Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2008, Qupperneq 13
föstudagur 26. september 2008 13Nærmynd
Jóhann R. Benediktsson, lög-
reglu- og tollstjóri á Suðurnesjum,
hrökklast nú úr starfi. Margt hef-
ur gengið á í samskiptum hans við
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra undanfarna mánuði. Hermt
er að upphaf þeirra deilna megi
rekja til þess þegar Jóhann neit-
aði að standa að handtöku Jóns
Ásgeirs Jóhannessonar við komu
hans til landsins í ágúst 2002. Á
tíma virtust samskipti þeirra falla í
ljúfa löð eða þar til dómsmálaráð-
herra tók einhliða ákvörðun um að
skipta upp embættinu sem ári áður
hafði verið sameinað. Á dögunum
auglýsti dómsmálaráðherra stöðu
Jóhanns, án vitundar hans. Jóhann
sagði upp störfum í vikunni en
honum fylgdu þrír af stjórnendum
embættisins. DV varpar ljósi á að-
draganda brotthvarfs Jóhanns og
hvaða mann hann hefur að geyma.
Neitaði að handtaka
Jón Ásgeir
DV ritaði fréttaskýringu í vor að
Jóhann hafi neitað því að handtaka
Baugsmanninn Jón Ásgeir Jóhann-
esson í ágúst árið 2002. Jón Ásgeir
var á heimleið til yfirheyrslna vegna
Baugsmálsins sem þá var í hámæl-
um. Heimildir DV herma að fyrir-
mæli hafi borist um að handtaka
ætti Jón Ásgeir á Keflavíkurflug-
velli. Þar áttu fréttamenn Ríkisút-
varpsins einnig að vera til að hægt
væri að sýna frá atburðinum. Bæði
ríkislögreglustjóri og RÚV höfn-
uðu þeim fullyrðingum DV með
yfirlýsingum. Undir yfirlýsingu rík-
islögreglustjóra skrifaði Harald-
ur Johannessen ríkislögreglustjóri
en hermt er að Jóhann hafi neit-
að að skrifa undir. Hann neitaði
af þeirri einföldu ástæðu að hann
fékkst ekki til að gefa út ósanna yf-
irlýsingu. Við þetta skapaðist nún-
ingur á milli ríkislögreglustjóra og
embættis Jóhanns, sem bauðst til
að gera skýrslu um atburði þessa
dags. Það var snarlega afþakkað.
Björn treysti Jóhanni
Jóhann var skipaður sýslumað-
ur á Keflavíkurflugvelli 1. apríl
1999. Staða hans hefur tekið mikl-
um breytingum frá þeim tíma. 1.
janúar í fyrra voru lögreglu- og toll-
umdæmin á Suðurnesjum sam-
einuð. Um tíma var hann því allt í
senn sýslumaður, lögreglu- og toll-
stjóri á Suðurnesjum.
Við sameininguna sagði Björn
Bjarnason dómsmálaráðherra: „Ég
er þess fullviss, að undir forystu Jó-
hanns R. Benediktssonar lögreglu-
stjóra tekst að sameina liðsheildina
til góðra verka, en undir hans stjórn
starfa um 220 manns, þar af um 90
lögregluþjónar og um 50 tollverðir,
fjöldi öryggisgæslumanna í flug-
stöð Leifs Eiríkssonar, lögfræðing-
ar og annað sérhæft fólk. Verkefni
liðsins er annars vegar að tryggja,
að öll gæsla á Keflavíkurflugvelli
standist ströngustu kröfur um að
öryggi íbúanna á Suðurnesjum sé
vel tryggt.“ Mönnum sem DV talaði
við ber saman um að þessi orð ráð-
herrans hafi gengið eftir. Gott orð
fer af störfum Jóhanns og lögregl-
unnar og tollgæslunnar á Suður-
nesjum í heild. Það staðfestu fjöl-
margir viðmælendur DV.
Lögfræðipróf frá HÍ
Jóhann Ragnar fæddist í Kópa-
vogi 18. mars 1961 og ólst þar upp.
Hann gekki í Kársnesskóla, Þing-
holtsskóla, lauk stúdentsprófi frá
MK 1981, stundaði nám í lögfræði
í HÍ og lauk þaðan embættisprófi
1987. Jóhann var lögreglumaður
í Reykjavík í þrjú sumur á meðan
hannn var í laganámi. Að því loknu
lagði hann stund á almenn lög-
fræðistörf, meðal annars hjá Húsa-
smiðjunni. Jóhann réðst til starfa
sem sendiráðsritari í utanríkis-
BALDUR GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
Framhald á
næstu síðu
fjörkálf r
Jóhann R. Benediktsson lenti upp á
kant við ríkislögreglustjóra þegar hann
neitaði að skrifa undir ósanna yfirlýs-
ingu um að ekki hafi staðið til að hand-
taka Jón Ásgeir Jóhannesson á Kefla-
víkurflugvelli árið 2002. Jóhann hættir
um mánaðamótin sem lögreglu- og
tollstjóri á Suðurnesjum vegna trúnað-
arbrests á milli hans og Björns Bjarna-
sonar dómsmálaráðherra. Vinir og
samstarfsfélagar Jóhanns lýsa honum
sem einstaklega glaðlyndum og heil-
steyptum manni.
NÆrMYND
Jóhann R. Benediktsson, fráfarandi
lögreglu- og tollstjóri Hrökklast nú úr starfi,
þvert á geð flestra sem með honum starfa.
MYNDIR GUNNAR GUNNARSSON
Kröftugur