Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2008, Blaðsíða 52
Google kynnti í vikunni nýj-
an fjölnotasíma, T-Mobile G1,
í samvinnu við T-Mobile-fjar-
skiptafyrirtækið í Bandaríkjun-
um, síma sem er búinn 3,5G,
snertiskjá, GPS, 3 megapixla
myndavél, þráðlausum netað-
gangi, G-mail, Google Maps með
innbyggðum kompás, YouTube,
stóru lyklaborði og netvafra. Fyr-
irtækið HTC framleiðir sjálfan
vélbúnaðinn en Google þróaði
stýrikerfið fyrir símann, kallað
Android. Síminn kemur á mark-
að í Bandaríkjunum 22. október
næstkomandi, í nóvember í Bret-
landi en það verður ekki fyrr en á
fyrsta ársfjórðungi 2009 sem aðr-
ar Evrópuþjóðir hefja sölu á sím-
anum.
Meginástæðan fyrir innreið
Google á símamarkaðinn er aug-
lýsingatekjur. Því fleiri símnot-
endur sem geta vafrað á netinu,
því meiri auglýsingatekjur fyrir
Google.
Android
Það er líklegt að Android-stýri-
kerfið muni höfða til breiðari hóps
en iPhone þar sem það er búið bæði
Java- og Flash-tækni sem margar
vefsíður byggjast á í dag, ekki síst
YouTube sem er í eigu Google. Stýri-
kerfið er líka opið, sem þýðir að allir
geta breytt því eða bætt, forritasmið-
ir og viðmótshönnuðir munu hafa
frjálsari hendur og uppfærslur verða
að líkindum örari en ella.
Android-stýrikerfið er að auki
frítt, sem gefur símaframleiðend-
um um heim allan kost á að nýta sér
það í síma sína á næstu mánuðum
og misserum. Google mun þó líkt
og Apple halda utan um ýmsa þætti
tengda Android, sett hefur verið á
laggirnar sams konar vefverslun
og AppStore hjá Apple, hjá Google
nefnist hún Android Marketplace
og þaðan getur hinn almenni not-
andi hlaðið niður forritum fyrir
símann, fríum eða gegn gjaldi.
Það sem helst hefur verið gagn-
rýnt varðandi símann er að ýmis-
legt mikilvægt hefur verið skilið
eftir fyrir forritaþróendur að ljúka.
Til dæmis er ekki hægt að taka upp
hreyfimyndir með myndavél sím-
ans þrátt fyrir að tæknin sé fyrir
hendi. Ekki er hægt að spila höf-
undarvarðar tónlistarskrár eins
og keyptar eru í gegnum iTunes
nema breyta þeim fyrst í mp3-
snið. Og reyndar er ekki iTunes í
símanum en honum fylgir þó tón-
listarspilari.
Og að sjálfsögðu er síminn
að mörgu leyti einskorðaður við
þjónustu Google. Ekki er enn sem
komið er hægt að „synca” símann
við tölvu ef þú notar aðra þjón-
ustu en þær sem Google býður
upp á varðandi póst og dagatöl.
Þetta mun þó allt koma til með að
birtast þegar forritarar bretta upp
ermarnar og dæla inn forritum og
lausnum á vefverslunina.
Fleiri Android-símar
Við fyrstu sýn er síminn ágætis
svar við iPhone, hann er ekki eins
fallegur eða notendaviðmót eins
einfalt í meðförum, en hann hefur
alla burði til að þróast hratt og vel.
Aðrir framleiðendur munu koma
með sínar útgáfur síma búna And-
roid-stýrikerfinu þannig að valið
mun aukast fyrir almenning.
palli@dv.is
Afmæli medAl
of Honor
Í tilefni af tíu ára afmæli tölvu-
leiksins Medal of Honor ætlar EA
að gefa út sérstakt afmælisbox.
Boxið mun innihalda fimm Metal
of Honor-leiki sem saman eru um
50 single player-borð og þó
nokkur multiplayer-borð. Einnig
verður alls kyns aukaefni með
boxinu svo sem 14 laga geisla-
diskur, myndefni um gerð
leiksins og fleira góðgæti. EA
mun svo koma með fleiri útspil í
tilefni af afmælinu.
föstudagur 26. september 200852 Helgarblað DV
Tækni
umsjón: pÁLL sVanssOn palli@dv.is
AdoBE MEð uppFærslu Í Cs4
Adobe-fyrirtækið kynnti í vikunni uppfærslu á
Creative suite sem er einn þekktasti forrita-
pakki á sviði hönnunar fyrir prentvinnslu,
myndvinnslu og vefvinnslu í heiminum í dag.
uppfærslan, Cs4, kemur á markað í næsta
mánuði og skartar að venju ýmsum nýjungum
og má þar nefna aukið og auðveldara samræmi
í vinnslu á efni fyrir ólíka miðla.
iPHone seldur
á ÍslAndi?
Við síðustu uppfærslu á iphone-
stýrikerfinu ráku margir íslenskir
notendur símans augun í að því
fylgir íslenskt lyklaborð en áður
var erfiðleikum háð að fá fram
íslenska sérstafi í símanum nema
með ákveðnum viðbótum. Þetta
gefur til kynna að Ísland sé ekki
gleymt í höfuðstöðvum Apple-
fyrirtækisins og það sé í bígerð
að síminn verði seldur hér á landi
í náinni framtíð. Vitað er að
fulltrúar eins af stóru símafyrir-
tækjunum á Íslandi heimsóttu
Apple-fyrirtækið í sumar til að
kynna sér símann.
Bílar & Dekk ehf.
Akursbraut 11
S: 578 2525
Svar GooGle
við iphone-Síma apple
Google-síminn Þrátt fyrir að vera ekki eins fallega hannaður og iphone-sími
apple-fyrirtækisins er síminn góður kostur fyrir stóran hóp almennings.
Google og T-
Mobile kynntu
nýjan fjölnota-
síma í vikunni
en stýrikerfi
símans er þróað
hjá Google. Sím-
inn hefur verið
kallaður svar
Google við
iPhone.