Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2008, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2008, Blaðsíða 35
fimmtudagur 6. nóvember 2008 35Sviðsljós Harry í Plataði mótmælendur Eftir sjö ár með Playboy-kon- ungnum Hugh Hefner sleit Holly Madison sambandinu í síðasta mán- uði og hefur nú ítrekað sést úti á líf- inu með sjónhverfingameistaranum Criss Angel. Nú hefur Holly opnað sig um ástæður sambandsslitanna í við- tali við sjónvarpsstöðina TV E�tra. „Ég er frekar leið yfir því að þetta gekk ekki upp hjá okkur Hef. Ég vildi bara að hann hefði gert sér grein fyrir því að ég ætlaði að hætta með hon- um. Það voru allir rosalega hissa þegar ég sleit sambandinu þrátt fyrir að hafa vitað það að ég var búin að vera óhamingjusöm lengi. Það voru svo margar vísbendingar um að ég myndi slíta þessu og ég var búin að vera þunglynd lengi,“ sagði Holly og bætti við: „Ég vil vera með einhverjum sem ég get átt bjartari framtíð með. Hef og ég getum ekki gifst og ekki eignast börn, þetta var gaman meðan á því stóð en þetta var ekki rétt fyrir minn aldur. Ég var hreinlega orðin of gömul fyrir Hef.“ Fyrrverandi kærasta Hughs Hefner, Holly Madison, hefur nú greint frá því af hverju hún sleit sambandinu við Playboy-konunginn: Of gömul fyrir Hefner Meðan allt lék í lyndi „Ég er orðin of gömul fyrir Hef,“ sagði Holly í viðtali við sjónvarps- stöðina tv extra á dögunum. Komin með nýjan Holly madison var ekki lengi að ná sér í nýjan gæja og hefur mikið sést með Criss angel. Tímaritið Cosmopolitan blekkir lesendur sína: fimm ára gömul mynd af Britney Pirates of the Caribbean-trílógían var ein sú tekju- hæsta síðustu ár þökk sé hinum stórbrotna leikara �ohnny Depp. Vinsældir myndanna hafa verið svo miklar að Disney hefur ákveðið að gera fjórðu myndina um sjón- ræningjana ógurlegu. Ungstirnið Zac Efron hefur hlotið hlutverk í nýju myndinni og segir sagan nú að breski grín- istinn Russell Brand muni koma til með að leika bróður �ack Sparrow. Disney hefur mikla trú á grínistanum. Takt- ar og hegðun Russells eru alls ekki ósvipaðir og hjá �ack Sparrow. verður bróðir Jack Sparrow Brand Aðdáendur Britney Spears hafa beðið í ofvæni eftir endurkomu söngkonunn- ar Britney Spears. Nýja breiðskífan henn- ar, Circus, kemur í verslanir 2. desember. Britney prýðir forsíðu ástralska útgáfu kvennatímaritsins Cosmopolitan. Hún er stórglæsileg á myndinni, klædd litl- um svörtum kjól. Á forsíðunni stendur: „Hvernig brotin Britney snéri til baka.“ Þegar tímaritið kom út vöknuðu upp ýmsar efasemdir um ljósmyndina. Í ljós kom að hún er langt frá því að vera ný. Myndin var tekin af ljósmyndaranum �ames White fyrir karlatímaritið Esquire fyrir fimm árum. Fyrir fimm árum var Britney Spears ný- búin að gefa út plötuna In the Zone. Hún var nýhætt með �ustin Timberlake. Hafði ekki enn kynnst Kevin Federline, hvað þá eignast með honum börn. Þá var hún bara enn lítil stúlka, ekki enn fullorðin kona. Britney í dag Svona lítur hún út. Circus nýja platan er væntanleg í byrjun desember. Fimm ára gömul mynd tímaritið Cosmopolitan birtir á nýjustu forsíðu sinni fimm ára gamla mynd af britney Spears.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.