Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2008, Qupperneq 21
Miðvikudagur 27. Ágúst 2008 21Fréttir
Dóttir í skiptum fyrir íbúð og fleira
Pari einu frá San Antonio í Texas var
greinilega mikið í mun að fá íbúð, bif-
reið og pössun fyrir tíu mánaða dóttur
konunnar. Samkvæmt upplýsingum
frá Alríkislögreglunni var Jennifer
Richards, ásamt kærasta sínum Sean
Michael Block, sem er giftur annarri
konu, reiðubúin að skipta á kynlífi
með fimm ára dóttur sinni fyrir of-
annefnd gæði. Samkvæmt smáskila-
boðum átti einnig að afhenda hina tíu
mánaða dóttur þegar hún væri orðin
eldri. Richards hélt því fram að þessi
skipti myndu verða jákvæð lífsreynsla
fyrir hina fimm ára dóttur. Það varð til
happs að Richards var í raun að semja
við útsendara Alríkislögreglunnar.
Frú Obama sigrar hjörtu
Michelle Obama, eiginkona Baracks
Obama forsetaframbjóðanda demó-
krataflokksins í Bandaríkjunum, vann
hug og hjörtu kjósenda á landsfundi
demókrata sem fram fór í Bandaríkj-
unum í fyrrinótt. Meðal þess sem hún
lagði áherslu á í ræðu sinni var að
eiginmaður sinn væri ekki auðugur
viðskiptamaður, heldur venjuleg-
ur Bandaríkjamaður sem berst fyrir
betra samfélagi fyrir alla án tillits til
húðlitar eða stjórnmálaskoðana.
Michelle Obama sagði aukinheldur
frá eigin uppvexti í verkamannastétt,
ást sinni til lands og þjóðar og ítrek-
aði að hún bæri fullt traust til getu
manns síns til að verða góður forseti.
Svínslegur brandari
Otis Hensley, stjórnmálamaður frá
Kentucky-fylki í Bandaríkjunum, fór
heldur betur flatt á gríni sem var mis-
skilið. Þannig var að Hensley hafði
verið sendur út í búð í Harlan, heima-
bæ sínum. Þar hitti hann fyrir konu
sem var í fylgd tveggja frænkna sinna.
Hensley var í léttu skapi og sagði við
konuna: „Ég skal gefa þér alisvín fyr-
ir þessar tvær stúlkur.“ Grínið féll í
grýttan jarðveg og konan kærði hann
til lögreglu og málalyktir urðu þær að
hann eyddi þremur dögum í grjót-
inu. Hensley sagðist hafa sagt þennan
brandara milljón sinnun og var fyrir-
munað að skilja hvernig konan gat
skilið hann sem kynferðislega áreitni.
Pólsk stjórnvöld neituðu á sínum tíma tilvist leynifangelsa CIA:
Pólsk yfirvöld rannsaka nú hvað sé
hæft í þeim fullyrðingum að banda-
ríska leyniþjónustan, CIA, hafi yfir-
heyrt, á pólskri grundu, menn grunaða
um aðild að hryðjuverkum. Rannsókn
pólskra yfirvalda hófst fyrir þremur vik-
um.
Í skýrslu frá Evrópuráðinu sem gef-
in var út í júní á síðasta ári var sagt að
leyniþjónusta Bandaríkjanna hefði
starfrækt leynileg fangelsi í Póllandi
og Rúmeníu árin 2003 til 2005, og þar
hefðu grunaðir al-Kaída-liðar verið í
haldi. Þegar skýrslan kom út neituðu
stjórnvöld beggja landa þeim fullyrð-
ingum sem haldið var fram.
Nú kveður við annan tón, og tals-
maður pólska dómsmálaráðuneytisins
staðfesti við fréttastofu AFP að málið
væri í rannsókn. Svissneskur þingmað-
ur, Dick Marty, sem fór fyrir rannsókn
Evrópuráðsins sagði að leynilegt sam-
komulag á meðal bandamanna NATO
gerði CIA kleift að starfrækja leyni-
fangelsi. Marty vitnaði í ónafngreindan
heimildamann innan leyniþjónustunn-
ar sem hafði sagt að Pólland væri hinn
„svarti staður“ þar sem átta mikilvægir
fangar hefðu sætt yfirheyrslum. Þeirra
á meðal var Khalid Sheikh Mohammed
sem talinn er skipuleggjandi árásanna í
Bandaríkjunum 11. september 2001.
Rannsókn breska blaðamannsins
Nick Hawton, hjá BBC, árið 2006, leiddi
í ljós að „svarti staðurinn“ var á Szym-
any-flugvelli, afskekktri flugbraut á veg-
um hersins, í norðaustur-Póllandi.
Þegar skýrsla Evrópuráðsins kom út
neitaði Aleksander Kwasniewski, for-
seti Póllands árin 1995 til 2005, tilvist
leynifangelsa. „Það voru engin leyni-
fangelsi í Póllandi,“ sagði hann.
Kanna svarta staðinn
Drepa Obama
Lögreglan í Denver í Bandaríkjun-
um rannsakar nú hvort maður sem
handtekinn var með riffla, skotfæri
og fíkniefni nærri flokkþingi demó-
krata hafi ætlað sér að ráða Barack
Obama af dögum ásamt félögum
hans. Lögreglan handtók fjóra vegna
málsins og er fólkið í haldi lögreglu.
Fólkið er sagt kynþáttahatarar sem
háðir eru hörðum fíkniefnum.
Hoppaði út á sjöttu hæð
Tharin Gartrell, 28 ára eftirlýst-
ur glæpamaður, var handtekinn
á sunnudaginn eftir að lögreglan
hafði stöðvað hann fyrir vafasamt
aksturslag og fundið tvo kraftmikla
riffla með sjónauka, nokkra kassa af
skotfærum, skothelt vesti, talstöðv-
ar og metamfetamín í bifreið hans.
Gartrell vísaði lögreglunni á hótel-
herbergi í grenndinni, en þegar lög-
regluna bar að garði gerði maðurinn
sem þar var innandyra, Shawn Ro-
bert Adolph, sér lítið fyrir og stökk út
um gluggann á sjöttu hæð í von um
að komast undan. Lögreglan fann
hann hins vegar skammt undan með
illa brotinn ökkla. Hinn 33 ára Ad-
olph bar stóran hakakross á sér þeg-
ar hann var handtekinn.
Vitorðsfólk Gartrells og Adolph,
kærustuparið Natan Johnson og Nat-
asha Gromekm, var einnig handtek-
ið. Johnson á að hafa viðurkennt fyrir
lögregluyfirvöldum við handtöku að
Gartrell og Adolph hafi ætlað sér að
drepa Barack Obama þar sem hann
heldur ræðu í Denver, Colorado, á
fimmtudaginn.
Sveitalubbar og dópistar
Talið er að mennirnir séu tengd-
ir mótorhjólasamtökunum Sons of
Silence, sem hafa verið grunuð um
bein tengsl við samtök öfgakynþátta-
hatara. Lögreglan í Denver hefur
látið alríkislögregluna vita af hand-
tökunni og málavöxtum. Heimildir
innan alríkislögreglunnar herma að
ekki sé um trúverðulega ógn við líf
Obama að ræða og að málið tengist
fremur fíkniefnum en morðtilræði.
„Það gæti vel komið í ljós að þetta séu
ekkert nema sveitalubbar og dópist-
ar,“ er haft eftir heimildarmanni hjá
lögreglunni.
Leyniþjónustan rannsakar nú
trúverðugleika þessara meintu hót-
ana, og hefur öryggisgæslan á flokks-
þingi Demókrataflokksins í Denver
verið hert til muna fyrir vikið. Barack
Obama verður opinberlega kynntur
sem fyrsti þeldökki forsetaframbjóð-
andinn í sögu Bandaríkjanna á ráð-
stefnunni. Þrátt fyrir að yfirvöld dragi
trúverðugleika hótananna í efa þá er
ljóst að brenglaður hugur rasista á
metamfetamíni getur leitt til ýmis-
legs.
Ekki fyrsta hótunin
Leyniþjónustan í Bandaríkjunum
hefur reyndar vaktað Barack Obama
í rúmt ár vegna fjölmargra líflátshót-
ana sem hann hefur fengið. Frétta-
skýrendur segja að sú staðreynd að
Barack Obama verði fyrsti þeldökki
forsetaframbjóðandinn í sögu Banda-
ríkjanna marki vissulega tímamót, en
því geti fylgt vandamál að auki. Öfga-
menn og kynþáttahatarar séu líklegir
til að taka því ekki með sitjandi sæld-
inni að þeldökkur maður bjóði sig
fram til forseta og búast megi við fleiri
hótunum sem þessum þegar vitl-
eysingar og öfgamenn víðsvegar um
Bandaríkin vakni til lífsins. Yfirlýsing-
ar frá lögregluyfirvöldum segja hins
vegar að öryggi Obama og ráðstefnu-
gesta hafi ekki verið stefnt í voða.
Eiginkonan ítrekar
ættjarðarást
Flokksþingið hófst engu að
síður eins og ekkert hefði í skor-
ist á mánudagskvöldið með því
að eiginkona Barack Obama, Mi-
chelle, hélt mikla ræðu og þá lét
öldungadeildarþingmaðurinn
Edward Kennedy einnig sjá sig.
Kennedy, sem undirgekkst aðgerð
í júní vegna heilaæxlis, hélt sína
fyrstu ræðu síðan þá við gríðar-
legar undirtektir viðstaddra. Hann
lýsti því yfir að ný von hefði fæðst
hjá bandarísku þjóðinni, sem væri
Barack Obama.
Barack Obama fylgdist náið með
öllu saman sem fram fór í gegnum
gervihnattasjónarp, þar sem hann
er staddur í Kansas í herferð sinni.
Hann er væntanlegur til Denver á
flokksþingið í fyrsta lagi á miðviku-
daginn, fyrir ræðu sína á fimmtu-
daginn kemur.
SögðuSt
ætla að
Skotmark Barack Obama verður fyrsti blökkumaður-
inn sem nær svo langt í baráttu um forsetaembættið í
sögu Bandaríkjanna, og öfgamönnum hugnast það
illa. Hann hefur fengið fjölda líflátshótana. Mynd / aFP
Leyniþjónustan hefur vaktað Barack
Obama í rúmt ár vegna líflátshótana.