Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2008, Page 6
föstudagur 26. september 20086 Fréttir DV
Sandkorn
n Ástandið í Frjálslynda flokkn-
um er með spaugilegasta móti.
Örflokkurinn glímir við sund-
urlyndi og hver höndin er upp
á móti annarri. Sigurjón Þórð-
arson, fyrrverandi þingmaður
Frjálslynda
flokksins,
hefur af tak-
markalitlu
sjálfstrausti
lýst því yfir
að hann
vilji verða
formaður
flokksins. Til
að kóróna vitleysuna telur hann
líklegt að Guðjón Arnar Krist-
jánsson, formaður flokksins,
muni styðja hann til embætt-
isins. Af flestum er talið miklu
líklegra að Guðjón og Kristinn
H. Gunnarsson muni yfirgefa
flokkinn og eftir standi flokks-
brot sem gerir út á þá vá sem
stafi af útlendingum.
n Elías Jónatansson, bæjarstjóri
í Bolungarvík, stendur í stríði
við Soffíu Vagnsdóttur bæjar-
fulltrúa sem
telur hann
vera að
flæma hana
úr bænum
með rekstur
sem gæti
gefið fjölda
starfa. Bæj-
arstjórinn á
sjálfur umdeilda fortíð í rekstri.
Vefurinn bb.is segir frá því að
hann hafi árið 2004 rekið sprota-
fyrirtækið hotMobilemail ehf.
sem stofnað var í Bolungarvík.
Hugmyndin gekk út á kerfi sem
gerði fólki kleift að skoða tölvu-
póst þráðlaust. Byggðastofnun
mun hafa lagt 15 milljónir króna
í verkefnið sem aldrei varð fugl
eða fiskur. Staðfesti bæjarstjór-
inn við BB að fyrirtækið væri
ennþá til en hefði ekki neina
starfsemi. Menn velta fyrir sér
hvert peningarnir hafi farið.
n Formaður Hrútavinafélagsins,
Björn Ingi Bjarnason, er inn-
múraður samfylkingarmaður
og hefur um
áratugaskeið
verið krati.
Um tíma var
hann vara-
þingmað-
ur Alþýðu-
flokksins.
Björn Ingi
mun hafa
farið þess á leit við Samfylk-
inguna að fá sæti í menning-
armálanefnd Árborgar en var
sniðgenginn. Sjálfstæðisflokkur
Eyþórs Arnalds brá skjótt við og
setti hann inn í nefndina sem
sinn mann. Velta menn fyrir sér
hvort formaðurinn skipti um
flokk í framhaldinu.
Lögreglan hafði handtekið fimm manns í gær í tengslum við morðið á Hrafnhildi
Lilju Georgsdóttur, hótelstýru á Extreme-hótelinu í Dóminíska lýðveldinu. Lög-
regluforingi lýsti atburðarásinni sem leiddi til dauða Hrafnhildar í gær.
Í gær greindi fréttamiðillinn List-
indiario.com frá því að fimm hefðu
verið handteknir vegna morðsins á
Hrafnhildi Lilju Georgsdóttur. Rafael
Calderón, yfirlögregluþjónn í norð-
urhluta Dóminíska lýðveldisins,
sagði tvo hinna handteknu hafa átt í
nánu sambandi við Hrafnhildi. Ekki
var þó ljóst í gærkvöldi hvort fyrst
og fremst væri um vitni að ræða eða
meinta morðingja.
Í gær kom fram að hinn grunaði
morðingi væri Franklin Genao sem
væri einnig þekktur undir nafninu El
Sanki Panky.
Talið er að Hrafnhildi hafi ver-
ið veitt banahöggið og stungusár á
baðherberginu í íbúð hennar á Extr-
eme-hótelinu í smábænum Cab-
arete. Calderón yfirlögregluþjónn
lýsti því í gær hversu hörmuleg árás-
in hefði verið. Hrafnhildur var með
ýmis sár á líkamanum. Hún hafði
verið pyntuð og stungin og loks lam-
in í höfuðið. Grunn stungusár voru á
líkamanum og áverkar á munni en
samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðu
krufningar var banameinið höfuð-
högg með hamri.
Calderon sagði í gærkvöldi að
skammt væri í að rannsókn á mál-
inu lyki.
Misvísandi upplýsingar
Fréttir af málinu ytra hafa á köfl-
um reynst misvísandi. Þannig full-
yrða sumir fréttamiðlar að Hrafnhild-
ur sé írsk og aðrir að hún sé áströlsk.
Í fréttatilkynningu frá ríkislögreglu
Dóminíska lýðveldisins kom fram að
hún væri frá Írlandi, en það kann að
skýrast af því að nánast sami fram-
burður er á örnefninu Írland og Ís-
land í suður-amerískum mállýskum
spænsku. Þá fullyrti starfsmaður lög-
reglunnar í Cabarete við blaðamann
DV að hún væri frá Ástralíu en ekki
Íslandi. Það kann að skýrast af því að
Hrafnhildur fór til Ástralíu frá Íslandi
þegar hún hóf ferðalag sitt í apríl síð-
astliðnum.
Ljótar myndir á netinu
Myndir af Hrafnhildi látinni birt-
ust á vefsíðum nokkurra fréttamiðla í
Dóminíska lýðveldinu og virðist sem
fjölmiðlar hafi fengið myndirnar frá
lögreglu. Talið er að myndirnar hafi
verið teknar af réttarmeinafræðingi
lögreglunnar. Samkvæmt heimild-
um DV vita einhverjir aðstandendur
Hrafnhildar Lilju af myndbirtingun-
um og leggjast þær illa í þá á þessari
raunastund.
Stjórnendur þeirra fjölmiðla sem
birtu myndirnar virðast þó hafa feng-
ið einhverja bakþanka. Síðdegis í gær
höfðu myndir af líki Hrafnhildar Lilju
verið fjarlægðar af fréttavefjum, utan
einnar myndar sem sýndi börurn-
ar sem líkami Hrafnhildar lá á, en þá
undir ábreiðu svo hún sást ekki.
Syrgja á Facebook
Hrafnhildur Lilja átti vini úti um
allan heim sem syrgja nú sviplegt
dauðsfall hennar. Yfir sjö hundruð
notendur á samskiptavefnum Face-
book hafa vottað samúð sína á sér-
stökum vef sem er tileinkaður henni.
Þá hafa vinir hennar á Íslandi stofn-
að sérstakan söfnunarreikning fyr-
ir fjölskyldu Hrafnhildar en reikn-
ingsnúmerið er 0537-14-609973 með
kennitölunni 081079-5879.
Þá verður bænastund til minning-
ar um Hrafnhildi Lilju haldin í Vída-
línskirkju í Garðabæ í dag klukkan
18.
LJÚFFENG HOLLUSTA!
Á GRÆNNI GREIN - SUÐURLANDSBRAUT 52 (BLÁU HÚSUNUM VIÐ FAXAFEN) SÍMI: 553-8810
OPIÐ
Virka daga: 11:00 - 19:15
Laugardaga: lokað
Sunnudaga: lokað
Að lokum má ekki gleyma okkar gómsætu kökum. Syndsamlega
góðum en samt hægt að njóta án samviskubits.
Á Grænni Grein er ferskur staður þar sem hollustan er í fyrirrúmi.
ATHUGIÐ, NÚ ER EINNIG HÆGT AÐ FÁ FISKRÉTTI.
LJÚFFENG
HÁDEGISTILBOÐ
Góður afsláttur til fyrirtækishópa. Frábært að taka með sér
hollan skyndibita í og eftir vinnu.
LJÚFFENG TILBOÐ
ALLAN DAGINN
AtLi Már GyLFASon
blaðamaður skrifar atli@dv.is
Fréttir af málinu ytra
hafa á köflum reynst
misvísandi.
Hún var pyntuð
Hrafnhildur Lilja Georgs-
dóttir Hún var afar vinsæl og
hennar er sárt saknað.