Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2008, Side 64
n Spennuþáttaröðin Svartir englar
hóf göngu sína í Ríkissjónvarpinu
síðastliðinn sunnudag. Skiptar
skoðanir eru um hvernig serían
fór af stað og virtist helst vekja
athygli kynlífssena þar sem ein
löggan, sem Davíð Guðbrands-
son leikur, sængar hjá vinnufélaga
hins látna. Þættirnir eru byggðir
á bókum Ævars Arnar Jóseps-
sonar, Skítadjobbi og Svörtum
englum, sem fengu góðar mót-
tökur gagnrýnenda og almennra
lesanda þegar þær komu út. Ný
bók er væntanleg frá Ævari síðar
í haust þar sem sama lögguteymi
og í þessum tveimur bókum glím-
ir við glæpamenn og
gátur sem spinnast
af þeirra völdum.
Bókin heitir Land
tækifæranna og er
gefin út af Upp-
heimum.
Er Björn Bjarnason
á Facebook?
Fréttaskot 512 70 70
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. fyrir fréttaskot sem Verður
aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. fyrir besta fréttaskot Vikunnar greiðast allt
að 50.000 krónur. alls eru greiDDar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hVers mánaðar.
„Ég veit ekki til þess að það hafi
verið nokkurn tímann kona í þessu
starfi,“ segir Margrét Marteinsdóttir
kampakát með nýju vinnuna en hún
er yfir íþróttadeild RÚV sem nýlega
færðist undir fréttasviðið í Efstaleiti.
„Ég æfði sjálf knattspyrnu í tíu ár
og fór fyrst á völlinn held ég tíu ára
gömul. Ég æfði með Fram, Leikni og
Fylki,“ segir Margrét en bróðir hennar
er þekktur íþróttamaður hér á landi.
Sá heitir Pétur Marteinsson og leik-
ur með úrvalsdeildarliði KR í knatt-
spyrnu. „Ég er bara að blása rykið af
gömlu legghlífunum,“ segir Margrét.
En þrátt fyrir alla gleðina í her-
búðum Margrétar eru ýmsar breyt-
ingar á meðal starfsmanna íþrótta-
deildarinnar. Eins og gefur að skilja
mun Hrafnkell Kristjánsson ekki
starfa lengur sem yfirmaður íþrótta-
deildarinnar en hann mun þess í stað
vinna af fullum krafti meðal hinna
íþróttafréttamannanna. Það eru þó
ekki einu breytingarnar því sam-
kvæmt heimildum DV hefur hinn
skeleggi íþróttafréttamaður Valtýr
Björn sagt upp störfum.
Hrafnkell og Margrét þvertaka
hins vegar fyrir það: „Það er bara vit-
leysa, ég myndi vita það sem hans yf-
irmaður,“ segir Margrét.
n Tæpum fimm dögum eftir að
Facebook-síða til stuðnings Jó-
hanni R. Benediktssyni, lögreglu-
stjóra á Suðurnesjum, var stofnuð
hafa um 1.300 manns skráð sig þar
og lýst yfir stuðningi við Jóhann.
Síðla gærdags höfðu fjörutíu og
tvær athugasemdir verið skrifaðar
á síðuna og leggja þar margir til að
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra eigi sjálfur að fara að kveðja.
Björn hefur haldið því fram að
stöður sem þessar eigi að auglýsa
á fimm ára fresti. Stuðningsmenn
Jóhanns benda í því sambandi á að
Haraldur Johannes-
sen hefur gegnt
stöðu ríkislögreglu-
stjóra í ellefu ár án
auglýsinga. Því virð-
ist ekki vera sama
Jóhann og Jo-
hannessen.
n Troðfullt var á veitingastaðn-
um Hafinu bláa í fyrrakvöld þegar
Hrútavinafélagið á Suðurlandi
blés til kvöldverðar þar sem boðið
var upp á hausastöppu. Formað-
ur Hrútavina, Björn Ingi Bjarna-
son, er eitt mesta félagsmálatröll á
landinu og viðburðir á hans vegum
eru gríðarlega vel sóttir. Stjarna
kvöldsins var einn af skjólstæð-
ingum Hrútavina, Árni Johnsen
þingmaður. Árni flutti snarpa tölu
þar sem hann sagði frá heim-
sókn þingmanna á Litla-Hraun
þar sem meðal annars var verið
að skoða aðbúnað fanga. Árni
lýsti því af mikilli andagift að hinir
þingmennirnir hefðu
verið fremur skiln-
ingssljóir en hann
ekki: „Enda var
ég á heimavelli,“
sagði Árni og sal-
urinn öskraði af
hlátri.
Á annað þúsund
stuðningsmanna
Krimmi frÁ
Ævari
Á heimavelli
Á hrauninu
Skipholti 19 Höfðabakki 9
Nýr matseðill
Á nýja matseðlinum okkar eru fjölbreyttir, girnilegir réttir og allir finna
eitthvað við sitt hæfi. Kynntu þér málið á www.rubytuesday.is
Margrét Marteinsdóttir er fyrsta íslenska konan sem stjórnar íþróttadeild:
BlÆs ryKið af gömlu legghlífunum
Margrét Marteinsdóttir
nýr yfirmaður íþróttadeildar rÚV.