Hagskýrslur um iðnað - 01.01.1958, Page 15

Hagskýrslur um iðnað - 01.01.1958, Page 15
Iðnaðarskýrslur 1953 13* 10) í flokki 339, annar steinefnaiðnaður, er sand-, malar- og grjótnám nú talið með, en ekki með námuvinnslu. Er hér bæði um að ræða frávik frá ISIC og iðn- aðarskýrslum 1950. 11) Skermagerð er af hagkvæmnisástæðum talin grein í 370 (smíði og viðgerðir rafmagnstækja), en ekki í grein 399. Hér er um frávik frá ISIC að ræða. 12) Flugvélaviðgerðir (grein 386) eru ekki taldar með í töflum um tryggðar vinnuvikur í iðnaðarskýrslum 1953, en voru það hins vegar í iðnaðarskýrslum 1950. í engum öðrum töflum eru flugvélaviðgerðir meðtaldar, hvorki í skýrslunum 1950 né þessum, þar sem ekkert fyrirtæki liefur flugvélaviðgerðir að aðalatvinnurekstri. Er þessi starfsemi öll í höndum flugfélaganna sjálfra og hefur ekki verið mögulegt að fá skýrslur um hana sérstaklega. — Ekki er hægt að segja, að þetta sé frávik frá ISIC, þar sem ekkert fyrirtæki hefur flugvélaviðgerðir sem aðalrekstur, eins og áður segir. Þó að iðnaðarskýrslusöfnunin 1953 liafi ekki náð til byggingarstarfsemi (flokkur 4) og rafmagns- og gasframleiðslu (greinar 511 og 512 úr flokki 5), svo sem algengt er í hliðstæðri skýrslusöfnun erlendis, þá er yfirlit yfir tryggðar vinnuvikur um þá starfsemi birt aftast í þessum inngangi. Námuvinnsla er heldur ekki meðtalin, nema sand-, malar- og grjótnám (að svo miklu leyti sem það er talið fram til slysatrygg- ingar), sem hefur verið fellt inn í grein 339 (annar steinefnaiðnaður), eins og áður greinir. önnur námuvinnsla er svo til engin hér á landi. 3. Skýring hugtaka. Definition of concepts. í þessum kafla verður leitazt við að skýra ýmis hugtök í dálkafyrirsögnum í yfirlitum og töflum hér fyrir aftan. a. Hugtökin fyrirtœki, tryggingarskyldur aðili, tryggðar vinnuvikur. Með fyrirtœki er í þessum skýrslum átt við verkstæði, verksmiðju eða aðra tegund vinnustaðar, þar sem framleiðsla er stunduð eða þjónusta innt af hendi (þ. e. ,,establishment“ samkvæmt ISIC). Málið er einfalt, þegar um er að ræða fyrir- tæki staðsett út af fyrir sig og undir sjálfstæðri stjórn og með framleiðslu, sem öll tilheyrir sömu iðnaðargrein. En ýmis vandamál koma til sögunnar, þegar um er að ræða dreifð verkstæði í sömu grein undir sömu stjórn, eða mörg verkstæði í ólíkum greinum á sama stað og undir sömu stjórn. Þegar þannig stendur á, er hvert verkstæði (eða hver deild) tahð sjálfstætt fyrirtæki, svo framarlega sem rekstur þess er að verulegu leyti sjálfstæður og hægt að gefa sérstakar skýrslur um einstaka þætti hans. Þannig eru útibú og sjálfstæðar deildir talin sérstök fyrir- tæki, þegar því verður komið við. Hugtakið fyrirtæki, sem þýðing á orðinu „establish- ment“, táknar því, eins og áður segir, verkstæði eða verksmiðju, sem er sjálfstæð framleiðsluheild og að verulegu leyti með sérstakt reikningshald. Þegar iðnaðar- fyrirtæki eru flokkuð eftir greinum, þá er hvert fyrirtæki tahð í þeirri grein, sem framleiðslan er mest í, ef um er að ræða fjölþætta starfsemi, sem fellur undir mis- munandi greinar. Ef starfsemi fyrirtækisins tekur yfir mörg framleiðslustig, sem taka hvert við af öðru og eru í nánum tengslum hvert við annað, þá er fyrirtækið flokkað eftir lokastiginu. Hagstofa Sameinuðu þjóðanna mælir með notkun hugtaksins ,,estabhshment“, þegar framkvæmt er fyrirtækjatal eins og það, sem þessar iðnaðarskýrslur eru byggð- ar á. Nágrannaþjóðir okkar styðjast einnig við þetta hugtak í grundvaharatriðum í iðnaðarskýrslum sínum.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Hagskýrslur um iðnað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hagskýrslur um iðnað
https://timarit.is/publication/1130

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.