Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2008, Blaðsíða 9
fimmtudagur 27. nóvember 2008 9Fréttir
„Fólk sem kom til móts við fyrirtæk-
ið með því að minnka starfshlutfall
og fara í launalaust leyfi, því var sagt
upp,“ segir Engilbjört Auðunsdóttir,
fyrrverandi flugfreyja hjá Iceland Ex-
press. Hún hafði unnið hjá fyrirtæk-
inu frá upphafi en var sagt upp um
síðustu mánaðamót.
Níu flugfreyjum var sagt upp en
mikil óánægja ríkir meðal flugfreyj-
anna þar sem önnur manneskja
innan fyrirtækisins sé farin að sinna
flugfreyjustörfum þrátt fyrir að þær
sem var sagt upp hafi meiri reynslu.
Uppsagnirnar voru framkvæmdar
skriflegai.
Óeðlileg uppsögn
„Mér finnst það einkennilegt að
það er manneskja komin í vinnu í
desember sem hefur ekki verið fast-
ráðin flugfreyja en hefur verið hjá
fyrirtækinu í öðrum störfum,“ segir
Engilbjört sem finnst aðgerðir fyr-
irtækisins stangast á við yfirlýsing-
ar stjórnvalda. „Ég var í fullu starfi
og var í samninganefnd í seinustu
kjarasamningum og það er rík hefð
að segja ekki upp slíku fólki í svona
uppsögnum. Manni finnst þetta
óeðlilegt því stjórnvöld eru að hvetja
til þess að fólki sé ekki sagt upp. Það
er náttúrlega mjög auðvelt að gera
það í fluginu þar sem allir eru að
gera það sama, þetta er eins og verk-
smiðja,“ segir hún að lokum.
Lögfræðingar kanna stöðuna
Ástríður Ingólfsdóttir, varaformað-
ur Flugfreyjufélags Íslands, segir að
félagið hafi haft samband við Ice-
land Express um málið. „Við höfð-
um samband strax í upphafi þegar
þessar uppsagnir voru tilkynntar. Við
beindum þeim skilaboðum til þeirra
að þeir færu sömu leið og fulltrúar
annarra fyrirtækja sem eiga félags-
menn hjá okkur og færu að tilmæl-
um ríkisstjórnarinnar um að leita
allra annarra leiða en uppsagna og
koma í veg fyrir þessar hörmungar.“
Ástríður segir að fyrirtækið hafi ekki
farið eftir þeim tilmælum og því fór
sem fór.
Ástríður segir að hún hafi heyrt
þær sögur að konan hafi verið ráð-
in sem flugfreyja. „Þetta er afar sér-
kennileg ráðstöfun svo ekki sé meira
sagt.“ Ástríður segir að fyrirtæk-
ið brjóti ekki kjarasamninga. „Nei,
í raun eru þeir ekki að brjóta kjara-
samninga því fjöldi þeirra sem var
sagt upp nær ekki tilskildum fjölda
til að það teljist hópuppsögn, þeir
passa sig á því.“ Hún segir að þær
séu í sambandi við lögfræðinga ASÍ
til að kanna þessa stöðu.
19 uppsagnir á þessu ári
Matthías Imsland, forstjóri Ice-
land Express, segir að það hafi ver-
ið lítið annað í stöðunni en að fara
í þessar uppsagnir. „Við höfum sagt
upp nítján starfsmönnum síðan um
áramótin á meðan sam-
keppnisaðilinn hefur
sagt upp fleiri hundr-
uð. Við reyndum
að gera þetta
eins vel og
við gátum og
á sínum tíma
fórum við í það
að lækka starfs-
hlutfall og við-
brögðin við því
voru pirringur
og fólki þótti ýtt
meira á annan
en hinn og það
er reynsla sem
var ekki góð,
þannig það var
ákveðið að fara
þessa leið núna.“
Matthías seg-
ir að umrædd flug-
freyja hafi ekki ver-
ið ráðin sem
fast-
ur starfsmaður. „Hún er lærð flug-
freyja og hefur tekið eitt og eitt flug.
Hún hefur unnið sem stöðvarstjóri
líka og ef það er hægt að nýta hana
meira en í þá stöðu ger-
um við það að sjálf-
sögðu, ég fer ekki
að ráða inn
heilan starfs-
mann.“
Matthías
segir að
það sé ekk-
ert óeðlilegt
við þessar
uppsagnir.
„Það er ekk-
ert óeðlilegt
við þetta og
það er ömur-
legt að þurfa
að segja upp
starfsfólki, sér-
staklega á þess-
um tímum sem
eru núna.“
Flugfreyjur eru afar óánægðar með að hafa verið sagt upp eftir að hafa tekið á sig launalækkun og lækkað
starfshlutfall. Níu flugfreyjum var sagt upp í síðustu uppsögnum og ný flugfreyja er farin að sinna störfum
þeirra. Matthías Imsland, forstjóri Iceland Express, segir engar nýjar flugfreyjur hafa verið ráðnar nýverið og
fyrirtækið sé einungis að nýta mannskap.
REYNSLUBOLTAR REKNIR
„Fjöldi þeirra sem var
sagt upp nær ekki til-
skildum fjölda til að
það teljist hópuppsögn,
þeir passa sig á því.“
BoðI Logason
blaðamaður skrifar bodi@dv.is
Iceland Express 19 starfsmönnum
hefur verið sagt upp frá áramótum.
Matthías Imsland forstjóri
iceland express segir að
ekkert óeðlilegt hafi verið
við síðustu uppsagnir.
MÓTMÆLENDUR
Í HÁR SAMAN
Viðhaldsfríar
ÞAKRENNUR
Smiðjuvegi 4C
Box 281 202 Kópavogur
Sími 587 2202 Fax 587 2203
hagblikk@hagblikk.is www.hagblikk.is
Varmaskiptasamstæður
loftræstistokkar og tengistykki
Hágæða
Þegar hús eru klædd með „viðhaldsfrírri“ klæðningu er nauðsynlegt að nota „viðhaldsfríar“ þakrennur.
Rennurnar frá Grövík Verk í Noregi eru gerðar úr 0,9 mm áli og tærast ekki, ryðga, né brotna.
Fyrsta rennan var framleidd árið 1956 og er enn í notkun.
Litir til á lager: Svartar, hvítar, rauðbrúnar og ólitaðar.
A
u
g
l.
Þ
ó
rh
ild
ar
1
4
6
0
.2
4