Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2008, Blaðsíða 20
FRAMTÍÐ KRÓNUNNAR AÐ VEÐI
föstudagur 26. september 200820 Fréttir
„Staða krónunnar í dag er óeðlilega
veik. Þegar algengar neysluvörur
eru orðnar dýrari í nágrannalönd-
um okkar en hér er eitthvað skrýtið
í gangi,“ segir Bjarni Már Gylfason,
hagfræðingur Samtaka iðnaðarins.
„Í mínum huga er alveg ljóst að við
erum að kljást við erfiðar aðstæður,
við erum að kljást við framtíð krón-
unnar. Hún er hér að veði,“ segir
hann.
Gjaldmiðill er hitamælir
Krónan hefur aldrei verið veikari
en síðustu daga og hafa margir velt
því fyrir sér hvort kominn sé tími á að
segja skilið við hana. Bjarni bendir á
að Samtök iðnaðarins hafi lengi vilj-
að taka skrefið til fulls, ganga í Evr-
ópusambandið og taka upp evru.
„Gjaldmiðill er í eðli sínu
ákveðið tæki og virkar eins
og hitamælir á ástand-
ið í efnahagslífinu.
Staða krónunnar
núna er þannig
að endur-
spegla
hvað
er
að gerast í hagkerfinu. Krónan nýtur
ekki mikils trausts. Smæð myntarinn-
ar er líka vandamál því það magnar
upp sveiflur. Ef menn eru svartsýnir
á stöðu efnahagslífsins hér er krón-
an næm fyrir því. Þar sem verðbólga
er nátengd gengisþróun krónunn-
ar gera gengissveiflur okkur nánast
ókleift að ná tökum á verðbólgunni,“
segir Bjarni.
Önnur vandamál með evru
Ásgeir Jónsson, forstöðu-
maður greiningardeildar Kaup-
þings, telur að ástandið væri annað
ef við hefðum þegar tekið upp evru:
„Við hefðum fengið þenslu en hún
hefði jafnvel verið meiri en hún er
nú. Hins vegar hefðum við ekki upp-
lifað þetta fall á fjármálamarkaðin-
um. Allar hagsveiflur á Íslandi hafa
endað með gengisfalli og verðbólgu.
Verðbólgan leiðréttir að einhverju
leyti stöðuna. Þetta háa
gengi var búið að skapa
allt of háan kaup-
mátt fyrir fólk hvað
varðar erlendar
vörur,“ segir
hann.
„Ef við
værum
með
evru myndi leiðréttingin ekki ger-
ast með gengisfellingu heldur með
samdrætti og meira atvinnuleysi,“
segir Ásgeir. „Þau vandamál sem við
glímum við núna væru ekki til stað-
ar ef við værum með evru. Við vær-
um hins vegar með aðrar tegundir
vandamála, líkt og Danir. Fjármála-
kerfið væri þó sterkara fyrir og fólk
byggi við meira öryggi.“
Vantrúin hjá okkur sjálfum
Ásgeir vísar til áhrifa er-
lendra aðila á íslensku
krónuna. „Við verðum að
hafa í huga að erlendir
spákaupmenn koma
inn á markað-
inn árið 2005. Þá
styrkist hún gíf-
urlega og gengis-
vísitalan verður
um 100,“ segir
hann og bendir
á að fall henn-
ar nú í mars
megi að stór-
um hluta rekja
til þess að við-
skipti við erlenda
aðila fóru fram með
skiptasamningum en
skiptamarkaðurinn
datt þá út að verulegu
leyti.
Bjarni veltir fyrir sér
af hverju íslenskir aðilar
sem eiga eignir í útlönd-
um nýti sér ekki tækifær-
ið, þegar krónan er eins
veik og raun ber vitni, og
selji þær í stórum stíl. Það
myndi styrkja stöðu krón-
unnar. Ef íslenskir fjárfest-
ar hefðu fulla trú á krónunni
væri þetta eðlilegt skref. „Það
virðist liggja í loftinu að það
eru ekki bara erlendir fjárfestar
sem hafa vantrú á krónunni. Við
virðumst ekki hafa nægilegt traust á
henni sjálf,“ segir Bjarni.
Seðlabankinn liðkar ekki til
Vangaveltur hafa verið uppi um
að íslensku bankarnir hafi óeðlileg
áhrif á krónuna þar sem ársfjórð-
ungsuppgjör þeirra er í vændum. Ás-
geir segir ljóst að bankar vilji gjarnan
sýna mikið lausafé við uppgjör. „Það
á við alla banka í heimi. Þess vegna
myndast oft hálfgerðar krísur fyr-
ir ársfjórðungsmót. En ég held að
Krónan hefur aldrei verið veikari en undanfarna daga og hefur verðgildi hennar fallið um helming frá ára-
mótum. Bjarni Már Gylfason telur heillavænlegast fyrir íslenskt efnahagslíf að ganga í Evrópusambandið
og taka upp evru. Ásgeir Jónsson segir ekki rétt að kenna krónunni um allt sem illa fer en þó væri betra ef
óstöðugleikinn væri minni en raun ber vitni.
Erla HlynSdóttir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
JapanSkt JEn
t 62,40%
SViSSnESkur franki
t 58,90%
BandaríkJadalur
t 53,69%
EVra
t 53,19%
StErlinGSpund
t 42,35%
krónan fEllur OG fEllur
- svona hefur krónan fallið frá áramótum
„Þegar algengar
neysluvörur eru orðnar
dýrari í nágrannalönd-
um okkar en hér er eitt-
hvað skrýtið í gangi.“
Heimatilbúið vandamál bjarni már
gylfason telur vantrú á krónuna ekki síður
vandamál hér á landi og vísar því á bug að
erlendum fjárfestum og áhrifum erlendis frá
sé einum um að kenna veiking hennar.
Evran ekki algóð Ásgeir Jónsson segir að
vandamálin sem við glímum við nú væru ekki til
staðar ef við værum með evru. Við værum hins
vegar með aðrar tegundir vandamála.
Mynd StEfÁn karlSSOn