Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2008, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2008, Qupperneq 24
FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 200824 Fókus u m h e l g i n a Brotahöfuð til Danmerkur SkáldSagan Brotahöfuð eftir Þórarin eldjárn hefur verið Seld til danmerkur til forlagSinS Poul kriStenSenS. Bókin hefur Þegar verið gefin út í Bretlandi, finnlandi og frakklandi auk ÞeSS að vera tilnefnd til ýmiSSa verðlauna, meðal annarS Bókmenntaverð- launa evróPu og vera með Því eina íSlenSka Bókin Sem hlotnaSt hefur Sá heiður. erlendir gagnrýnendur hafa tekið vel og meðal annarS Sagt hana SérStaklega Skemmtilega. fyrsta tóm- asarmessan Fyrsta Tómasarmessan í Breið- holtskirkju á þessu hausti fer fram á sunnudagskvöldið klukkan átta. Tómasarmessan hefur unnið sér fastan sess í kirkjulífi borgarinn- ar en slík messa hefur verið haldin í Breiðholtskirkju í Mjódd síðasta sunnudag í mánuði frá hausti til vors síðustu ellefu árin og verður engin breyting þar á í ár. Framkvæmdaað- ilar þessa messuhalds eru Breið- holtskirkja, Kristilega skólahreyf- ingin, Félag guðfræðinema, hópur presa og djákna. Tómasarmessan einkennist af fjölbreytilegum söng og tónlist, mikil áhersla er lögð á fyrirbænaþjónustu og sömuleiðis á virka þátttöku leikmanna. Páls saga í kilju Bókaforlagið Veröld hefur gefið út í kilju Páls sögu eftir Ólaf Jóhann Sigurðsson. Saga Ólafs Jóhanns af Páli Jónssyni blaðamanni kom út í þremur hlutum á árunum 1955-1983 og er hér að finna fyrstu tvo, Gangvirkið og Seið og hélog. Lokaþáttur bálksins, Drek- ar og smáfuglar, er væntanlegur á markað á nýju ári en þríleikurinn hefur verið ófáanlegur um langt árabil. Ólafur Jóhann Sigurðs- son hlaut bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 1976, fyrst- ur Íslendinga. Á bókarkápu Páls sögu er vitnað í Vigdísi Finnboga- dótur, fyrrverandi forseta Íslands, Arnald Indriðason rithöfund, og Véstein Ólason prófessor um verk Ólafs Jóhanns. Charlie Bartlett er fínn gaur, skynsamur, vinalegur og fær sam- stundis samúð manns. Hann er vissulega hástéttarnörd sem á tæpa mömmu en hann er metnaðarfullur í að ná vinsældum og oftar en ekki með vafasömum aðferðum. Þetta gerir að hann fær hvergi inni í skól- um þrátt fyrir drjúgan efnahag fjöl- skyldu hans. Hann vill öllum vel, tekur að sér að hlusta á vandamál allra annarra og reynir að leysa úr þeim eftir fremsta megni. En til að komast í þá stöðu stundar hann eit- urlyfjasölu, skjalafals og fleira í þeim dúr. Þessi mynd er enn eitt dæm- ið um misræmi milli „treilera“ og svo sjálfrar kvikmyndarinnar. Treil- erinn leit mjög óspennandi út, en það gerði líka Juno-treilerinn og sú mynd var frábær. Charlie Bartlett er ekki alveg svo góð en engu að síður prýðileg í marga staði. Sérstaklega í flóði unglingamynda á vitsmuna- stigi einfrumunga. Hún minnir um margt á Pump Up the Volume með undirstrikun sinni á því að ungling- ar standi sem einstaklingar á þeim aldri sem það er hvað erfiðast. Ekki á þann hátt að „nördið“ endi á að kýla aðalhrekkjusvínið í tertu fyrir framan klappstýrurnar á einhverju kjánalegu „prom-balli“. Heldur með því að fylgja eftir eigin draumum og búa til sinn eigin hóp ef aðrir hópar vilja ekki leika. Mestu böl Vesturlanda eru heró- ín, alnæmi og bandarískar unglinga- myndir. Þessi mynd er ekki í þeim hópi og sneiðir snyrtilega framhjá klisjum. Hinn rússnesk fæddi Ant- on Yelchin er vafalaust góður leik- ari þrátt fyrir að vera bara nítján ára. Aðrir standa sig með einnig með prýði. Charlie Bartlett væri fínt efni í sjónvarpsþáttaröð og kannski myndi það form jafnvel henta bet- ur en kvikmynd. Unglingamynd um stelpur, stefnumót, uppreisn, sleik, þunglyndi, fjölskylduvandamál, vinsældir og hversu miklu má fórna fyrir þær. Charlie Bartlett hefur þetta allt en er í grunninn gáfuleg ungl- ingamynd um að standa með sjálf- um sér. Erpur Eyvindarson Dæmisaga hástéttarnörds Krissý verður sextán ára í lok desember og lauk þar af leiðandi grunnskólanámi síðasta vor. Ásamt því að vera í fullu námi í Tónlistarskóla Reykjavíkur er Krissý í þremur fögum í Fjölbrautaskólan- um í Ármúla og nú þegar komin inn í diplómanám í Listaháskóla Íslands en hefur þó ekki nám í skólanum fyrr en næsta haust. Það má því með sanni segja að þessi unga dama hafi nóg fyrir stafni. „Ég er fædd og uppalin í Hvera- gerði og bý þar núna. Mamma mín keyrði mig alltaf fram og til baka í fiðlutíma frá 2001 til 2006. Þegar ég var svo orðin nógu gömul fór ég að taka rútuna á milli en undanfarið hef ég getað fengið far hjá pabba í bæinn en hann keyrir ísbíl á milli Hveragerðis og Reykjavíkur. Svo tek ég bara rútuna heim.“ Komin með diplóma átján ára Krissý hóf fiðlunám sitt í Hvera- gerði tæplega sjö ára. „Vinkona mín var að læra á fiðlu svo ég ákvað að prófa líka. Ég var í þrjú ár í fiðlunámi í Hveragerði hjá Guðmundi Páls- syni. Svo byrjaði ég í Zuzuki-tónlist- arskólanum hjá Lilju Hjaltadóttur þar sem ég var í fjögur ár og byrjaði svo árið 2006 hér í Tónlistarskólan- um í Reykjavík hjá Auði Hafsteins- dóttur,“ segir hún en kennari Krissý- ar í dag er Guðný Guðmundsdóttir. Eins og áður sagði lýkur Krissý áttunda stigi í fiðluleik í vor og má með því segja að hún ljúki jafnframt svokölluðu framhaldsstigi. „Þetta skiptist eiginlega í grunn- stig, miðstig og framhaldsstig en sjöunda og áttunda stig eru fram- haldsstigin svo þegar ég lýk náminu héðan verð ég búin með öll stigin. Ég hætti hérna á næsta ári til að fara í Listaháskólann en ég komst inn í hann í vor en mig vantaði aðeins upp á í tónheyrn og hljómfræði til að geta byrjað strax. Ég komst alveg inn á spiliríinu sjálfu en þar sem ég sótti um dipl- ómanámið sem er tveggja ára nám vantaði mig tónheyrnina og hljóm- fræðina upp á. Það hefði verið öðru- vísi ef ég hefði sótt um bachel- or-námið sem er fjögur ár. En mig langar bara til að klára þetta sem fyrst og stefni á að vera komin með diplóma átján ára.“ Ætlar út í framhaldsnám Krissý hefur því verið á sumar- námskeiði í tónheyrn og hljóm- fræði en hún byrjaði ekki að læra neina tónfræði fyrr en á fimmta ári sínu í fiðlunámi. „Tónfræðin var ekki kennd á þeim tíma í Hveragerði. Í Zuzuki er notast við þá aðferð að nemend- ur læra eftir eyranu og maður lær- ir aldrei með nótur fyrir framan sig. Ég fékk bara disk til að hlusta á og læra að spila eftir. Þetta er mjög flott aðferð.“ Þrátt fyrir að ætla sér að klára diplómanámið einungis átján ára segir Krissý þó að hún gæti verið búin mun fyrr ef hún hefði feng- ið nægilega góðar aðstæður til að stunda námið við í upphafi. „Ef ég hefði til dæmis verið í námi í Reykjavík allan tímann hefði ég klárað miklu fyrr en átján ára er svo sem fínn aldur. Sautján ára er talið svolítið ungt,“ segir hún en Krissý stefnir á framhaldsnám er- lendis. „Ég er ekkert búin að ákveða ná- kvæmlega hvert ég ætla en það tala allir um að það sé mjög góð kennsla í Bretlandi, Þýskalandi og Banda- ríkjunum svo ég stefni örugglega eitthvað þangað. Ég gæti hugsað mér að taka mastersnám úti í fimm ár og koma svo annaðhvort hingað heim eða halda áfram að vera úti og vinna annaðhvort sem einleikari eða kennari.“ Þurfti að hlusta á klassíska tónlist í tvo tíma á dag Spurð um Sinfóníuhljómsveit- ina viðurkennir Krissý að hafa lítinn sem engan áhuga á að starfa í sveit- inni í framtíðinni. „Það er allavega alls enginn draumur hjá mér að fara í Sinfóní- una. Ég er búin að heyra að það sé allt of mikið að gera hjá þeim sem eru í sveitinni og ég er hrædd um að þá hafi maður ekki tíma í neitt annað. Ég myndi frekar vilja vera kvikmyndir Charlie Bartlett Leikstjórn: Jon Poll Aðalhlutverk: Anton Yelchin, Robert Downey Jr., Hope Davis, Tyler Hilton eð ísbíl í fiðlutíma Á áttunda stigi í fiðluleik Krissý Thelma lýkur áttunda stigi í fiðluleik frá Tónlistarskóla Reykjavíkur í vor. Hún er nú þegar komin inn í diplómanám við Listaháskóla Íslands næsta haust sem hún stefnir á að ljúka átján ára gömul og halda þá utan í frekara nám. mynd heiðA hreyfing kristínar Kristín Tryggvadóttir opnar myndlist- arsýningu sína í Reykjavík Art Gallery, Skúlagötu 30 á morgun, laugardag, klukkan tvö. Kristín hefur undan- farin fjórtán ár unnið að listsköpun, haldið átta einkasýningar og tekið þátt í fimm samsýningum. Hún rek- ur ásamt tíu öðrum listamönnum vinnustofuna ART 11 í Auðbrekku í Kópavogi. Auk þess er Kristín félagi í Sambandi íslenskra myndlistar- manna. Í sýningu Kristínar sem nefn- ist Hreyfing er minimalisminn meg- inmálið. Engin mörk eða höft voru sett en frelsi og flug haft að leiðarljósi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.