanum. Það eru kaffi� og síg�
ópásur starfsmanna, slúðrið, ástin
og allt sem er að gerast á milli fólks.
Handritsteymið, Sigurjón, Silja, Ilm�
ur og Katla, eru líka orðin svo góð
í kómíkinni eftir Stelpuþættina og
fara svo skemmtilega leið að róm�
antíkinni. Maður vill náttúrlega ekki
segja of mikið um framvinduna en
það er ýmislegt held ég sem veldur
því að einhverjir muni bíða spennt�
ir eftir hverjum þætti til að vita um
örlög persónanna. Og það eru alveg
brilljant karakterar þarna.“
Ferðalagið sem ég ætlaði í
viðtal
Menning
Verksmiðjan á Hjalteyri Vonir
standa til að listastarfsemin í
verksmiðjunni brúi bil á milli
þéttbýlis og landsbyggðar og
landsbyggðar og umheims.
Þóra Karítas Árnadóttir
leikkona verður sífellt
meira áberandi í íslensku
leiklistarlífi en hún vakti
fyrst athygli sem þátta-
stjórnandi á Skjá einum í
árdaga sjónvarpsstöðvar-
innar. Þessa dagana er hún
í tökum á gamanseríunni
Ástríður sem sýnd verður
á Stöð 2 næsta vetur. Þá
vinnur hún að afar eftir-
tektarverðum, pólitískum
einleik sem byggist á lífi
ungrar hugsjónakonu sem
lést í Palestínu fyrir fimm
árum, eins og hún sagði
Kristjáni Hrafni Guð-
mundssyni frá.
Þóra Karítas Árnadóttir leikkona stund milli
stríða í tökum á þáttunum ástríður. „Leiklistin var
lengi bældur draumur en ég held að ef ég hefði
ekki kýlt á hana hefði ég setið uppi með svekkelsi
og hnút í maganum yfir því að hafa ekki þorað að
láta drauminn rætast.“
dV-mynd: ásgeir