Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2008, Blaðsíða 48
föstudagur 1. ágúst 200848 Helgarblað DV
Eftir að hafa setið nokkra merki-
lega fyrirlestra hjá Þórarni Tyrfings-
syni yfirlækni á Vogi þar sem hann
ræddi meðal annars um starfsemi
heilans í kjölfar fíkniefnanotkunar,
ákvað leikstjórinn Gunnar Sigurðs-
son að setja upp svokallaða skemmti-
fræðslu fyrir grunnskólanema.
Úr varð verkið Hvað ef? sem sýnt
hefur verið undanfarin þrjú ár við
mjög góðar undirtektirverið og tólf
þúsund ungmenni á aldrinum þrett-
án til sextán ára hafa séð. Í vetur verð-
ur verkið svo sett upp fyrir ungmenni
á Englandi en það er knattspyrnuliðið
West Ham sem meðal annars styrkir
Gunnar og leikhópinn til uppsetning-
ar á verkinu þar í landi, auk þess sem
leikmenn liðsins leggja sitt af mörk-
um í verkinu.
Eftir stórar áheyrnarprufur á Eng-
landi hafa fimm ungir og efnilegir
breskir leikarar verið valdir til að leika
í bresku útgáfunni sem heitir á ensku
What If? og er leikhópurinn nú stadd-
ur á landinu við æfingar í Hafnafjarð-
arleikhúsinu.
Hollywood-leikari í frystihúsi
„Ég fluttist til Englands í nám í Em-
erson College árið 1994 en fór þaðan
í nám við Bristol Old Vic leiklistar-
skólann þar sem ég lærði leikstjórn.
Síðastliðin tólf ár hef ég svo unnið
við hitt og þetta tengt leiklistinni. Ég
hef meðal annars leikstýrt ýmsum
áhugaleikhópum um land allt, sett
upp barnaleiksýningar, unnið við
sjónvarpsmyndir og sett upp verk í
Borgarleikhúsinu,“ segir Gunnar en
þetta er ekki í fyrsta skipti sem hann
flytur breskan leikhóp til landsins.
„Árið 1997 tók ég breska útskriftar-
nemendur úr Bristol hingað heim og
við settum upp Northern Lights sem
heitir Ísaðar gellur á íslensku. Verk-
ið fjallaði um þrjár stúlkur frá Hull á
Englandi sem komu til Íslands til að
vinna í fiski á Súgandafirði. Þá fór ég
með hópinn á Tálknafjörð þar sem
þau æfðu leikritið og unnu í frystihúsi
til að kynnast þessu frá fyrstu hendi.“
Með í þeim hópi var leikarinn
Oded Fehr sem hefur getið sér gott
orð í Hollywood og hefur meðal ann-
ars leikið í kvikmyndinni Deuce Bigal-
ow, Male Gigalow og The Mummy.
Í stöðugri þróun
„Síðastliðin þrjú ár hef ég verið að
vinna að verkinu Hvað ef? sem við
köllum skemmtifræðslu. Það er for-
varnaverkefni sem við vildum ekki
kalla forvarnir því okkur finnst það
ekki gott orð svo við ákváðum að
skýra það frekar skemmtifræðslu,“
segir Gunnar.
Leikritið er um það bil klukkutíma
langt og tekur á hinum ýmsu vanda-
málum ungdómsins í dag. Meðal
annars tóbaks- og fíkniefnanotkun,
kynferðislegu ofbeldi og fleiru.
„Ég er aðeins vinklaður inn í SÁÁ
og þekki vel til þeirrar starfsemi. Mér
fannst svo áhugaverðir fyrirlestrarnir
hans Þórarins og fannst alveg tilval-
ið að setja á svið það sem hann var
að tala um. Ég kallaði þá saman Felix
Bergsson, Guðmund Inga Þorvalds-
son, Orra Hugin Ágústsson, Brynju
Valdísi Gísladóttur, Valgeir Skagfjörð
og Einar Má Guðmundsson rithöf-
und. Við settumst saman í hring og
unnum upp úr alls kyns hugmynd-
um. Í seinni tíð hafa svo bæst í hóp-
inn Skúli Gautason, Jóhann G. Jó-
hannsson og Ester Jökulsdóttir. Við
töluðum við unglinga, fórum í gegn-
um meðferðarprógrömm og bjuggum
til þessa skemmtifræðslu. Við höfum
verið að þróa þetta allan þennan tíma
og breytt og bætt eitt og annað. Þetta
hefur gengið mjög vel og krakkarnir
fílað sýninguna vel.“
Góð meðferðarúrræði á Íslandi
Sjálfur segir Gunnar þekkja til
fíkniefnaheims ungmenna frá fyrstu
hendi.
„Ég hef þurft að kljást við ýmislegt
á þessum sviðum en sem betur fer er
hér á Íslandi mjög gott fólk og góðar
meðferðarstöðvar hjá SÁÁ og Götu-
smiðjunni og fleiri stöðum. Þetta eru
mjög góðir staðir og mjög hæft starfs-
fólk bæði í barnaverndargeiranum og
annars staðar sem nennir að vinna
þessa vinnu. Mér finnst það svo æð-
islegt sjálfum og er svo ánægður með
að það sé til fólk sem nennir þessu því
ég veit að þetta er ekki gert fyrir laun-
in.“
Fræðsla án predikana
Gunnar segir krakkana fá mikla
fræðslu út úr verkinu án þess þó að
verið sé að predika yfir þeim.
„Við notum öll meðul leikhúss-
ins til að fræða. Við lögðumst í mikla
rannsóknarvinnu áður en við skrif-
uðum verkið og töluðum meðal ann-
ars við hátt í hundrað unglinga sem
sögðu okkur hvernig fræðslu þeir
myndu helst vilja sjá. Númer eitt
sögðu þau skemmtið okkur, númer
tvö fræðið okkur og síðast en ekki síst
ekki skamma okkur,“ segir Gunnar en
leikritið er klukkutíma langt og bygg-
ir á tveimur sögum.
„Önnur sagan fjallar um ung-
an dreng sem endar í fangelsi vegna
dópneyslu og hin fjallar um unga
stúlku sem fremur sjálfsmorð. Allt
sem við segjum í verkinu er satt og
rétt nema einn brandari,“ segir Gunn-
ar á léttu nótunum.
„Við ætlum að halda áfram með
þetta í vetur og það kom upp sú hug-
mynd hjá okkur að fara með þetta
víðar. Upphaflega var hugmyndin sú
að fara með þetta til Svíþjóðar en sök-
um tengsla við Bretland og þar sem
ég lærði þar komst ég þar í samband
við fólk sem hefur mikinn áhuga á
verkinu. Í kjölfarið fórum við að leita
okkur að fjármögnun og höfum með-
al annars fengið styrk úr Menningar-
sjóði Margrétar Björgólfsdóttur. Við
höfum fengið góðan stuðning það-
an. Í beinu framhaldi af því fórum
við í viðræður við knattspyrnufélag-
ið West Ham. Þeir eru mikið í svona
samfélagsstarfi í Bretlandi og þeim
leist vel á þessa hugmynd, að blanda
saman skemmtun og fræðslu.“
Aldrei dauð stund
Verkið er unnið í samstarfi við
breskan leikhóp sem heitir Time
Won’t Wait.
„Við erum að vinna með konu að
nafni Sarah Samson sem hefur und-
anfarin tíu ár verið mikið að vinna í
þessum bransa og unnið mikið við
unglingaleikhús. Nú eru hjólin far-
in að snúast og við komin með fimm
breska leikara hingað heim til að æfa
verkið.“
Gunnar segir sömu hugmynd-
ina og aðferðafræðina notaða við að
setja verkið upp í Bretlandi og hér
heima þó textinn í leikritinu breyt-
ist aðeins. „Það eru auðvitað bresk-
ar áherslur í þessu núna en leikritið
er eins og það er sett upp hér heima.
Stuttir sketsar og upplýsingar og við
pössum að þetta verði aldrei leiði-
gjarnt. Hver sena er einungis tvær
mínútur og mikið að gerast í einu á
sviðinu. Við notum allt sem gott leik-
hús hefur upp á að bjóða, vídeó, tón-
list og alla mögulega miðla.“
Leikhópurinn eins og
fullskipað band
Það er lið valinkunnra ungra og
efnilegra breskra leikara sem fer með
hlutverkin í What if? en til að velja í
leikhópinn voru haldnar áheyrnar-
prufur á Englandi þar sem mættu
talsvert fleiri en Gunnar átti von á.
„Við auglýstum áheyrnarprufurn-
ar úti og vorum í fjóra daga með þær.
Við áttum ekki von á því að svona
margir myndu sækja um og hvað þá
hversu mikið af efnilegu fólki mætti í
prufurnar. Við Guðmundur Ingi tón-
listarstjóri fórum út í maí og tókum
250 krakka í áheyrnarprufur. Upp-
haflega ætluðum við bara að hafa
fjóra leikara en af því að þetta voru
svo hæfileikaríkir krakkar enduðum
við með fimm leikara. Þá vorum við
komin með fullskipað band,“ segir
Gunnar á léttu nótunum.
Leikhópurinn kom til Íslands
síðastliðinn sunnudag og er heldur
betur hissa á góða veðrinu að sögn
Gunnars. „Þau skilja bara ekkert í því
af hverju þetta heitir Ísland og vilja
helst bara vera úti að æfa,“ segir hann
hlæjandi en hópurinn heldur til í
Hafnarfjarðarleikhúsinu.
„Þetta eru allt þrælvanir krakkar
sem hafa verið í svipuðum verkum
á Englandi og verið að fara í skóla og
sýna verk.“
Knattspyrnumenn
með yfirlýsingar
What If? verður frumsýnt þann 24.
október næstkomandi í Bretlandi en
þar á undan segir Gunnar að verði
sýndar um fimmtán forsýningar í
New Ham-hverfinu.
„Við erum búin að gera samning
við fjórar breskar félagsmiðstöðvar
eins og er og komum til með að sýna
tíu til tólf sýningar á hverjum stað.“
Gunnar segir knattspyrnufélagið
West Ham vera í miklu samstarfi við
leikhópinn.
„Það eru aðilar frá West Ham að
koma hingað heim til að skoða verk-
ið. Auk þess fáum við einhverjar
sniðugar yfirlýsingar frá leikmönn-
um West Ham sem við fellum inn í
verkið.“
Fjórða leikárið í vetur
Á svipuðum tíma og What if? verð-
ur frumsýnt í Bretlandi hefur íslenski
leikhópurinn sitt fjórða leikár með
verkið hér heima. „Við höldum áfram
með Hvað ef? heima í vetur og byrj-
um líklegast á því á svipuðum tíma
og það verður frumsýnt úti, í októb-
er. Við erum að afla okkur fjármagns
núna en í upphafi fór ég í það að fá
fyrirtæki til að fjármagna sýningarn-
ar. Til að mynda keypti Actavis sýn-
ingar fyrir alla skólana í Garðabæ,
útibú Landsbankans í Mjódd fyr-
ir alla skóla í Breiðholti, Vífilfell fyr-
ir skólana í Árbænum og svo koll af
kolli. Núna er hins vegar orðið erf-
iðara að gera þetta svona því eins og
menn kannski vita eiga fyrirtækin
ekki mikla peninga þessa dagana. Við
erum því að reyna að fara inn í ein-
hverja listasjóði til að fá fjármagn því
það koma jú alltaf nýir áhorfendur.
En þetta hefur allt gengið svo
rosalega vel hingað til og ég sendi
bara þakklæti frá mér og öllum sem
hafa staðið að þessu verki til þeirra
sem hafa hjálpað okkur að gera þetta
að veruleika.“
Allar nánari upplýsingar um sýn-
inguna er hægt að nálgast á heima-
síðunni 540floors.com auk umsagna
ungmenna um sýninguna.
krista@dv.is
Undanfarin þrjú ár hefur leikhópurinn 540 gólf sýnt ungmenn-
um landsins skemmtifræðsluna Hvað ef ? við gríðargóðar und-
irtektir. Um er að ræða forvarnaverkefni sem tekur á hinum
ýmsu vandamálum ungdómsins á hressandi og skemmtilegan
hátt. Í vetur verður leikritið sett upp í Bretlandi en verkið er
meðal annars styrkt af knattspyrnufélaginu West Ham.
Íslensk
skemmti-
fræðsla Í
Bretlandi
Leikstjórinn Gunnar Sigurðsson
Hefur síðastliðin þrjú ár unnið að skemmti-
fræðslu fyrir ungmenni við góðar undirtektir.
Breski leikhópurinn við æfingar í Hafnarfjarðarleik-
húsinu fimm ungir og efnilegir leikarar frá Bretlandi voru
valdir úr hópi tvö hundruð og fimmtíu umsækjenda til að
leika í bresku útgáfunni af Hvað ef?
Tónlistarstjórinn á
trommunum
guðmundur Ingi,
söngvari atómstöðv-
arinnar, er tónlistar-
stjóri sýningarinnar.