Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2008, Blaðsíða 54
föstudagur 26. september 200854 Tíska DV
Bæker og
Blúndur
Þessi frábæri blúndu-bæker-
jakki er eftir hönnuðina Edward
Medham og Benjamin Kirchoff
en þeir hanna undir merkinu
Medham Kirchoff. Jakkinn er úr
vor- og sumarlínunni 2009 frá
hönnuðunum en þeir hafa meðal
annars hannað töffaralega línu
fyrir Topshop í Bretlandi. Bæker-
leðurjakkar hafa verið hrikalega
heitir undanfarið og virðast ætla
að halda áfram að vera vinsælir
í vetur. Blúndur eru eins nokkuð
sem við virðumst aldrei ætla að
fá nóg af og er þessi jakki því svo
sannarlega hin fullkomna flík í
fataskápinn.
Stígðu út
með þokka
Lindsay Lohan, Mischa Barton
og Britney Spears ættu allar að
fjárfesta í þessum snilldarlegu
Exi-quette bílagardínum. Exi-qu-
ette er sérstaklega hannað til að
hylja heilugustu staði kvenfólks
þegar það stígur út úr bíl í míní-
pilsi. Gardínurnar góðu voru
hannaðar eftir að bílatrygginga-
fyrirtækið Sheila‘s Wheels sýndi
fram á að 64% þeirra kvenna sem
tóku þátt í könnun, eða alls tólf
milljón konur, hafa að minnsta
kosti einu sinni lent í því að stíga
út úr bíl og sýna aðeins meira en
þær ætluðu sér.
Fyrirsætur Falla líka
Það var aldeilis hamagangur
á tískusýningu prada í tísku-
vikunni í mílanó á dögunum.
fyrirsæturnar höfðu greini-
lega verið settar á aðeins of
háa hæla og kolféllu tvær
fyrirsætur á sýningunni.tíska
Umsjón: Krista Hall Netfang: krista@dv.is
„Þau eru einum of mörg,“ svar-
ar Unnur Líf Ingadóttir hlæjandi að-
spurð hversu mörg skópör stúlkan
eigi en það má með sanni segja að
hún sé forfallinn skófíkill. „Á þessum
vegg taldi ég hundrað og tíu pör um
daginn. Þetta eru aðallega svona fínni
skór en síðan á ég fullt af íþróttaskóm
og sandölum sem ég geymi bara inni
í skáp.“
Unnur starfar í versluninni B&S
konur í Smáralind en þar á undan
starfaði hún í skóverslun þar sem hún
segir skóáhugann hafa vaknað fyrir
alvöru.
„Ég byrjaði að vinna í skóversl-
un fyrir þremur árum og keypti mér
þá mikið af skóm í versluninni sem
ég var að vinna í. Svo er ég dugleg að
nýta mér útsölur ef ég finn mér eitt-
hvað fínt á þeim og kaupi líka á eBay
ef ég dett niður á eitthvað flott þar.“
Unnur er ekki lengi að svara þegar
hún er spurð út í uppáhaldsskóhönn-
uðinn sinn. „Það er klárlega Jimmy
Choo,“ svarar hún en hún festi einmitt
kaup á einu pari eftir hönnuðinn þeg-
ar hún var stödd í Bandaríkjunum.
„Maður verður að eiga allavega
eitt par eftir uppáhaldið.“
Í febrúar fluttu Unnur og kærast-
inn saman inn í íbúð þar sem má
með sanni segja að eitt herbergið
sé skóherbergi Unnar. Skemmtileg
lausn var notuð við að finna fallegu
skónum pláss á veggnum og njóta
þeir sín vel, fallega raðaðir á vírum.
„Ég og pabbi fundum bara upp á
þessu. Við ætluðum fyrst að setja upp
stangir og hengja skóna á þær en svo
var bara ódýrara og nettara að notast
við vírana.“
Jimmy Choo
í ppáhaldi
unnur líf ingadóttir hefur safnað skóm undanfarin þrjú ár og hanga yfir hundrað
pör á vegg heima hjá henni.
sitjandi í skóhafi unnur
byrjaði að safna skóm fyrir
þremur árum þegar hún
starfaði í skóbúð.
Hundrað pör hangandi á
vegg unnur taldi hundrað og
tíu pör á veggnum um daginn.
DV myndir kristinn Magnússon
spariskórnir fá að
hanga unnur segist
geyma íþróttaskóna og
sandalana inni í skáp.
Með uppáhaldsskóna
bleiku skórnir eru eftir
uppáhaldshönnuð unnar,
Jimmy Choo.