Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2008, Síða 22
Söngvaskáldið Bubbi Morthens er einn af uppáhaldsmönnum Svarthöfða. Lífshlaup þessa konungs poppsins er einhvern
veginn þannig að hann umbreytist
stöðugt. Hann er næstum því eins og
teiknimyndafígúran Barbapabbi sem
gat með hugaraflinu breytt sér í næst-
um hvað sem er. Varla er til sá minni-
hlutahópur sem Bubbi hefur ekki
holdgerst í. Í upphafi var hann barn
og gekk í gegnum ákveðnar þrautir og
ólst upp í blokk. Hann varð farand-
verkamaður og beitti hnífi sínum á
fiska milli þess að hann dópaði, drakk
og djammaði. Svarthöfði þekkti í þá
daga hvorki haus né sporð á þessum
villingi sem þvældist af einum stað
á annan með gítar. Það var ekki fyrr
en farandverkamaðurinn kom með
hljómplötu að þjóðin tók eftir þess-
um syni sínum. Á ljóshraða ruku lög
hans upp vinsældalista og allir sungu
Ísbjarnarblús og lifðu sig inn í heim
uppreisnarmannsins sem söng um
vont auðvald og örlög lítilla manna.
Rödd öreiganna small inn í þjóðar-
hjartað.
Barnið sem breyttist í upp-reisnarmann hélt áfram á þróunarbrautinni sem tekur við af spottanum sem liggur
á milli manns og apa. Nú skal skýrt
tekið fram að Svarthöfði er alls ekki að
líkja Bubba við apa. Bubbi fór úr klofs-
tígvélunum og tók af sér svuntuna.
Fiskihnífurinn fór á haugana. Trúba-
dorinn umbreyttist í poppstjörnu og
fór að syngja um ástina. Dópið var
ævinlega skammt undan og þjóðin
sá poppara spretta fram. Hann gekk
í hjónaband og auðvitað kom plata
um þau ósköp. Hann fékk ímynd ást-
fangins fjölskylduföður. Öðru hverju
spratt fram þjóðfélagsgagnrýni en þó
tempruð. Hinn hvassi, óheflaði tónn
hins þjáða verkamanns var horfinn.
Og hann fór í meðferð. Bakkus var
tekinn á beinið og Bubbi breyttist í
bindindismann og seldi þá ímynd
að vera afturbata. Það var einmitt í
framhaldi þess að hann var misnot-
aður. Skemmtirit birti frétt sem bar þá
ósmekklegu fyrirsögn: Bubbi fallinn!
Hann upplifði þá niðurlægingu að
vera misnotaður þar sem fallið átti
einungis við um sígarettur. Hann varð
fórnarlamb, fór í mál og Hæstiréttur
úthlutaði hærri bótum en nauðgaðar
konur fengu.
Popparinn var lengi vel ofan í lífi Bubba og hann söng um ástina. Þegar útrásarævin-týrið hófst bárust þær fréttir
að tryggingafélag hefði keypt rétt-
inn að lögum hans. Bubbi breyttist
úr stífmáluðum og uppdressuðum
poppara í auðmann. Hann baðaði
sig í ljóma eigin gulls og fjárfesti í
hlutabréfum út og suður. Hinn ís-
lenski Che Guevara var orðinn að
auðjöfri sem eyddi tíma sínum í að
spá í vísitölur hlutabréfa. Það fennti
í spor uppreisnarmannsins á her-
mannaklossunum og við tók fágaður
bísnessmaður á lakkskóm. Aðdáunin
dvínaði ekki við þessa umbreytingu.
Miðaldra konur og karlar sungu um
stál og hníf, ást og loks skilnað. Rétt
eins og það kom plata um ástina kom
önnur um þá þjáningu sem fylgir
hjúskaparslitum. En það var huggun
harmi gegn að hann var ennþá auð-
ugur. En mölur og ryð vinna gjarnan
á veraldlegum hlutum. Allt sem fer
upp, kemur aftur niður. Þegar vísi-
tölur Mammons tóku að falla varð
Bubbi eitt fyrsta fórnarlambið. Hann
fór úr jakkafötunum og spariskónum
og tók upp málstað fátækra, rétt eins
og á uppreisnarárunum. Enn ein um-
breytingin varð að veruleika. Bubbi
var aftur orðinn venjulegur borgari
og þurfti að fara af stað með gítar-
inn. Svarthöfði á allar plötur Bubba
og hann dáist að þessum íslenska
Barbapabba sem stöðugt gengur
inn í ný hlutverk. Nú er fram undan
að öreiginn, uppreisnarmaðurinn,
poppstjarnan, auðmaðurinn og fórn-
arlamb hrunsins stígi enn eitt skrefið.
Ríkisútvarpið hefur áttað sig á því
að þetta er rödd sem þarf að heyrast
annars staðar en á hljómplötum.
Hann fær sinn eigin þátt á Rás 2 til að
fjalla um hvað sem er. Svarthöfði vill
meira. Senn styttist í að það þurfi að
velja nýjan forseta í stað núverandi.
Engin spurning er um arftakann. Það
er auðvitað Bubbi kallinn!
föstudagur 26. september 200822 Umræða
BuBBi kallinn!
svarthöfði
Jón TrausTi reynisson riTsTJóri skrifar. Nú falla hliðverðir forsjárhyggjunnar hver á fætur öðrum.
Harða blaðamennskan sigrar
Leiðari
slensk blaðamennska hefur lengst af verið mun mýkri held-
ur en blaðamennska í öðrum lýðræðisríkjum. Tiltölulega stutt
er síðan blöð á Íslandi voru gefin út af stjórnmálaflokkum og
eftir að sú andlýðræðislega tilhögun leið að mestu undir lok
gegndu fjölmiðlar sjálfskipuðu forsjárhlutverki gagnvart almenn-
ingi. Fréttamat byggðist fremur á því sem var almenningi hollt
heldur en því sem almenningur hafði áhuga á. Fjölmiðlar töldu
sig hafa þeim skyldum að gegna að hindra aðgang almennings
að ákveðnum upplýsingum, sérstaklega um viðkvæm mál og að-
ild persóna að umdeildum atburðum í samfélaginu. Í stuttu máli
litu þeir svo á að samfélagið væri samansafn stofnana og fyrirtækja
frekar en fólks.
Íslenskir blaðamenn hafa á undanförnum árum barist fyrir forræð-
ishyggju í blaðamennsku. Haldnir hafa verið fundir á vegum Blaða-
mannafélagsins, meðal annars til að spyrna fótum við fréttamati
sem byggist á vilja fólksins í landinu. Blaðamenn hafa gagnrýnt það
sem þeir kalla „infotainment“, eða skemmtifréttir, á þeim grund-
velli að þær stuðli að forheimskun þjóðarinnar. Nú sækir hið nýja
fréttamat sífellt í sig veðrið með auknum upplýsingum og meiri
hörku við öflun upplýsinga sem almenningur lætur sig varða.
Á tímabili var DV eina blaðið sem stundaði harða blaðamennsku.
Síðar bættust Kompás á Stöð 2 og Vísir.is undir ritstjórn Óskars
Hrafns Þorvaldssonar í hópinn. Nú þegar skammt er liðið af frétta-
stjóratíð Óskars á fréttastofu Stöðvar 2 er augljóst að hún stefnir á
harða „tabloid“-blaðamennsku.
Hérlendis hefur hópur þeirra sem haldinn er fordómum gagn-
vart harðri blaðamennsku farið mikinn. Það sem erlendis er kall-
að tabloid er hér kallað slúðurblað. Líkt og fréttir þessara blaða séu
í reynd óstaðfest slúður og lúti öðrum lögmálum en aðrar fréttir.
Reyndin er hins vegar sú að fyrst og fremst er um áherslumun að
ræða. Fréttamat tabloid-blaðs lýtur lögmálum eftirspurnar. Það
tekur mið af þeim málum sem fólk hefur áhuga á. Vel heppnað tab-
loid endurspeglar vilja almennings, eins vel og það er hægt. Að því
leytinu til er tabloid lýðræðislegur fréttamiðill en andstæðan er á
sinn hátt kommúnísk eða í besta falli sósíaldemókratísk.
Sumir hafa gagnrýnt harða blaðamennsku á þeim forsendum að
þar sé „bara verið að reyna að selja blöð“. Í sjálfu sér er fátt lýðræðis-
legra en að vera valinn af stórum hluta almennings sem upplýsinga-
miðill. Rétt eins og lýðræði felst í því að vinsælir stjórnmálamenn
eru kosnir til metorða. Þá gildir orðspor ekki síður en dagsform.
Nú falla hliðverðir forsjárhyggjunnar hver á fætur öðrum. Með til-
komu bloggmiðla hefur reynst erfiðara fyrir fjölmiðlamenn að
halda upplýsingum frá fólki. Blaðamenn verða ekki lengur ósýni-
leg hönd hliðvarðanna. Best er að almenningur og upplýsingarnar
njóti vafans. Fólk getur ekki metið hvort upplýsingar séu mikilvæg-
ar nema það fái tækifæri til þess fyrir hliðvörðum fjölmiðlanna.
spurningin
„Nylon er ekki með
umboðsmann eins
og stendur og sér
bara um sig sjálf,“
segir Klara Ósk
Elíasdóttir söng-
kona. einar bárðar-
son tilkynnti fyrr á
árinu að hann væri
hættur sem um-
boðsmaður Nylon. Í viðtali við dV í vik-
unni tóku stúlkurnar skýrt fram að þær
væru ekki í pásu, þær væru einfaldlega
að elta það sem þeim þætti flott.
Hver er nýi
umBinn?
sandkorn
n Mjög hefur hitnað undir Dav-
íð Oddssyni seðlabankastjóra,
innan flokks sem utan. Þor-
gerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra gaf Davíð
langt nef með því að samþykkja
að Elín Hirst yrði tekin úr sæti
fréttastjóra og sett á gólfið. Davíð
varð æfur og hefndi sín með því
að fara í frægt drottningarviðtal
á Stöð 2 þar sem hann var ekki
spurður einnar gagnrýninnar
spurningar. Nú hefur Þorgerð-
ur enn reitt til höggs og lýst því
sem sitjandi forsætisráðherra að
nauðsynlegt sé að endurskoða
peningastefnuna sem er jú á
ábyrgð Davíðs.
n Ekki þykir ólíklegt að Geir
Haarde forsætisráðherra sé með
Þorgerði Katrínu í ráðum um að
sækja að Davíð Oddssyni seðl-
bankastjóra.
Hugsanlegt
er þannig
að verið sé
að undirbúa
leiftursókn
gegn hinum
óvinsæla
seðlabanka-
stjóra. Innan
úr bankanum heyrist að ofríki
formanns bankastjórnar sé slíkt
að hinir bankastjórarnir vilji sem
minnst með hann hafa. Kuldi og
fálæti einkennir því tríóið sem á
að framfylgja peningamálastefn-
unni.
n Óhætt er að segja að súlu-
kóngurinn og veitingamaður-
inn Ásgeir Davíðsson eigi ekki
auðvelt uppdráttar í heima-
bæ sínum, Kópavogi. Ásgeir er
góðvinur Gunnars Birgissonar
bæjarstjóra sem deilir áhuga-
málum með Ásgeiri. Nú stendur
baráttan um nektardansinn sem
hæst. Guðríður Arnardóttir,
bæjarfulltrúi Samfylkingar, gerði
lokatilraun til að afstýra því að
bæjarráð veitti leyfið en bæjar-
stjórinn og hans lið sáu til þess
að tillagan var felld.
n Líkamsræktartröllið Benjamín
Þór Þorgrímsson hefur heldur
betur verið á milli tannanna
á fólki eftir að Kompás sýndi
myndbrot þar sem hann gekk
í skrokk á hinum skuldseiga
Ragnari Magnússyni, oft kennd-
um við brunabíla. Benjamín
hefur gengið illa að hrekja af sér
þann orðróm að hann sé vaskur
handrukkari og ekki var Komp-
ásþátturinn beinlínis til að slá á
þann orðróm. Benjamín hefur
starfað sem
einkaþjálfari
í World Class
en í kjölfar
sýningar
Kompáss sá
Dísa í World
Class sig
tilneydda til
að senda frá
sér yfirlýsingu um að Benjamín
hefði verið látinn fara. Hann
virðist þó síður en svo af bakki
dottinn og líkamsræktendur sáu
til hans pumpa járnið í jötun-
móð í World Class í Laugum á
miðvikudag. Heldur þótti kapp-
inn þrútinn og reiður ásýndum
en pirringurinn er þó ekki meiri
en svo að hann stundar enn lyft-
ingar á sínum gamla vinnustað.
LyngháLs 5, 110 Reykjavík
Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf.
Stjórnarformaður: hreinn Loftsson
framkvæmdaStjóri: elín Ragnarsdóttir
ritStjórar:
jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir Traustason, rt@dv.is
fréttaStjórar:
Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is
og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is
auglýSingaStjóri:
ásmundur helgason, asi@birtingur.is
dV á NetiNu: dV.is
aðalNúmer: 512 7000, ritstjórN: 512 7010,
áskriftarsÍmi: 512 7080, auglýsiNgar: 515 70 50.
Umbrot: dV. Prentvinnsla: landsprent. Dreifing: árvakur.
dV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
„Mér finnst þú
geðveikislega
flottur.“
n Beggi, kærasti Pacasar, við
Arnar Grant líkamsræktartröll
þegar hann sá hann í sturtunni í
Wolrd Class. – DV
„Ég get ekki séð
að nokkur
manneskja
með fötlun
komist þarna niður.“
n Guðríður Haraldsdóttir, aðstoðarritstjóri
Vikunnar, um stoppistöð Strætó við Select á
Vesturlandsvegi. Þegar út er komið er maður úti á
miðri götu og við tekur þverhnípt brekka. – DV
„Ég finn fyrir
anda Snorra á
hverjum degi.
Mér finnst ég
jafnvel sjá gamla
manninn skondra um
hlöðin.“
n Guðmundur Ólafsson, hagfræðingur og íbúi í
Reykholti í Borgarfirði þar sem Snorri Sturluson
bjó. – DV
„Konungar eru aldrei
ódýrir.“
Sigrún Stefánsdóttir,
dagskrárstjóri Útvarps, um
hvað það kostaði að fá Bubba
Morthens til að stjórna
útvarpsþætti á Rás 2. – Fréttablaðið
„Félagi minn hringdi í mig
eftir þáttinn og sagðist
ætla að hætta með kon-
unni sinni og fara að leigja
með mér niðri í miðbæ.“
n Davíð Guðbrandsson, aðalleikari Svartra
engla, um þá athygli sem hann hefur fengið eftir
að þátturinn fór í sýningar. – 24 stundir
bókstafLega
Í