Lögmannablaðið - 01.12.2003, Blaðsíða 21
21
undirbúningur vegna norræna málþingsins. Var
slíkur fundur haldinn hér á landi hinn 2. júní 2003
sem 8 norrænir gestir sóttu og flutti einn gestanna
erindi á fundi Félags um vátryggingarétt um
endurskoðun laga um vátryggingarsamninga í
Danmörku.
Viðfangsefni.
Heiti félagsins er Félag um vátryggingarétt en
vátryggingaréttur og skaðabótaréttur eru ná-
tengdar greinar lögfræðinnar. Vátryggingafélög
koma að stærstum hluta skaðabótauppgjöra.
Félagið lætur sig þess vegna varða báðar þessar
greinar lögfræðinnar. Árlega kveður Hæstiréttur
upp fjölmarga dóma á þessu réttarsviði. Þá hefur
átt sér stað talsverð þróun í löggjöf á þessu sviði.
Það hefur sýnt sig að ekki er skortur á umfjöll-
unarefnum til að taka fyrir á fræðafundum, m.a.
hafa margar nýjar vátryggingagreinar orðið til á
síðustu árum og nægir þar að nefna síaukinn
fjölda starfsábyrgðartrygginga, sjúklingatrygg-
ingu og réttaraðstoðar- eða málskostnaðartrygg-
ingar í fjölskyldu- og fasteignatryggingum.
Fræðslufundir félagsins.
Frá stofnun félagsins hefur það haldið ellefu
fræðafundi, sem nú verða taldir:
Hinn 19. júní 2001 hafði formaður félagsins fram-
sögu um Áhættutöku farþega í bifreið með ölvuðum
ökumanni. Ritgerð sama efnis eftir framsögumann
birtist síðar í Líndælu, afmælisriti, sem Hið
íslenska bókmenntafélag gaf út til heiðurs Sigurði
Líndal í tilefni sjötugsafmælis hans 2. júlí 2001.
Annar fræðafundurinn var haldinn 29. nóvember
2001. Fjallaði prófessor Viðar Már Matthíasson þá
um efni, sem hann nefndi Er nýrra laga um
vátryggingarsamninga að vænta? Gerði fyrirlesar-
inn m.a. grein fyrir ýmsum nýmælum, sem stjórn-
skipuð nefnd um ný lög um vátryggingarsamninga,
hafði fjallað um.
Þriðji fundurinn var 15. janúar 2002. Hélt for-
maður félagsins þá erindi, sem hann nefndi Spjall
um skaðabótarétt í Bandaríkjunum – Sviptingar á
síðustu árum.
Fjórði fræðafundurinn var haldinn í tengslum við
aðalfund félagsins 21. maí 2002. Framsögumaður
var Ingvar Sveinbjörnsson hæstaréttarlögmaður og
talaði um efnið Hefur hugtakið varanleg örorka
fengið lögákveðna merkingu? Tilefni erindisins var
dómur Hæstaréttar 15. nóvember 2001, sem fjallar
um rétt starfsmanns til bóta úr atvinnuslystrygg-
ingu launþega skv. kjarasamningi.
Fimmti fundurinn var 30. ágúst 2002. Þá flutti
Hans Jacob Bull prófessor við lagadeild Oslóarhá-
skóla fyrirlestur, sem hann nefndi Identifikasjon i
forsikringsretten. Efni hans var áhrif þess á réttar-
stöðu vátryggðs, að aðrir en hann, einkum starfs-
menn hans, vátryggingartaki eða meðvátryggðir,
gerast sekir um brot gagnvart vátryggjanda. Var
einkum rætt um efnið í ljósi norsku laganna um
vátryggingarsamninga frá 1989. Til samanburðar
vék prófessor Bull að eldri norrænum lögum um
vátryggingarsamninga.
Sjötti fræðafundurinn var haldinn 10. október
2002. Kristján Guðjónsson, lögfræðingur og fram-
kvæmdastjóri sjúkratryggingasviðs Trygginga-
stofnunar ríkisins, fjallaði þá um Sjúkratryggingar
skv. lögum um almannatryggingar.
Sjöundi fundurinn var 26. nóvember 2002. Á
honum var fyrirlesari Jakob R. Möller, hæstaréttar-
lögmaður. Fundarefni var Verðsett skírteini í skaða-
tryggingum.
Áttundi fundurinn var 21. janúar 2003. Þá talaði
Una Björk Ómarsdóttir, lögfræðingur hjá Trygg-
ingastofnun ríkisins um Sjúklingatryggingu skv.
lögum nr. 111/2000.
Níundi félagsfundurinn var haldinn 18. febrúar
2003. Þá hélt Þorvarður Sæmundsson, lögfræð-
ingur og framkvæmdastjóri viðskiptasviðs hjá Sjó-
vá-Almennum tryggingum hf. erindi um Endur-
tryggingar.
Tíundi fundurinn var 25. mars 2003. Rúnar Guð-
mundsson, formaður Úrskurðarnefndar í vátrygg-
ingamálum og yfirlögfræðingur hjá Fjármálaeftir-
litinu hélt þá erindi um Starfsemi Úrskurðar-
nefndar í vátryggingamálum.
Ellefti fundurinn var haldinn 2. júní 2003. Jakob
Thyssen Valerius, lögfræðingur og skrifstofustjóri
hjá Forsikring & Pension í Danmörku hélt þá erindi
um Endurskoðun dönsku laganna um vátrygging-
arsamninga (Forsikringsaftaleloven).
Fundi félagsins sækja að jafnaði um 20-30
félagsmenn en í félaginu eru 67 einstaklingar, sex
vátryggingafélög og þrjár lögmannsstofur.
Fleiri fræðafundir eru ráðgerðir á næstunni.
Þeir sem áhuga hafa á að sækja fundina og ganga
í félagið eru hvattir til að hafa samband við ein-
hvern stjórnarmanna.
Formaður félagsins er Arnljótur Björnsson, rit-
ari Erla S. Árnadóttir, hrl. og gjaldkeri Rúrik
Vatnarsson hdl. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hrl. er
varastjórnarmaður.
L Ö G M A N N A B L A Ð I Ð