Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2008, Blaðsíða 86
föstudagur 1. ágúst 200886 Síðast en ekki síst DV
Bókstaflega
„Það er svo mikið prósak að
tengja við þjóðina og
sérstaklega ef
maður hefur
verið
aðeins til
baka.“
n Bjartmar
guðlaugsson
tónlistarmaður
spilar á Organ á
laugardaginn og er spenntur fyrir
því að spila fyrir landann. - dV
„Ég er
hrifinn af
grasi en
ekki til
reykinga
samt.“
n sigurður
guðmundsson
versl- unarmaður sem þöku-
lagði ráðhústorgið á akureyri í
skjóli nætur í vikunni. - dV
„Ég hef aldrei séð ann-
að eins. Það líða um það bil
tvær til þrjár mínútur á milli
eldinga og það fylgir þessu
gríðarlega mikil úrkoma.“
n gunnar sigurðsson, íbúi á
djúpavogi, um þær þrumur og
eldingar sem hann varð vitni að í
bæjarfélaginu í fyrradag. - Vísir
„Þetta hefur aldrei gerst
áður, hann bara rauk á dyr.“
n sverrir stormsker, tónlistar- og
útvarpsmaður, var að taka viðtal við
guðna ágústsson á
útvarpi sögu
þegar hann rauk
á dyr. - dV
„Þetta var
hjúkrunar-
kona sem
birtist mér til
dæmis þegar ég var veik
eða leið illa. Ég var aldrei
hrædd við hana þótt ég
gerði mér grein fyrir að hún
væri ekki þessa heims og
mér leið alltaf betur þegar
hún var nær-
stödd.“
n guðbjörg
sveinsdóttir
miðill talar
við Vikuna í
opinskáu
viðtali um líf
sitt. - Vikan
„Við fórum alltaf á flotta
staði og það var skemmti-
legt að láta stjana við sig.“
n Kristrún ösp Barkardóttir talar um
samband sitt við fótboltamanninn
dwight Yorke í séð og heyrt.
„Þetta voru
langbestu
tónleikarnir
sem við
höfum
spilað
hérna heima
og langbesta
krádið. Það var
alveg troðið og það var eins
og að standa fyrir framan
flugvélahreyfla þegar
fólkið öskraði.“
n örn Elías guðmundsson, betur
þekktur sem tónlistarmaðurinn
Mugison, í viðtali við séð og heyrt.
„Ég opnaði
síðan
augun og
það fyrsta
sem ég sá
var
lögreglu-
maður. Hann
tilkynnti mér
að hann viki ekki frá mér.“
n Hildur theódórsdóttir lenti í
bílslysi og var handtekin í kjölfarið.
Hún er sár og reið yfir meðferðinni.
- dV
Hver er maðurinn?
„Hjálmar Gunnar Sigmarsson.“
Hvað drífur þig áfram ?
„Það er jafnrétti, femínismi, réttlæti,
virðing, skilningur, góð samskipti og
forvitni.“
Helstu áhugamál?
„Þau eru femínismi, samfélagsmál að
öðru leyti, tónlist, lélegir nördalegir
sjónvarpsþættir, matur og ferðalög.“
Átt þú fyrirmynd í lífinu?
„Já, það mikið af hugrökku fólki sem
ég hef haft kynni af. Svo er mikið af
fallegu og hugrökku fólki í kringum
mig og mikið af konum sem hafa gef-
ið mér andagift alla tíð og svo mitt
nánasta fólk.“
Hver er þinn helsti hæfileiki?
„Mannleg samskipti, opinn fyrir nýj-
um hlutum og er til í að takast á við
ný verkefni.“
Hefur þú gaman af því að elda?
„Ég hef mjög gaman af að elda, það er
ein af mínum ástríðum.“
Hvernig eyðir þú frítímanum?
„Sinni vinum, áhugamálum og fem-
ínisma.“
Hvaða tónleika fórst þú á síðast?
„Það voru Nei-tónleikarnir sem voru
síðastliðið föstudagskvöld.“
Hvað er skemmtilegast í
sjónvarpinu?
„Ég verð að viðkenna veikleika minn
fyrir Top Gear á Skjá einum. Það er
ekki út af bílaáhuga því ég hef ekki
áhuga á bílum.“
Slekkur þú á útvarpinu þegar
Baggalútslagið er spilað?
„Ég hef ekki heyrt það í útvarpinu.”
Verður þú fyrir aðkasti fyrir
að vera femínisti?
„Ég fæ að heyra alls konar komment
og spakmæli, spurður af hverju og alls
konar hluti. Ég er oft spurður út í mis-
viðeigandi hluti.“
Er femínisti ekki misskilið
hugtak?
„Jú, ég mundi segja að það sé of mik-
ið af ranghugmydum um femínisma.
Femínismi er skilgreining á jafnréttis-
sinna, karli eða konu, sem vill ná jafn-
rétti í samfélaginu og vill gera eitthvað
í því.“
Hver er þín eftirminnilegasta
verslunarmannahelgi?
„Það kæmi ekki óvart að það eigi eftir
að verða þessi. En ég mundi segja árið
2006 því þá fórum við í fyrsta skiptið
með Nei-átakið til Akureyrar.“
Verðið þið sýnileg um
verslunarmannahelgina?
„Já, við verðum á Akureyri og í Vest-
mannaeyjum með hópa. Verðum
einnig sýnileg fyrir helgi í Reykjavík.“
Hvað er hægt að gera til að
sporna gegn nauðgunum?
„Það er því miður engin ein töfralaus
en við leggjum áherslu á ábyrga og
upplýsta umræðu um nauðganir og
alvarleika þeirra og það sé mikil for-
senda fyrir svo mörgu öðru í tengsl-
um við þessa baráttu. Ef við viljum
takast á við allt annað í tengslum við
kynferðislegt ofbeldi verðum við alla-
vega að hafa umræðuna á skynsam-
legum nótum og því miður er margt í
þessum málaflokki óunnið.“
Heldur þú að herferðin virki?
„Við höfum fundið fyrir miklum
breytingum í umræðu út í viðmótið
sem við höfum fengið að vera vitni
að eða taka þátt í. Stuðningurinn við
okkur hefur stóraukist með hverju
ári. Fólk hefur samband eða kemur
til okkar og þakkar okkur fyrir þetta
starf og jafnvel er verið að faðma
okkur úti á miðri götu til að þakka
okkur fyrir starfið. Þetta virkar í þeim
skilningi að hafa áhrif á umræðuna,
þetta er það erfitt málefni og við eig-
um langt í land. Draumurinn er að
uppræta nauðganir úr samfélaginu
en við eigum langt í land með það og
því viljum við hvetja alla til að taka
þátt í baráttunni.“
Hvað er fram undan hjá þér?
„Þegar þetta er búið að halda áfram
að sinna öðrum hlutum.“
MaÐUR
DagsINs
Draumurinn er að
uppræta nauðganir
Hjálmar Gunnar Sigmarsson
er ráðskona karlahóps femínistafélags Íslands. Hjálmar
stendur einnig á bak við átakið Karlar segja nei sem er
átak gegn nauðgunum á Íslandi.
Ágætis veður víðast hvar
Sólin brosir til landsmanna um
nær allt land við upphaf verslun-
armannahelgar. Þá verður líka
ágætis hiti þrátt fyrir að líklega
falli engin hitamet um helgina.
Þeir sem elta sólina ættu helst að
veðja á vestanvert og norðanvert
landið. Búast má við meiri skýjum
og sums staðar rigningu sunnan
til á landinu.
lau sun mán þri
vindur í m/s
hiti á bilinu
stykkishólmur
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
lau sun mán þri
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
<5 Mjög hægur vindur 5-10 Fremur hægur vindur. 10-20 Talsverður vindur 20-30 Mjög hvasst,
fólk þarf að gá að sér. >30 Stórviðri, fólk ætti ekki að vera á ferli að nauðsynjalausu.
höfn
reykjavík egilsstaðir
ísafjörður vestmannaeyjar
Patreksfjörður Kirkjubæjarkl.
akureyri selfoss
sauðárkrókur Þingvellir
húsavík Keflavík
fös lau sun mán
hiti á bilinu
Kaupmannahöfn
hiti á bilinu
Osló
hiti á bilinu
stokkhólmur
hiti á bilinu
helsinki
hiti á bilinu
London
hiti á bilinu
París
hiti á bilinu
Berlín
hiti á bilinu
Palma
fös lau sun mán
hiti á bilinu
tenerife
hiti á bilinu
róm
hiti á bilinu
amsterdam
hiti á bilinu
Brussel
hiti á bilinu
Marmaris
hiti á bilinu
ródos
hiti á bilinu
san Francisco
hiti á bilinu
New York
hiti á bilinu
Barselóna
hiti á bilinu
Miamive
ðr
ið
ú
ti
í
he
iM
i í
d
ag
O
g
Næ
st
u
da
ga
n vindaspá á hádegi á morgun. n hitaspá á hádegi á morgun. VEðurstOfa Íslands
veður
veðrið í dag KL. 18 ...Og Næstu daga
2-4 2-3 1-2 1-2
14/15 12/14 11/14 12/13
2 2-3 3-1 6-5
15/17 12/14 12/14 10/14
1-2 1-2 2-0 2-4
15/16 13/14 12/14 11/13
1-3 2-3 1-2 1-5
13/20 12/16 12/16 10/14
3-4 2-4 3-4 5
15/14 11 9/11 10/11
3-2 1-2 2 2-3
15/19 14/17 12/16 11/14
3-2 2 2 2
12/18 9/15 8/14 7/12
3-5 4-5 2-4 3-5
10 9/10 8/10 8/10
9-6 4-3 2 3-4
12/15 10/15 10/14 10/14
3-2 0-1 1-2 1-2
12/13 11/13 11/12 10/11
8-4 3-5 6-3 6-7
12/15 12/15 12/15 11/15
1-2 2 2 1
17/20 15/18 14/17 14/16
2-4 3 2-3 2
15/18 13/18 12/17 12/16
4-5 3 2-3 1-2
13/14 12/13 11/13 12/13
18/25 17/22 16/21 16/20
15/24 16/20 16/21 13/18
17/25 18/19 16/18 16/17
14/23 15/19 11/16 17/18
15/21 15/22 14/23 15/23
17/24 19/25 18/23 18/21
19/32 17/25 18/27 16/22
23/26 23/29 22/29 24/29
22/27 24/30 23/30 23/31
22/25 22/24 22/24 21/24
19/36 19/33 18/31 18/33
15/21 17/21 16/20 15/19
14/23 18/23 14/20 14/21
17/41 16/28 16/40 17/39
24/29 24/28 24/28 24/28
14/24 11/23 11/23 10/24
24/29 20/29 21/28 22/28
25/34 25/33 24/32 24/34
183
4
4
2
3
6
5
9
3
13
13
12
14
17
19
15
13
10
16
dv-mynd ásgeir