Hagskýrslur um iðnað - 01.01.1958, Blaðsíða 9
Inngangur.
Introduction.
I. Almennar skýringar og skilgreining hugtaka.
General statement and defmition of concepts.
1. Skýrslusöfnunin 1953.
Collection of data.
Skýrslum um rekstur iðnaðarfyrirtækja hefur um alllangt skeið verið safnað
af Hagstofu íslands. Hefur sú skýrslusöfnun verið byggð á lögum nr. 64/1934, um
viðauka við lög nr. 29/1895, um hagfræðiskýrslur. í fyrstu grein þeirra laga segir
svo: „Iðnfyrirtæki þau, sem eru tryggingarskyld samkvæmt lögum nr. 72 8. sept.
1931 um slysatryggingu1), eru skyld til að láta Hagstofunni árlega í té skýrslu
um magn og verð framleiðslu sinnar, um notkun liráefna og aðstoðarefna, um tölu
og samanlagðan vinnutíma verkamanna og starfsmanna ásamt útborguðu viku-
kaupi, svo og aðrar upplýsingar um fyrirtækið, samkvæmt eyðublöðum, sem Hag-
stofan semur í samráði við Iðnráð Reykjavíkur".
Eins og greint er frá í inngangi Iðnaðarskýrslna 1950 — einu áður útgefnum
iðnaðarskýrslum — liefur árangur af söfnun iðnaðarskýrslna yfirleitt alltaf verið
MtiU. Áxin 1950—1952 tókst þó að safna það góðum efnivið í iðnaðarskýrslur fyrir
árin 1949—1950, að fært þótti að gefa niðurstöðurnar fyrir síðara árið út á prenti,
þótt margt væri þar ófullkomið og af vanefnum gert. Þessi skýrslusöfnun var undir-
búin í samráði við Fjárhagsráð.
Þær skýrslur, sem hér birtast á prenti fyrir árið 1953, eru að ýmsu leyti betur
úr garði gerðar en skýrslurnar 1950, þótt enn skorti mikið á, að þær séu viðhlítandi.
Félag íslenzkra iðnrekenda og Landssamband iðnaðarmanna lögðu mikla
áherzlu á, að Hagstofan safnaði skýrslum um iðnaðinn í landinu á árinu 1953,
og var sú söfnun endanlega ákveðin vorið 1954. Við undirbúning söfnunarinnar var
haft samráð við fyrr greind samtök, svo og Iðnaðarmálastofnunina, Iðnráð Reykja-
víkur, hagfræðideild Landshankans og Framkvæmdabankann. Hinn 23. apríl 1954
gerðu þessir aðilar með sér samkomulag um skýrslusöfnunina og var þar meðal
annars eftirfarandi tekið fram:
„Með hliðsjón af þeim stórfelldu örðugleikum, sem voru á innheimtu iðnaðar-
skýrslna 1950, telur Hagstofan sér ekki fært að leggja út í aðra skýrslusöfnun
um iðnaðinn nú, nema heildareamtök handiðnaðar og verksmiðjuiðnaðar, hvor
um sig, taki að sér að sjá um innheimtu gagna frá meðlimum þeirra, eftir því
sem Hagstofan telur æskilegt. Undirskrift fulltrúa Landssambands iðnaðar-
manna og Félags íslenzkra iðnrekenda felur í sér loforð um, að þessir aðilar
muni sjá um innheimtu fullnægjandi skýrslna frá meðlimum sínum, samkvæmt
óskum Hagstofunnar þar að lútandi.“
Eyðublöð undir iðnaðarskýrslurnar voru send út í ágúst og september 1954,
1) Núgildandi ákvœði hér að lútandi cru í 112. og 113. grein laga nr. 50/1946, um almannatryggingar.