Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2008, Blaðsíða 25
Einn besti leikmaður Íslandsmóts-
ins í handknattleik í fyrra, Anna Úr-
súla Guðmundssdóttir, er gengin til
liðs við Íslandsmeistara Stjörnunn-
ar í Garðabæ, frá Gróttu á Seltjarn-
arnesi. Anna verður lánuð til Stjörn-
unnar í eitt ár en Grótta hafnaði
tilboði frá Stjörnunni og Fram upp
á 800 þúsund krónur áður en samn-
ingar náðust um að Anna gengi til
liðs við Stjörnuna á láni.
Niðurstaðan var lán
Málið hefur átt sér nokkurn að-
draganda en Anna hafði hug á því
að breyta um umhverfi strax eftir
tímabilið í fyrra. Unnur Teitsdótt-
ir, formaður handknattleiksdeild-
ar Gróttu, segist ánægð með lend-
inguna í málinu. „Hún er leigð til
Stjörnunnar út þetta tímabil. Þetta
er samkomulag sem við komumst
að og allir aðillar eru sammála um
þessa niðurstöðu,“ segir Unnur, en
Anna á tvö ár eftir af samningi sín-
um við Gróttu sem rennur út árið
2010. „Hún (Anna) er sátt og þá eru
allir sáttir. Hún er búin að vera lengi
hjá okkur og vildi skipta um um-
hverfi. Auðvitað hefðum við viljað
hafa hana þar sem hún er hörku-
leikmaður. Hún vildi sjálf vera leigð
en ekki keypt og við tökum eitt tíma-
bil fyrir í einu,“ sagði Unnur.
Erlend lið báru víurnar í Önnu
síðastliðinn vetur eftir góða frammi-
stöðu með íslenska landsliðinu, en
ekkert varð úr því að hún færi út. Nú
jafnar hún sig á aðgerð sem hún fór
í eftir tímabilið.
Mótvægi við náttúruhamfarir
Ragnar Hermannsson þjálfari
Stjörnunnar er virkilega ánægður
með að fá Önnu til liðs við félagið
en hún mætti á sína fyrstu æfingu
síðstliðinn mánudag. „Við þurftum
virkilega á þessu að halda þar sem
tveir leikmanna okkar lentu í nátt-
úruhamförum (Anna Blöndal og
Ásta Agnarsdóttir) og urðu óléttar.
Að auki fór Rakel Dögg til Danmerk-
ur og því misstum við marga af okk-
ar eldri leikmönnum frá síðasta
tímabili,“ segir Ragnar.
Hann segir Önnu styrkja liðið
mikið. „Miðað við íslenskan leik-
mann er hún hávaxin, líkamlega
sterk og góður varnarmaður. Hún
hefur einnig góða kosti í sókninni
en er fyrst og fremst viðurkenndur
varnarjaxl. Eins hjálpar þetta yngri
stelpum að þroskast þegar þær fá
að spila með svo leikreyndum leik-
manni,“ segir Ragnar.
Hann býst ekki við því að liðið
bæti við sig fleiri leikmönnum. „Við
ákváðum það strax að við vildum
fá leikmenn sem kæmu til með að
styrkja liðið. Við erum með marg-
ar ungar stúlkur sem við ætlum að
halda áfram að þroska,“ segir Ragn-
ar en ekki náðist í Önnu við gerð
fréttarinnar.
Miðvikudagur 27. Ágúst 2008 25Sport
Sport HSÍ fær fiMMtÍu MilljóNir Handknattleikssam-band Íslands fær fimmtíu milljóna styrk frá ríkisstjórn Íslands en menntamálaráðherra kom fram með styrktartillöguna á ríkisstjórnarfundi. Ákveðið var að styrkja sambandið vegna frábærrar frammi-stöðu íslenska karlalandsliðsins á Ólympíuleik-unum en íslensku ólympíufararnir koma heim á í dag. Í dag gefst Íslendingum svo kostur á að hylla landsliðið sem fer í opinni rútu niður skóla-vörðuholt og niður að arnarhóli.
Anna Úrsúla Guðmundsdóttir er gengin til liðs við Íslandsmeistara Stjörnunnar í
handknattleik. Grótta hafnaði 800 þúsund króna tilboði frá Fram og Stjörnunni, en úr
varð að Anna fór á láni til Garðbæinga.
AnnA ÚrsÚlA
í stjörnunA
Enginn annar en Fídel Kastró fyrr-
verandi Kúbuforseti gaf út yfirlýsingu
til stuðnings tækvondó-manninum
Angel Matos. Matos var dæmdur úr
keppni í bronsverðlaunabardaga
á Ólympíuleikunum eftir að hann
var lengur en eina mínútu að jafna
sig á smávægilegum meiðslum eftir
spark í keppninni. Í kjölfarið spark-
aði hann í andlit sænsks dómara og
sauma þurfti í vör hans til að gera að
meiðslunum.
Matos var 3-2 yfir í leiknum þeg-
ar atvikið átti sér stað og gjörsam-
lega missti stjórn á skapi sínu með
fyrrgreindum afleiðingum. Matos
var dæmdur í lífstíðarbann frá tæk-
vondó-keppnum.
Kastró sagði kúbversku þjóðina
standa við bakið á Matos og þjálfar-
anum Leudis Gonzales. Hann tel-
ur að um svik hafi verið að ræða og
trúir orðum Matos sem segist gruna
að brögð hafi verið í tafli þar sem
menn tengdir hinum kasakstanska
andstæðingi hans hafi reynt að múta
honum. „Þeir reyndu að múta þjálf-
ara hans,“ skrifaði Kastró í blaða-
grein. „Hann gat ekki haldið aftur af
sér,“ sagði Kastró um Matos. Kúbverj-
ar eru vanir að vinna til fjölda verð-
launa í bardagaíþróttum en þurftu
að sætta sig við tvö gull að þessu
sinni samanborið við níu í Aþenu
fyrir fjórum árum. Kastró segir mafíu
þar að baki. „Ég varð tvívegis vitni að
því að hvernig dómararnir stálu sigr-
inum frá kúbverskum keppendum í
undanúrslitum,“ skrifaði Kastró.
„Kúbverjar hafa aldrei mútað
íþróttamönnum eða dómara,“ sagði
hinn aldni fyrrverandi leiðtogi um
leið og hann tilkynnti að íþrótta-
menn landsins þyrftu nú þegar að
hefja undirbúning fyrir næstu leika
í London, árið 2012. „Þar verður
evrópsk kúgun, spilltir dómarar og
æra og vöðvar munu ganga kaup-
um og sölum. Auk þess munum við
þurfa að glíma við kynþáttafordóma,“
spáði Kastró í grein sinni í kúbversku
dagblaði. vidar@dv.is
fídel Kastró fyrrverandi Kúbuforseti ver íþróttamann sem réðst á dómara:
Kastró ver hegðun íþróttamanns
frAMArAr
fá MArKvörð
kvennalið Fram í handknattleik er
búið að tryggja sér annan markvörð
fyrir næsta tímabil. rúmenska
stúlkan gabriela Cristescu mun leika
með liðinu en hún var áður á mála
hjá FH og lék með liðinu í fyrra. Einar
Jónsson þjálfari Fram er sáttur við að
fá hana til liðs við félagið. „Ég vona að
hún eigi eftir að reynast okkur vel og
henni takist að fylla upp í það skarð
sem Cristina skildi eftir sig. við erum
einnig búin að fá sunnevu til okkar,
ég geri miklar væntingar til þeirra
beggja,“ segir Einar. Cristescu er 27
ára gömul. Þá hafa Framarar einnig
fengið til liðs við sig Elísu viðarsdótt-
ur en hún er systir Margrétar Láru
viðarsdóttur knattspyrnukonu.
vidar@dv.is
rierA á leið
til liverpool
albert riera leikmaður Espanyol er
við það að ganga til liðs við Liverpool
ef marka má spænska blaðið Marca.
riera fékk að velja á milli nágrannalið-
anna Liverpool og Everton og ákvað
að velja þá rauðklæddu. kaupverðið
er talið á milli 8 og 12 milljónir punda
en riera hefur að mestu leikið sem
vinstri kantmaður. Hann þykir hafa
nef fyrir því að leggja upp mörk fyrir
samherja sína. riera er 26 ára en talið
er að hann muni skrifa undir fjögurra
ára samning við Liverpool.
vidar@dv.is
ferdiNANd til
SuNderlANd
anton Ferdinand varnarmaður West
Ham er á leið til sunderland en
leikmaðurinn var í læknisskoðun hjá
félaginu í gær en fastlega er búist
við því að formlega verði gengið frá
félagaskiptunum í dag. Ferdinand
hefur ekki spilað með West Ham í
síðustu tveimur leikjum vegna
meiðsla í læri, en kaupverðið er um 8
milljónir punda. alan Curbishley
staðfesti um helgina að tilboð
sunderland hefði verið samþykkt
sökum þess hve tregur Ferdinand
var að skrifa undir nýjan samning við
West Ham.
vidar@dv.is
viðAr GuðjóNSSoN
blaðamaður skrifar: vidar@dv.is
Anna Úrsúla Guðmundsdóttir
Er á leið í stjörnuna.
ekkert óviðkomandi Fídel kastró tjáir sig um uppákomu angels Matos.