Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2008, Page 36
föstudagur 1. ágúst 200836 Helgarblað DV
„Þegar við opnuðum kaffihúsið
árið 1999 var meiningin að vera
með kaffi, kleinur og jafnvel vöfflur.
En sú hugmynd hefur heldur betur
hlaðið utan á sig,“ segir Ólöf Hall-
grímsdóttir, bóndi á Vogum. „Við
byggðum okkur nýtt kúafjós á þess-
um tíma en þar sem við erum með
svo lítið land gátum við ekki haft
fleiri beljur. Því urðum við að leita
að öðrum leiðum til að skapa okk-
ur lífsviðurværi, því var ákveðið að
prufa að opna kaffihús fyrir gesti og
gangandi.“
Bjóða upp á svæðis-
bundinn mat
Í kaffihúsinu bjóða þau aðeins
upp á mat sem þau framleiða sjálf.
„Við bjóðum fólki upp á svæðis-
bundinn mat eða þann mat sem
við erum alin upp við, til dæm-
is reyktan silung og hangikjöt.
Það er mjög sterk hefð hér
í sveitinni fyrir reyk-
tum mat og er reyk-
ingarkofi á hverjum
einasta bæ,“ seg-
ir Ólöf. „Við bjóð-
um einnig upp á
hverabrauð sem
við bökum sjálf í
jarðhitanum. Það
er svipað með hvera-
brauðið og reykinga-
kofana hér í sveitinni að
flestir eru í því og það liggur við
að hver fjölskylda eigi sína eigin
holu til að baka í.“
Ólöf býr einnig til osta. „Við höf-
um alltaf haft áhuga á ostum. Við
fengum að gjöf danska bók með
uppskriftum að heimalöguðum
ostum. Eftir að við fengum bókina
fórum við að búa til osta úr okkar
mjólk. En mágkona mín er sú sem
sér mest um ostagerðina.“
Grænn fjölskyldurekstur
Ólöf sér ekki ein um alla vinn-
una en maðurinn hennar og fjög-
ur börn, ásamt bróður hennar, eig-
inkonu hans, sonum þeirra og
systur hennar, koma öll
að einhverju leyti að
fyrirtækinu. Því má
segja að reksturinn
á Vogafjósi sé fjöl-
skyldufyrirtæki.
„Það má segja
að það sem við bjóðum upp á sé
grænn matur því í honum eru eng-
in aukaefni. Við notum aðeins af-
urðir frá okkur eins og í gúllassúp-
una sem við bjóðum upp á, þar
notum við bara kjöt frá okkur. Við
viljum að gestirnir viti hvað þeir
eru að borða.“
Reka gistiheimili
Árið 2005 missti maður Ólafar
vinnuna þegar kísilverksmiðjunni
var lokað. Eftir það fóru hjónin
að spá í hvað þau gætu gert, hvort
hann ætti að fara að vinna á Kára-
hnjúkum eða leita sér að vinnu
annars staðar. „Þetta var mikið
hugsað og rætt en ákvörðunin var
sú að byggja gistihús á landinu
okkar. Við byggðum tvö bjálkahús
frá Eistlandi. Í gistiheimilinu eru
tuttugu herbergi með baði,“ segir
Ólöf. „Þeir sem gista hjá okkur fá
morgunmatinn í Vogafjósi. Á með-
an þeir eru að borða morgunmat-
inn horfa þeir á mjaltirnar í gegn-
um glerið.“
Þeir sem fara til þeirra hjóna í
Vogafjós eru flestallir að sækjast
eftir einhverju öðruvísi. „Við erum
kannski öðruvísi af því að við búum
í Mývatnssveit,“ segir Ólöf og hlær.
Martha Stewart í Vogafjósi
Nokkrir heimsþekktir einstakl-
ingar hafa kíkt í heimsókn í Voga-
fjós. Martha Stewart er ein þeirra.
„Hún kom með okkur að taka upp
hverabrauð. Henni fannst þetta
mjög merkilegt. Við fórum svo
í fjósið og smökkuðum á hvera-
brauðinu og gáfum henni ískalda
mjólk með,“ segir Ólöf. „Við gáfum
henni svo rétt af matseðlinum sem
kallast Vogafjós speciality. Sá rétt-
ur er sýnishorn af öllum þeim af-
urðum sem við framleiðum. Reykt-
ur silungur, grafinn silungur, hrátt
hangikjöt, mossarellaostur, fetaost-
ur, hverabrauðið, heimagerð blá-
berjasulta ásamt sultum og með-
læti sem við gerum líka.“
Þegar blaðamaðurinn spyr
hvernig Mörthu Stewart hafi líkað
starfsemin svarar hún ánægð: „Ég
held að henni hafi litist alveg ágæt-
lega á þetta. Hún sagðist eiga vina-
fólk í Bandaríkjunum sem er með
örfáar kýr eins og við og hún sagðist
ætla að segja þeim frá þessari kaffi-
húsahugmynd,“ segir Ólöf og bætir
stolt við að Martha hafi sagt: „Mér
finnst þetta alveg frábært að leyfa
fólki á kaffihúsi að horfa á kýrnar
og mjaltir í gegnum glugga.“
Vogafjós komið til að vera
Rekstur Vogafjóss hefur far-
ið stigvaxandi síðustu ár og hafa
þau bætt við sig ýmsum afurð-
um. „Vogafjós er komið til að vera,
eða ég vona það. Draumurinn er
að færa úr kvíarnar og við stefn-
um að því að stækka kaffihús-
ið og bæta vinnuaðstöðuna líka.
Þetta er sprungið eins og þetta er
í dag,“ segir Ólöf. „Stóri draumur-
inn ef við stækkum er að opna litla
sveitabúð.“ Gistihúsið gengur von-
um framar en fólk getur pantað
gistingu með morgunmat. „Það er
pantað með margra mánaða fyrir-
vara, en Íslendingar hringja jafnvel
degi áður en þá er oftast fullt,“ segir
Ólöf að lokum.
Konan
HæfileikaR VikunnaR
Íslenska söngkonan Lay Low hefur nú verið valin af þýska tónlist-
artímaritinu stern í hópinn „Hæfileikar vikunnar“ en í hverri viku
kynnir tímaritið þrjá unga og upprennnandi listamenn á heima-
síðu sinni. auk þess er skellt inn tónlistarmyndbandi frá viðkom-
andi tónlistarmanni og gefst notendum síðunnar kostur á að kjósa
þann sem þeir telja að sé besti listamaður vikunnar. Með umfjöll-
uninni um Lay Low fylgir myndbandið við lag hennar Please don‘t
Hate Me og verður kunngert í lok vikunnar hver sigraði í kosning-
unni. Hægt er að kjósa Lay Low inni á heimasíðunni stern.de.uMsjón: kOLBrún PáLÍna HELgadóttIr kolbrun@dv.is
Ólöf Hallgríms-
dóttir er uppalin í
Vogum í Mývatns-
sveit. Árið 1999
opnaði hún ásamt
fjölskyldu sinni
kaffihús í fjósinu. Á
kaffihúsinu bjóða
þau upp á veitingar
sem þau framleiða
sjálf. Árið 2005
byggðu þau gisti-
heimili á landinu
og gengur rekstur-
inn vel.
Kaffihús
í fjósi
upplýsingaskilti skiltið
var gert til bráðabirgða í
upphafi en það stendur
enn á sínum stað.
Áttu þér
drauma-
starf?
Áttu þér draumastarf sem þig
langar að vinna við alla ævi? Er
eitthvað sem stendur í vegi fyr-
ir því? Hér verður sagt frá sjö
góðum ráðum fyrir þær konur
sem vilja og eru tilbúnar til að
láta verða af því að fá drauma-
starfið
n menntun
Ef þú ert ekki menntuð í því sem
þig langar að fara að vinna við,
endilega aflaðu þér hennar sem
fyrst. Hægt er að fara í kvöldskóla
eða fjarnám og því þarftu ekki að
hætta að vinna á meðan. Einnig er
hægt að fara á námskeið sem
tengist draumastarfinu.
n Heimsæktu staðinn
Ef draumastarfið er ekki í nágrenni
við þig gerðu þér þá ferð til að fara
og skoða vinnustaðinn. Ef
draumastarfið er í öðru bæjarfé-
lagi er gott að afla sér upplýsinga
um bæinn eða landið sem
vinnustaðurinn er á. Þekkirðu
einhvern sem hefur unnið eða
vinnur við draumastarfið þitt? Þá
hefur þú aðila á staðnum sem þú
getur haft samband við.
n upplýsingasöfnun
aflaðu þér upplýsinga um fagið
eða bransann sem þú vilt starfa
við. Þú getur meðal annars gert
það með því að leita þér
upplýsinga á bókasafninu eða á
netinu.
n Gerðu áætlun
gott er að gera áætlun bæði
fjárhagslega og fleira. Hafðu
samband við ráðgjafa á ráðningar-
skrifstofu og fáðu leiðbeiningar
um það sem þú ætlar að gera.
Einnig er gott að hafa samband
við bankaráðgjafa og gera
fjárhagsáætlun, gott er að vita
hvernig og hvort þú hafir efni á að
fylgja draumunum.
konan á bakvið Vogafjós
ólöf Hallgrímsdóttir er konan
á bak við Vogafjós, sem er
fjölskyldufyrirtæki og komið
til að vera.
Ljósmyndari: Ari Tryggvasvon
Hverabrauð
Hver fjölskylda er
með sína holu til að
búa til hverabrauð.
Gistihús
árið 2005 byggði fjölskyldan
gistihús á landinu og er nánast
alltaf upppantað hjá þeim.
Myndir: Úr einkasafni