Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2008, Síða 4
föstudagur 26. september 20084 Fréttir DV
Sandkorn
n Framsóknarmenn, sem fyrir
kosningarnar 1991 fóru fram und-
ir slagorðinu XB en ekki EB, virð-
ast sumir hverjir reiðubúnir að
fara fram fyrir
röðina og
berjast fyrir
aðild Íslands
að Evrópu-
sambandinu.
Þó Samfylk-
ingin hafi ein
flokka lýst
yfir að stefna
skuli að ESB-aðild getur flokkur-
inn sig hvergi hreyft nú meðan
hann er í stjórn með sjálfstæð-
ismönnum sem vilja vart heyra
minnst á aðild. Á sama tíma
boðar Birkir Jón Jónsson, þing-
maður Framsóknarflokksins úr
norðausturkjördæmi, þingsálykt-
unartillögu um að þjóðin fái að
greiða atkvæði um hvort sækja
eigi um aðild. Segja menn að
slagorðið hafi breyst úr XB en ekki
EB í Frá XB til ESB.
n Jón Þór Sturluson, aðstoðar-
maður Björgvins G. Sigurðsson-
ar viðskiptaráðherra, er nýjasti
maðurinn til að vera orðaður við
forstjórastól-
inn í Lands-
virkjun eins
og lesa mátti
á vefnum Eyj-
unni. Jón Þór
sem þykir vel
menntaður
og rökfastur
hefur sýnt
áhuga á orkumálum og þykir því
ekki fráleitur kostur. Jón Þór hefur
verið viðloðandi stjórnmálin af og
til í gegnum tíðina og aðstoðar-
mannsstarfið hjá Björgvini fráleitt
það fyrsta á því sviði. Sem ungur
háskólanemi var hann í stjórn
Sambands ungra jafnaðarmanna,
sem var ungliðahreyfing Alþýðu-
flokksins, og mátti minnstu muna
að hann yrði formaður þeirra
samtaka. Þegar það gekk ekki eftir
sneri hann sér meira að námi og
fræðimennsku um skeið.
n Kári Stefánsson, forstjóri Ís-
lenskrar erfðagreiningar, hefur
löngum verið þekktur fyrir annað
en að þegja þegar honum hefur
þótt á sig eða sína hallað. Enda
tók hann því ekki hljóðalaust
þegar Bragi
Kristjónsson
bóksali sagði
sögu af föður
Kára í Kilju
Egils Helga-
sonar og fór
rangt með
staðreyndir.
Söguna segir
Kári markast meira af persónu-
leika Braga en nokkru öðru. „Að
mínu mati er sá persónuleiki
stundum svolítið skemmtilegur,
einstaka sinnum mjög skemmti-
legur en sjaldan merkilegur,“ segir
Kári og vill að hér eftir segi Egill
áhorfendum í hvert sinn sem
Bragi talar að þeir skuli trúa hon-
um á eigin ábyrgð.
n Frægt varð þegar Sarah Pal-
in, varaforsetaefni repúblikana
fyrir komandi forsetakosningar
í Bandaríkjunum, mundi ekkert
eftir því að
hafa hitt er-
lendan þjóð-
arleiðtoga
– og það þrátt
fyrir að hafa
nokkrum
mánuðum
áður staðið
andspænis
Ólafi Ragnari Grímssyni forseta.
Ólafur Ragnar virðist þó ekki
láta hugfallast. Hann fór aftur til
Alaska í vikunni. Þar var þó ekki
Sarah Palin til að taka á móti hon-
um heldur aðstoðarríkisstjórinn.
Nú er víst svo komið að ríkis-
stjórinn má minna vera að því að
sinna starfi sínu, meðan á kosn-
ingabaráttunni stendur.
Séra Gunnar Björnsson er í fullum rétti til að sinna prestsverkum þó svo að Karl Sigur-
björnsson biskup hafi leyst hann frá embætti sóknarprests. Hann verður hins vegar að
fá starfandi sóknarprest til að gefa út könnunarvottorð og færa hjónabönd í kirkjubók.
EINS OG PRESTUR
Á EFTIRLAUNUM
„Ég hef ekkert að segja, en þakka
þér samt fyrir síðast,“ sagði séra
Gunnar Björnsson við blaðamann
þegar hann innti hann eftir því
hver skyldi færa hjónavígslu sem
hann annaðist í kirkjubók. Síð-
an þá hefur mikið vatn runnið til
sjávar. Eftir að hafa rætt við fjöld-
ann allan af prestum, próföstum
og Biskupsstofu eru málin farin að
skýrast betur.
Samkvæmt Biskupsstofu er séra
Gunnar ennþá með réttindi til að
sinna prestsstörfum. Hann er eins
og prestur á eftirlaunum. Hann má
ekki færa hjónaband í kirkjubók né
gefa út könnunarvottorð fyrir fólk
sem stígur það stóra skref að ganga
í hjónaband. Hann hefur hins vegar
full réttindi til að sinna prestsverk-
um, honum er einungis vikið úr
starfi um stundarsakir.
Ekkert verið kvartað
Eins og DV greindi frá á dögun-
um sá séra Gunnar um hjónavígslu
í kirkjunni á Stokkseyri síðasta laug-
ardag. Steinunn Arnþrúður Björns-
dóttir, verkefnisstjóri guðfræði og
þjóðmála hjá Biskupsstofu, gerir
ekki athugasemdir við þetta. „Það
hefur ekkert verið kvartað undan
þessu könnunarvottorði til okkar og
ég á ekki von á öðru en að hann hafi
staðið löglega að þessu,“ segir Stein-
unn Arnþrúður.
Steinunn Arnþrúður segir að
alls ekki sé ólíklegt að séra Gunn-
ar hafi gengið frá þessu áður en
honum var vikið úr embætti. Hún
bendir einnig á að Biskupsstofa
skipti sér ekki af prestum sem
ekki eru í embætti. „Við eigum
ekki annarra kosta völ en að fara
að lögum og það er sá rammi sem
við vinnum við. Það er því Gunn-
ars að neita prestsverkum ef fólk
biður hann um þau.“
Heldur áfram prestsverkum
Séra Gunnar fór í námsleyfi
eftir að tvær stúlkur kærðu hann
til lögreglu. Síðar áttu þrjár stúlk-
ur til viðbótar eftir að bætast í
þann hóp. Þrátt fyrir það hélt
hann áfram að sinna prestsverk-
um. Biskup og hans fólk töldu að
séra Gunnar ætti ekki að fram-
kvæma embættisverk á meðan
hann væri í leyfi. Séra Guðbjörg
Jóhannesdóttir, settur sóknar-
prestur við Selfosskirkju, skrif-
aði séra Gunnari bréf þar sem
hún sagði að þess væri ekki ósk-
að að hann sinnti prestsverkum í
Selfosskirkju meðan á rannsókn
máls hans stæði. Enn sér séra
Gunnar þó um hjónavígslur og
önnur prestsverk.
Herra Karl Sigurbjörnsson
biskup leysti séra Gunnar svo úr
embætti eftir að ákæra var gefin
út á hendur honum. Séra Gunnar
hefur alltaf haldið fram sakleysi
sínu og gerði það einnig þegar
málið var þingfest í Héraðsdómi
Suðurlands fyrir tveimur vikum.
SKEMMTILEGT Í SKÓLA
Skáldið Skrifar
Nýlega var ég minntur á það að í
háskólum eru konur víðast hvar
í miklum meirihluta ef litið er til
nemenda. Og mér er tjáð að þetta
sé vegna þess að strákum leiðist
svo skelfilega á efri stigum grunnskóla og
í menntaskóla að brottfall þeirra sé nánast
óhjákvæmilegt.
Ég veit að vandi okkar er líklega því að
kenna að kvenleg gildi, eins og: varfærni,
framsýni, yfirvegun og fleiri stórkostlegir
eiginleikar hafa ekki verið hafðir að leið-
arljósi í viðskiptalífi heimsins, af þeim sök-
um búum við nú við gósenkreppu. Kennum
karlrembuímynd um ófögnuðinn – verra
hefur nú verið viðhaft.
Kannski erum við með ómenntaða stráka
í störfum þar sem menntaðar stelpur ættu
að vera. En þótt skortur sé á konum (eða
jafnvel offramboð af körlum) í þeirri stétt
sem stjórnar fjármálum og græðgi, þá er
það samt sem áður áhyggjuefni og til um-
hugsunar hvernig það má vera, að nám
barna og unglinga skuli vera þannig mið-
að að drengjum stendur stuggur af. Sjálf-
sagt liggur þetta allt í genum og boðefnum
– stelpur eru stilltar en strákar eru óþekk-
ir. Þegar þessi staðreynd er viðruð þá átt-
um við okkur á því að stelpur hafa forskot í
skólakerfinu, því þar miðast allt við að börn
séu stillt.
Jafnréttiskrafa dagsins er því nokkuð skýr:
Leyfum öllum börnum að haga sér illa!
Gott og vel. Stelpur geta lært í ró og næði á
meðan testósteron strákanna gerir þá kröfu
að þeir iði í skinni og hafi hugann frek-
ar við stelpurnar en námið. Strákar geta,
nær undantekningalaust, ekki verið kyrrir
nema í nokkrar mínútur í senn. Og niður-
staðan er sú að strákar eru til vandræða.
Já, kæru landamenn, það sem okkur –
þessu vitiborna apafólki – hefur dottið í hug
til að koma til móts við hreyfiþörf drengja,
er að gefa þeim flestum hverjum sjúkdóms-
greiningu og fyrirheit um ævarandi athygl-
isbrest og ofvirkni.
Ég hvet fólk til að hugleiða það af alvöru
hvort ekki sé kominn tími til að skoða
skólakerfið allt útfrá þeirri staðreynd að
kynin eru tvö og þau eru alveg gríðarlega
ólík... þegar öllu er á botninn hvolft.
Öllum sem um æðri mennt
eitthvað vilja segja
af heiðarleik er hérna kennt
að halda kjafti og þegja.
Ó
Kristján Hreinsson sKáld sKrifar. „Jafnréttiskrafa dagsins er því nokkuð skýr: Leyfum öllum börnum að haga sér illa!“
Boði loGaSon
blaðamaður skrifar bodi@dv.is
„Við eigum ekki annarra kosta völ en að fara
að lögum og það er sá rammi sem við vinnum
við. Það er því Gunnars að neita prestsverkum
ef fólk biður hann um þau.“
Til prestsverka séra gunnar
björnsson sést hér ganga til
stokkseyrarkirkju ásamt stefáni
Hilmarssyni síðasta laugardag.
séra gunnar gaf brúðhjónin
saman og stefán söng í kirkjunni.