Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2008, Side 46

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2008, Side 46
föstudagur 26. september 200846 Ferðir DV Á ferðinni Staðreyndir um Víetnam Höfuðborg: Hanoi Sjálfstæði: 2. september 1945 (frá Japan) Stærð: 331.690 ferkílómetrar Fólksfjöldi: 86 milljónir tungumál: Víetnamska trú: 85% búddatrúar, 8% kristin, 7% annað umsJón: Ásgeir Jónsson asgeir@dv.is LeðurbLöku- og snákaát í nam Margir hoppa hæð sína af hræðslu við það eitt að sjá leðurblökur, snáka eða mýs. Krist- ján Hrafn Guðmundsson og Heiðrún Grétarsdóttir hræðast þessi dýr líka allajafna. En ekki kvöld eitt í Víetnam fyrir tveimur árum. Ef ég væri spurður hvaða þrjú dýr mér fyndist þau ófrýnileg- ustu í þessari veröld myndi ég líklega segja leðurblökur, snákar og köngulær. Sú staðreynd kom þó ekki í veg fyrir að ég smakkaði tvö þessara kvikinda í Víetnam kvöld eitt í nóvember fyrir bráð- um tveimur árum. Og eins og það væri ekki nóg fékk ég mér smá smakk af mús í eftirrétt. Frá apocalypse now til skítabúllu Þetta átti sér stað í bakpoka- ferðalagi um Taíland, Kambódíu, Víetnam og Laos sem ég fór í með kærustu minni á haustmánuðum 2006. Til að gera langa sögu ekki jafnlanga kynntumst við tveim- ur þýskum strákum og breskri stelpu á báti á leið frá Kambódíu til Víetnam. Áin sem siglt var eftir var Mekong sem komið hefur við sögu í þó nokkrum Hollywood- myndum. Með The Doors í eyrun- um fannst mér ég hreinlega vera kominn inn í Apocalypse Now. Stefnan var tekin á Ho Chi Minh sem Vesturlandabúar þekkja betur sem Saigon. Þegar í höfn var komið í bænum Chau Doc, um 100 þúsund manna þorpi við árbakka Mekong, um tvöleytið eftir hádegi stóð valið á milli þess að hoppa upp í mini- bus með fótapláss passlegt fyrir innfædda (meðalhæð Víetnama er í mesta lagi einn og ilsig) til að halda áleiðis til Ho Chi Minh – ferð sem tekur um sex tíma – eða gista eina nótt í Chau Doc. Völd- um við skötuhjú seinni kostinn. Við fórum því á eitt gistiheimil- anna sem mælt er með í Lonely Planet og fengum þar þetta líka fína herbergi með loftkælingu og heitu vatni fyrir skitna tíu dollara, eða um 700 krónur eins og geng- ið var þá. Í ljós kom svo að Þjóðverjarnir og breska stelpan ákvaðu líka að gista í Chau Doc, og það á sama gistiheimili, og æxluðust hlutirnir þannig að við fórum með þeim út að borða um kvöldið. Við enduð- um svo á stað sem einn innfædd- ur piltur sagði að byði upp á fínan mat og ódýran og bragðgóðan ví- etnamskan bjór. Í stuttu máli var þessi „veitingastaður“ afar óað- laðandi búlla, sumir myndu lík- lega nota orðið „skítabúlla“, með þeim allra minnstu plaststólum og -borðum sem ég hef séð. En við slógum til. „roasted snake“, „fried bats“ Ég held að það sé óhætt að segja að það hafi verið ákveð- inn vendipunktur á kvöldinu þegar matseðill þessarar búllu var opnaður. Réttir eins og „ro- asted snake“, „deep-fried snake“, „steamed bats“ og „fried bats“ blöstu við okkur. Eftir að við höfð- um öll fengið þvagfærasýkingu af hlátri yfir því sem boðið var upp á var að sjálfsögðu bara eitt að gera í stöðunni fyrir evrópska bakpoka- ferðalanga í leit að ævintýrum í Austurlöndum fjær: panta helvít- is snákinn og leðurblökurnar! Fyrst komu vængjuðu ófreskj- urnar, og ef ég hef einhvern tím- ann verið brjálaður yfir því að vera ekki með myndavél á mér var það þarna. Á diskinum sem þjónninn kom með voru átta litl- ar leðurblökur, um það bil á stærð við hamstra, kolsvartar að lit eft- ir steikinguna. Það eina sem var eftir af vængjunum voru tvö lítil bein sem stóðu hvort út úr sinni „öxl“ kvikindanna. En hausarnir voru ennþá á! Eftir að þvagfærasýkingin var kölluð fram að nýju með væn- um af skammti af hlátri yfir út- liti kvöldverðarins og vitanlega tilheyrandi upphrópunum um hversu viðbjóðslega þetta liti út, var komið að hinu óumflýjan- lega: að smakka á réttinum. Þessi blessuðu kvikindi voru nánast bragðlaus enda voru þau algjör- lega grilluð í gegn. Ekki fór mik- ið fyrir kjötinu þannig að það sem við tugðum með viðbjóðssvip í framan var fyrst og fremst skinn og bein, og væntanlega einhver óbjóðs innyfli. Við létum hausana vera, enda ekki framkvæmanlegt að renna þeim niður fyrir minna en milljón dollara. mús er lostæti Næst kom snákurinn, bútaður niður í munnstóra bita og til að vera ekki með einhverjar mála- lengingar smakkaðist hann ótrú- lega vel. Á hinn bóginn má velta fyrir sér hvað smakkast ekki vel eftir að þú hefur nýlokið við að éta leðurblöku. Þegar hér var komið sögu vorum við hin fimm fræknu orðin það óstöðvandi í ógeðsát- inu að þegar í ljós kom að nokkrir Víetnamar á næsta borði voru að éta steiktar mýs (for the record: þær voru hvegi sjáanlegar á mat- seðlinum) kröfðumst við þess að sjálfsögðu að fá að smakka. Það var sjálfsagt af „Namanna“ hálfu, og viti menn: steikt mús er lost- æti, enda bragðast hún nánast al- veg eins og kjúklingur! Eftir þetta ævintýri hafa ég og betri helming- urinn hlegið að íslenskum þorra- mat. Að borða hann er nú eins og að drekka íslenskt kranavatn. Kristján Hrafn Guðmundsson Friðlýsing Skjálfandafljóts stofnaður hefur verið áhugahópur um friðlýsingu skjálfandafljóts. Það er markmið hópsins að vinna að friðlýsingu alls vatnasviðs skjálfandafljóts, stuðla að friðun og varðveislu landslags þess, náttúrufars og menningarminja ásamt því að það verði notað til útivistar, ferðaþjónustu og hefðbundinna nytja. Heimasíða hópsins er skjalfandafljot.is og má þar nálgast frekari upplýsingar um starfsemi hópsins. LeðurbLöKuætur frá vinstri: rebecca frá bretlandi, markús frá Þýskalandi og greinarhöfundur. HíbýLi Við baKKa meKonG fasteignamarkaðurinn við mekong- ána ku vera nokkuð stöðugur. Jarlhettur, Silf- urgata og Aust- urstræti Jarlhettur, Jarlhettutraðir, Langleiðin, silfurgata, farvegur og austurstræti eru á meðal tilnefninga að nafni á nýrri gönguleið ferðafélags Íslands sem liggur frá skálpanesi, um Jarlhettudal að skála fÍ við einifell, yfir nýja brú fÍ yfir farið, að Hlöðuvöllum undir Hlöðufell, að Karli og Kerlingu undir skjaldbreið, inn Langadal, um Klukkuskarð og að Laugarvatni. ferðafélagið fór þessa leið fyrst árið 2006 og hefur leiðin notið vaxandi vinsælda. ólafur örn Haraldsson, sem hefur verið fararstjóri fÍ í þessum ferðum og hugmyndasmiður að leiðinni, taldi tímabært að gefa henni nafn og var því óskað eftir tillögum. borist hafa um fimmtíu tillögur en tilkynnt verður um sigurvegara í desember. Lífríki Íslands flestir íslenskir ferðalangar eru væntanlega áhugasamir um lífríki Íslands og velferð þess. Því er vert að benda áhugasömum á fræðsluerindi sem dr. snorri baldursson og dr. bjarni diðrik sigurðsson flytja um rannsóknir á loftslagsbreytingum og áhrif þeirra á lífríki lands og sjávar í öskju við Háskóla Íslands á mánudaginn. erindið er byggt á rannsóknum síðustu ára og nýútkominni skýrslu umhverfis- ráðuneytisins um hnattrænar loftslagsbreytingar og áhrif þeirra á Íslandi. erindið verður haldið klukkan 17.15 í stofu 132 í öskju.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.