Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2008, Qupperneq 76
Helgarblað DVföstudagur 1. ÁgÚst 200876
mælir með...
n Rokk á oRgan
Á skemmtistaðnum Organ verður afmælishátíð alla
helgina. tónleikarnir hefjast klukkan tíu og meðal
þeirra hljómsveita sem spila verða Jan Mayen, Æla,
dikta, skátar og Mínus. tónleikarnir verða til
klukkan 02.30. 1.000 krónur kostar inn á hvert
kvöld fyrir sig.
n InnIpúkInn á naSa
um helgina verður mikið fjör á
Nasa þar sem hátíð reykvíkinga
um verslunarmannahelgina, Innipúkinn, verður í
fullum gangi. Á föstudeginum spila Hjálmar,
Megas, dr. spock, Hjaltalín, Benni Hemm Hemm,
dísa, Múgsefjun og geir Ólafs. Húsið opnað klukkan
20.00 og er aldurstakmark 20 ár. Helgin kostar 3.900
krónur.
n Jack LIve á DILLon
alla helgina verður stuð í garðinum hjá dillon.
grillað verður á staðnum og selt á spottprís. Á
föstudeginum spila meðal annars Jeff Who?,
atómstöðin og shadow Parade. Hægt er að kaupa
miða á stakt kvöld á 1.000 krónur. umboðsaðili Jack
daniels býður upp á skemmtilegar uppákomur
og verð lækkar á veitingum tímabundið
þegar gleðitíminn gengur í garð.
n BLúSað á pRIkInu
fyrir þá sem eiga ekki neinn pening er
málið að fara á dillon því þar kostar
ekkert inn. Á föstudeginum
byrjar verslunarmannahelgin
á Prikinu klukkan 10.00 á
tónleikum með Blúsband-
inu Ketti. að því loknu
tekur plötusnúður-
inn danni deluxe
við og heldur
uppi fjörinu fram
á rauða nótt.
n DaLton og DJ. ÓLI geIR á 800BaR
SeLfoSSI
Á 800bar á selfossi á laugardagskvöldið má
búast við miklum hita og svita því hljómsveit-
in dalton og dj. Óli geir ætla að halda uppi
fjörinu. Böddi, söngvari hljómsveitarinnar
dalton, hefur verið að semja ný lög að
undanförnu og dj. Óli geir var í
tyrklandi að vörka tanið. dragið
fram dansskóna og komið út á dansgólfið því við
lofum góðri stemningu.
n DJ páLL ÓSkaR í ka-heImILInu á akuReyRI
Hinn eini og sanni dj Páll Óskar verður í Ka-
heimilinu á akureyri á laugardagskvöld. Páll Óskar
blandar saman nýjustu og heitustu dans-
tónlistinni við hin klassísku partílög
fyrr og síðar. Páll Óskar á það einnig
til að sleppa sér og taka lagið sjálfur við góðar
undirtektir gesta. Pússið skóna, skellið geli í hárið
og kveikið á neon-ljósunum.
Ballið stendur frá klukkan ellefu til þrjú og kostar
fimmtán hundruð krónur inn. aldurstakmark er
sextán ár.
n euRoBanDIð á pLayeRS
friðrik Ómar og regína Ósk ásamt fríðu föruneyti í
Eurobandinu mæta á Players í Kópavogi á laugardagskvöldið.
Hverjum finnst ekki gaman að dilla sér við gömul sem og ný Eurovision-lög?
Eurovison-fari danmerkur mun túra með Eurobandinu um verslunarmanna-
helgina og verður gaman að fá nýjan Eurovision-fara til liðs við Eurobandið.
Ballið byrjar klukkan hálf eitt og er gott að mæta tímanlega til að missa ekki
af sínu uppáhaldseurovision-lagi.
n tRevoR LoveyS á tungLInu
trevor Loveys er þekktastur fyrir að hafa verið annar
helmingur tvíeykisins switch sem hefur meðal annars
remixað lög eftir robbie Williams, Chemical Brothers
og Jimi Hendrix. tunglið er góður klúbbastaður og
því ættu fæstir að efast um að klúbbastemning nái
hámarki. Ásamt trevor Lovers munu þeir Mr. Cuellar,
ghozt og trix þeyta skífum. Miðaverð við hurð er tvö
þúsund og fimm hundruð krónur. Þetta er klúbba-
kvöld sem fæstir ættu að láta framhjá sér fara.
föStuDaguR LaugaRDaguR
HHHHH
Hvaðeraðgerast
NÝ
PR
EN
T
eh
fBYGGÐASAFN
HÚNVETNINGA OG STRANDAMANNA
Reykjum Hrútafirði
Hákarlaveiðar
við Húnaflóa
Shark Fishing Exhibition
Opið daglega frá kl. 10:00 - 18:00 frá 1. júní til 31. ágúst
Sími 451 0040 / 863 4287 www.simnet.is/reykirmuseum
HHHHH
HHHHH
HHHHH
Tónleikar Damien Rice á
NASA
„Ég held að ég hafi aldrei á ævinni feng-
ið jafnmikla gæsahúð og ég er ekki frá
því að húðin sé enn að jafna sig,“ sagði
gagnrýnandi dV.
Dísa
frábær frumraun. dísa er komin til að
vera.
Café Mílanó í Faxafeni
Prýðilegt kaffi. Hefur það fram yfir mörg
kaffihús í miðbænum að bjóða upp á
mikið rými og nokkra mjúka og þægi-
lega stóla.
Bókin Marley og ég eftir
John Grogan
Ágætis afþreying. tilvalin í sumarbú-
staðinn.
SunnuDaguR
n RottweILeR á pRIkInu kL. 00.00
Það er líka verslunarmannhelgi í miðbænum. Á Prikinu á
sunnudagskvöldinu verður ekta þriðji í djammi. rottweilerhundarn-
ir koma fram og gera allt brjálað eins og vanalega, en strákarnir eru
þekktir fyrir að halda uppi blússandi stemningu á Prikinu. síðan eru
það Introbeats og dj Kocoon sem halda uppi sveittri stemningu
langt fram eftir nóttu.
n ReynSLuBoLtaR á kaffI-
BaRnum kL. 22.00
Það verður troðið út úr dyrum
á Kaffibarnum á sunnudags-
kvöldinu – eins og öll önnur
kvöld. Á þriðja djammdegi
eru það tveir reynsluboltar
sem taka að sér að skemmta
kaffibarsrottunum fram eftir
öllu. gísli galdur og Árni E eiga
ekki eftir að valda neinum
vonbrigðum.
n DJ anna BRá á Q-BaR kL. 00.00
Ljóshærða bomban dj anna Brá bætir,
hressir og kætir á Q-bar á þriðja
djammdegi. anna Brá á ekki
eftir að valda neinum
vonbrigðum á dansgólfinu.
stúlkan gleður fólk með
blandi af r&B og
danstónlist.
Það verður
megastuð á 22 í
kvöld. Það er nóg
danspláss á 22 og í kvöld er það plötusnúð-
urinn Manny frá Bandaríkjunum sem heldur
uppi blússandi stemningu fram í rauða
nóttina. Endalaus gleði, endalaust stuð.