Hagskýrslur um iðnað - 01.01.1958, Page 16

Hagskýrslur um iðnað - 01.01.1958, Page 16
14' Iðnaðarskýrslur 1953 Hugtakið fyrirtœki er oft notað í annarri merkingu en sem sjálfstæð fram- leiðsluheild. Stundum á betur við að leggja til grundvallar fjármálalega eða lög- formlega heild („enterpriseíl, sbr. ISIC), sem gæti vitaskuld verið eigandi margra aðgreindra verkstæða í ólíkum iðnaðargreinum. Ef slíkur skilningur væri lagður í hugtakið fyrirtæki, mundi verða erfiðara að fá nákvæma skiptingu milli hinna mis- munandi greina iðnaðarins. Hins vegar verður því ekki neitað, að reikningshald fyrirtækja liér á landi er enn þá aðallega miðað við slíkt fjármálalegt uppgjör liinnar lögformlegu lieildar (skattauppgjör). Ef horfið yrði að því ráði að vinna iðnaðarskýrslurnar upp úr framtölum til skatts, mundi sennilega vera nauðsynlegt að skoða fyrirtækið sem lögformlega heild, en ekki sérstaklega sem framleiðsluheild. Þótt liugtökin „enterpriseíí og „establishmentlí séu þannig ekki sömu merkingar, þá falla þau mjög oft saman, og hér á landi a. m. k. hefur skattalöggjöfin stuðlað mjög að því á þann hátt, að fyrirtæki, sem stækkar, vegna þess að nýrri fram- leiðslugrein er bætt við, og verður þannig í raun og veru tvær framleiðsluheildir, er gert að tveimur sjálfstæðum lögforinlegum aðilum (t. d. tveimur hlutafélögum). Stundum er talið æsldlegt að þrengja hugtakið ,,fyrirtæki“ enn meira en gert er með því að skoða það sem verkstæði eða verksmiðju. Það er liægt að gera með því að telja alla starfsemi, tem er bundin við framleiðslu á ákveðinni afurð, eem sjálfstætt fyrirtæki („technical anit1 11, sbr. ISIC), en kostnaðarreikningur fyrirtækis- ins þarf að vera mjög fullkominn, ef slíkt á að vera framkvæmanlegt. Sama er að segja, ef reynt er að þrengja verkstæðishugtakið á þann hátt að skoða ákveðna tegund starfa (ekki nauðsynlega öll störf við framleiðslu sömu afurðar) sem sjálf- stætt fyrirtæki (,,operational unit11, sbr. ISIC). í sambandi við tölur um tryggingarskylda aðila og tryggðar vinnuvikur er þess að geta, að langflestir þeirra, sem vinna við iðnaðarstörf, eru slysatryggðir (sbr. lög, sem getið er um fremst í þessum inngangi). Eigendur fyrirtækjanna eru þó ekki tryggingarskyldir, en þeir mega tryggja sig, ef þeir óska. Hafa ýmsir hinna smærri atvinnurekenda, sem vinna sjálfir að iðnaðarstörfum, gert það. Heimavinna er ekki heldur tryggingarskyld. Tölurnar um tryggðar vinnuvikur ná því ekki til allra, sem vinna að iðnaðarstörfum, og nokkur lítil fyrirtæki eru því alls ekki talin með í iðnaðarskýrslunum (þ. á m. engin heimaslátrun). Yísast til töflu IV i því sambandi, þar sem hverri iðnaðargrein er gefið tákn um það, hvort óslysatryggt vinnuafl í henni sé mikið eða lítið (L=lítið, M=mikið, N=nokkuð)d) Þar, sem það er mikið, mun talsvert vanta á, að tölur iðnaðarskýrslnanna um viðkomandi grein séu tæm- andi. Hins vegar liefur verið áætlaður fjöldi tryggðra vinnuvikna fyrir verkstæði vinnuheimilisins að Reykjalundi, þar sem um er að ræða allmikið óslysatrvggt vinnuafl á sama stað. Eins og áður er greint frá, er hvert fyrirtæki (,,establishment“) látið tillieyra þeirri iðnaðargrein, sem mest er framleitt í, ef um blandaðan rekstur er að ræða, án þess að hægt sé að greina þar á milli tveggja eða fleiri bókhaldslega aðgreindra framleiðsluheilda. Nú getur hins vegar verið, að til sé aðgreining tryggðra vinnu- vikna milli liinna mismunandi iðnaðargreina, sem unnið er í innan fyrirtækisins, og er þá fyrirtækið talið tveir eða fleiri tryggingarskyldir aðilar. Tala hinna trygg- ingarskyldu aðila í hverri iðnaðargrein gefur betri hugmynd um það, hve víða sé unnið að þeirri framleiðslu, en tala fyrirtækja. Sama fyrirtækið getur verið trygg- ingarskyldur aðili í fleiri en einni iðnaðargrein. 1) Auk þcss scm óslysatryggt vinnuníl cr mi«inunnndi mikið í hinum ýmsu greinum, getur verið um að rœða slyaa- vinnuafl við iðnaðaratörf, sem alls ekki kemur fram í töflu IV, þar sem það cr talið til annarra flokka atvinnulífsins en iðnaðar (t. d. kaffimölun í verzlunum verður ekki grcind frá verzlun).
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Hagskýrslur um iðnað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hagskýrslur um iðnað
https://timarit.is/publication/1130

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.