Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2008, Qupperneq 14
föstudagur 26. september 200814 Nærmynd
ráðuneytinu 1988. Hann fluttist til
starfa í sendiráð Íslands í París 1991
og árið 1994 var hann fluttur til starfa
hjá sendiráði Íslands í Brussel.
Jóhann var aðstoðarmaður að-
alsamningamanns Íslands um
Schengen og var fulltrúi Íslands í
hinum ýmsu stofnunum og nefnd-
um Schengen eftir að Ísland hóf
þátttöku í samstarfinu 1. maí 1996.
Hann var skipaður sendiráðunaut-
ur 1996 og kom aftur til starfa á við-
skiptaskrifstofu utanríkisráðuneytis-
ins sumarið 1998.
Yngstur sjö systkina
Jóhann hefur setið í stjórn Lög-
fræðingafélags Íslands, var varafor-
maður Sýslumannafélagsins, í stjórn
Samkeppniseftirlitsins, var fulltrúi
Íslands í stjórn landamærastofnun-
ar Evrópu og hefur setið í fjölda op-
inberra nefnda, íslenskum sem er-
lendum.
Eiginkona Jóhanns er Sigríður G.
Guðmundsdóttir, viðskiptafræðing-
ur og kennari. Þau eiga saman þrjú
börn sem fædd eru hvert í sínu land-
inu. Benedikt Ragnar er 16 ára og
fæddist í Reykjavík, Ólafur Örn er 15
ára, fæddur í París, en Gyða er fædd í
Brussel, hún er 12 ára gömul.
Jóhann er yngstur sjö systkina.
Sigrún er ein þeirra. Hún lýsir bróður
sínum þannig að hann sé afar hress
og mikill stemningsmaður. „Hann er
mikill pabbi og er annt um sína. Ég er
sjö árum eldri en hann og við tengd-
umst snemma mjög sterkum bönd-
um, enda var ég mikið með hann.
Hann naut þess að vera yngstur á
margan hátt,“ segir hún og hlær.
Kröftugur fjörkálfur
Sigrún minnist þess aldrei að Jó-
hann hafi verið í vondu skapi. Hún
segir þrátt fyrir það að í Jóhanni sé
mikið skap. „Hann er mikill fjör-
kálfur en getur snöggreiðst ef hon-
um finnst á sér brotið. Auðvitað er
hann ekki fullkominn frekar en aðr-
ir. Hann er mjög kröftugur og á auð-
velt með að sjá allt sviðið. Hann er
snöggur til ákvarðana og slíkum kar-
aktereinkennum fylgja auðvitað allt-
af einhverjir gallar. Þessi kostur er
auðvitað ekki alfarið góður,“ segir
Sigrún létt í bragði. Faðir þeirra Jó-
hanns var Benedikt heitinn Kristj-
ánsson, deildarstjóri hjá Samvinnu-
tryggingum, en móðir þeirra er Ólöf
Jónsdóttir húsmóðir.
Skipt upp aftur
19.mars var Jóhann kallaður á
fund dómsmálaráðherra þar sem
honum voru kynntar fyrirhugaðar
breytingar á embættinu. Skipta átti
embættinu upp á nýjan leik. Fyrir
lá rekstraráætlun um 200 milljóna
króna fjárvöntun. Árið áður hafði
embættið verið rekið með 80 millj-
óna króna tapi. Við breytingarnar var
gert ráð fyrir því að lögreglulið Suð-
urnesja væri skipað í kringum 90 lög-
reglumönnum auk yfirstjórnar. Ráð-
gert var að flugvöllurinn heyrði undir
samgönguráðuneytið, tollurinn, 52
menn, undir fjármálaráðuneytið og
lögreglumenn myndu heyra und-
ir dómsmálaráðuneytið. Við þessar
breytingar yrði fjárhagsvandi emb-
ættisins úr sögunni.
Óánægja lögreglumanna
Jóhann og aðrir yfirmenn voru
hlynntir því að skipta embættinu
upp en samkvæmt heimildum DV
hafði þessi útfærsla aldrei verið
rædd. Hún var ekki borin undir Suð-
urnesjamenn heldur tilkynnti ráð-
herra Jóhanni ákvörðunina um miðj-
an dag og birti svo fréttatilkynningu
um klukkan sex. Í millitíðinni fund-
aði Jóhann með sínum mönnum en
eins og fram kom í fjölmiðlum þenn-
an dag voru blendnar tilfinningar hjá
félögum Lögreglufélags Suðurnesja
og Tollvarðafélags Íslands varðandi
tíðindin. Óánægja var með þá óvissu
sem skapast hafði um yfirstjórn þessa
nýja fyrirkomulags. Ekki lá fyrir hvort
yfirmenn þessa nýja fyrirkomulags
yrðu einn, tveir eða jafnvel þrír.
Jón Halldór Sigurðsson, formaður
Lögreglufélags Suðurnesja, sagði að
kvöldi 19. mars að við þessar breyt-
ingar yrði hættan sú að gott samstarf
í fíkniefnamálum yrði fyrir bí, þrátt
fyrir orð um að lögð yrði áhersla á
að ekki yrði hróflað við hinu nána og
góða samstarfi við lög- og tollgæslu
á svæðinu. Hann sagði að einn hús-
bóndi ætti auðveldara með að segja
tveimur fylkingum að vinna saman
en tveir húsbændur.
Óskaði eftir fundi um starfslok
28. mars bárust fregnir af því að
Jóhann hefði sagt upp störfum sem
lögreglu- og tollstjóri. Reyndin var
sú að hann hafði óskað eftir fundi við
dómsmálaráðherra um starfslok sín.
Það gerði hann í mótmælaskyni við
þá einhliða ráðstöfun ráðuneytisins
að skipta embættinu upp á þennan
hátt. Eyjólfur Kristjánsson, fulltrúi
Jóhanns, sagði þá að með þessu væri
verið að brjóta niður áratuga starf.
Málið tók nýja stefnu fyrsta apríl
þegar forsætisnefnd Alþingis ákvað
að fela Ríkisendurskoðun að gera
úttekt á rekstri embættisins frá því
sameiningin varð 16 mánuðum áður.
Ákveðið var að fresta uppskiptingu
lögreglu- og tollembættisins þar til
skýrsla Ríkisendurskoðunar myndi
liggja fyrir. Um kvöldið spurðist það
út að Jóhann hygðist ekki hætta, eins
og áður hafði verið gefið í skyn. Hann
ætlaði þess í stað að vinna að lausn á
þeirri erfiðu stöðu sem upp var kom-
in.
Aukafjárveiting nauðsynleg
Í lok maí kom skýrsla Ríkisend-
urskoðunar út. Þar sagði að rétt væri
að hrinda tillögum dómsmálaráðu-
neytisins um skiptingu embættis-
ins í framkvæmd. Á sama tíma ætti
að skoða fjárhagslega hagkvæmni
þess að þessar þrjár rekstrareingar
ættu að lúta sömu stjórn. Í skýrsl-
unni sagði einnig að stjórnvöld yrðu
að taka afstöðu til þess hversu mikla
lög- og tollgæslu þyrfti vegna starf-
seminnar á Keflavíkurflugvelli sem
heyrði undir lögreglustjórann á Suð-
urnesjum. Ef halda ætti óbreyttum
mannafla væri ljóst að auka þyrfti
fjárveitingar til löggæsluverkefna um
315 milljónir króna. Það væri nauð-
synlegt til að bæta upp tekjutap og
ná rekstri löggæsluhluta embættis-
ins hallalausum án frekari sparnað-
araðgerða.
Ráðherra hafnar
samskiptavanda
Í skýrslunni var einnig talað um
alvarlegan samskiptavanda milli að-
ila frá því lögreglustjóraembættið
færðist undir dómsmálaráðuneyt-
ið. Þar kom fram að vandinn snerist
ekki bara að boðuðum breytingum á
embættinu. Björn Bjarnason kom af
fjöllum þegar þessi vandi var borinn
upp á hann. „Ég hef ekki orðið var
við neinn samskiptavanda og líklega
hef ég síðan um áramót 2007 ekki
rætt meira við nokkurn forstöðu-
mann en Jóhann R. Benediktsson.
Að þessi aðferð við stjórnun leiði til
samskiptavanda er af og frá – ég skil
satt að segja ekki, hvað í þessum orð-
um ríkisendurskoðunar felst, enda
kemur fram, að hafi þessi vandi ver-
ið fyrir hendi sé hann úr sögunni!“
sagði Björn í samtali við Vísi.
Stirð samskipti staðfest
Í fréttatilkynningu sem Jóhann R.
Benediktsson sendi fjölmiðlum í vik-
unni kemur fram að samskipti ráðu-
neytisins og embættisins hafi verið
afar stirð frá því í mars. Embættið hafi
á undanförnum mánuðum lagt sig
fram við að vinna markvisst að lausn
deilunnar og mætt kröfum ráðuneyt-
isins um fjárhagslega aðgreiningu
tollgæslu, lögreglu og öryggisdeild-
ar á meðan fagleg yfirstjórn þeirra
yrði óbreytt. Sú vinna hafi ekki feng-
ið hljómgrunn ráðuneytisins. Í til-
kynningunni sagði einnig að tilraun-
ir yfirstjórnar embættisins til að bæta
samskipti við ráðuneytið hafi ekki
borið árangur. Algjör trúnaðarbrest-
ur væri á milli aðila.
Jóhann sagði í viðtali við Helga
Seljan í Kastljósi í fyrrakvöld að hann
hefði einungis átt einn fund með
ráðherra frá því í mars.
Í viðtalinu gagnrýndi hann dóms-
málaráðherra og sagði að gjá hafi
myndast á milli ráðherra og þjóðar.
Meint hryðjuverkavá væri á kostnað
almennrar löggæslu. Almenningur
hefði mun meiri þörf fyrir næröryggi.
Eins sagði hann að stækkun og styrk-
ing embættis ríkislögreglustjóra væri
á kostnað annarra lögregluembætta,
þar sem takmarkað fjármagn væri í
boði.
Naut mikillar virðingar
„Hann er heiðarlegasti maður
sem ég þekki,“ segir Grétar Már Sig-
urðsson, ráðuneytisstjóri utanrík-
isráðuneytisins, spurður álits á Jó-
hanni. „Hann er leiðtogi, fær fólk til
að vinna með sér og mikill manna-
sættir,“ bætir hann við en þeir unnu
saman þegar Jóhann var hjá ráðu-
neytinu.
Grétar Már segir að Jóhann hafi
tekið við embætti sínu suður með
sjó á gríðarlegu umbreytingaskeiði,
meiru en menn geri sér grein fyr-
ir. „Hann náði á skömmum tíma að
vinna sér virðingu varnarliðsins og
Mikill mannþekkjari „einn af
hans stærstu kostum er að hann
gefur næstráðendum svigrúm til
að þroskast sem stjórnendur,“ segir
fyrrverandi samstarfsmaður hans.