Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2008, Page 23
föstudagur 26. september 2008 23Umræða
Á hverjum einasta degi berast okk-
ur fréttir af ofbeldi gagnvart börnum
sem þrífst eins og púkinn á fjósbitan-
um í skjóli heimila og annarra þeirra
staða þar sem börn eiga að njóta ör-
yggis, verndar og umhyggju.
Þessar fréttir eru oft svo fjand-
samlegar öllu eðlilegu lífi að maður
verður dapur og reiður og hlýtur að
spyrja: Hvað er það eiginlega í sálar-
tetri fullorðins fólks – bæði karla og
kvenna því konur eru ekki undan-
skildar – sem gerir það að verkum að
það nýtur þess að kvelja lítið fólk og
varnarlaust?
Auðvitað er þetta spurning sem
engin leið er að svara til fulls, svörin
verða eflaust fleiri en ofbeldisbrotin,
en hverju og einu okkar ber að spyrja
hennar því án svaranna, þótt ófull-
komin séu, heldur ofbeldið áfram í
allri sinni grimmd og leynd.
Ég segi leynd því það er með of-
beldið eins og ísjakann; við sjáum
bara lítinn hluta hans, stærsti hlut-
inn er falinn í hafinu og sést ekki
nema kafað sé. Í skjóli leyndarinnar
þar sem skelfingin ræður ríkjum eru
framin ofbeldisbrot á börnum sem
aldrei munu komast upp um nema
við hlífum okkur ekki, spyrjum okkur
erfiðra spurninga, lítum aldrei und-
an og segjum að okkur komi ofbeld-
ið ekki við.
Ef við leitum ekki svara berum
við ábyrgð þótt óbein sé; við ber-
um sameiginlega ábyrgð á ofbeldi
gagnvart börnum ef við segjum að
við getum ekki rætt svona mál, ekki
hugsað um þau, ekki lesið um þau,
ekki horft á afhjúpun þeirra vegna
þess að ofbeldið særi vitund okk-
ar og trufli vellíðan og sakleysi hins
verndaða lífs okkar.
Árið 1965 var 16 ára stúlka myrt á
heimili fóstru sinnar, en þar dvaldi
hún vegna fjarveru foreldranna.
Fóstran lét skap sitt fljótt bitna á
stúlkunni og snemma hóf hún að
beita hana líkamlegu ofbeldi sem óx
dag frá degi. Hún kom henni fyrir í
kjallara hússins þar sem hún kvaldi
hana og píndi og svo fór að hún fékk
börnin sín og félaga stúlkunnar til
að níðast á henni líka; hún sagði
þeim að það gerði ekkert til vegna
þess að stúlkan ætti ofbeldið skilið
og væri gjörsamlega tilfinningalaus.
Börnin trúðu fóstrunni og nutu þess
að kvelja stúlkuna og ekki skorti þau
ímyndunaraflið í aðferðunum frek-
ar en fóstruna.
Að endingu lét stúlkan lífið.
Morðið á Sylvíu Likens var eitt
voðalegasta sakamál í sögu Banda-
ríkjanna.
Fólki varð tíðrætt um hvernig á
því stæði að slíkur glæpur hefði get-
að átt sér stað í miðju hverfi í Indi-
anapolis? Og svarið var: Nágrann-
arnir létu sem þeir heyrðu ekki
kvalaópin sem bárust frá húsinu og
vildu heldur ekki skipta sér af því
sem þeir töldu að þeim kæmi ekki
við. Það var því hið meinta afskipta-
leysi sem dæmdi saklausa stúlku til
dauða og á því er engin réttlæting.
Þannig er það!
Hver er maðurinn? „Vesturbæing-
ur, mamma og bíóáhugamaður.“
Hvað drífur þig áfram? „að vinna
að einhverju sem mér finnst skipta
máli og svo auðvitað góður
félagsskapur.“
Hvaðan ertu ættuð? „reykjavík.“
Hvert er uppáhaldsnammið þitt?
„prins póló og popp.“
Hvert myndir þú helst vilja
ferðast í heiminum? „Væri til í að
fara til argentínu.“
Hvernig kvikmyndir eru í
uppáhaldi? „Ég er mest fyrir
dramatík.“
Besta íslenska myndin? „Það er
erfitt að gera upp á milli þeirra.“
Hvaða mynd lét þig síðast fá
gæsahúð? „myndin skelfilega
hamingjusamur.“ (danska myndin
frygtelig lykkelig.)
Hversu mikið hefur RIFF
stækkað og breyst á undanförn-
um árum? „Ég myndi segja að rIff
væri komin vel á unglingsárin.“
Er raunhæft markmið að RIFF
verði A-hátíð? „Það er allt hægt ef
viljinn er fyrir hendi.“
Íslensk kvikmyndagerð er...?
„...að springa út.“
Ef þú mættir leika í einhverri
mynd sem þú hefur séð, hvaða
mynd væri það? „Ég myndi vilja
leika skassið í With Your permission.“
En hver myndi leika þig? „Kannski
paprika steen.“ (dönsk leikkona sem
lék meðal annars í festen.)
Af hverju ætti fólk að fara á
RIFF? „af því að þar eru sýndar svo
svalar myndir.“
Um börn, ábyrgð og ofbeldi
SnjóAR á HálEndInu Hálendið er þegar farið að taka á sig hvítan lit og víst að veðurguðirnir eru ekki í neinu sólskinsskapi lengur. Þó létu sólargeislar sjá sig á höfuðborg-
arsvæðinu í gær eftir miklar rigningar. MYnd dV / HEIðA HElgAdóttIR
Hvað finnst þér um að bílum sé lagt ólöglega?
„Það getur verið rosalega pirrandi en
fer eftir því hvar þeim er lagt.“
HInRIk áSgEIRSSon,
19 ára nemI
„Það er mjög neikvætt að leggja
ólöglega og getur skapað mikla
hættu.“
kRIStÍn SIgtRYggSdóttIR,
57 ára marKaðsstjórI
„Ég geri það nú stundum sjálfur, það er
samt mjög heimskulegt.“
HöRðuR HARðARSon,
28 ára lagerstjórI
„ef menn leggja ólöglega geta þeir
skapað hættu.“
SIguRðuR ERlEndSSon,
61 árs málarI
Dómstóll götunnar
HRönn MARÍnóSdóttIR er
framkvæmdastjóri Alþjóðlegu
kvikmyndahátíðarinnar í
Reykjavík sem hófst í gær.
Hátíðin stendur til 5. október.
Hrönn segir íslenska kvikmynda-
gerð vera að springa út og RIFF
einungis vera ungling á
þroskaskalanum.
RIFF eR unglInguR
„Það er alveg glatað og getur verið
mjög hættulegt.“
BEnEdIkt SIguRðSSon,
36 ára prentsmIður
kjallari
mynDin maður Dagsins
VIgdÍS
gRÍMSdóttIR
rithöfundur skrifar
„Nágrannarnir létu
sem þeir heyrðu ekki
kvalaópin sem bárust
frá húsinu.“