Lögmannablaðið - 01.12.2003, Blaðsíða 23
23
VINNURÉTTARFÉLAG ÍSLANDS er tveggjaára um þessar mundir. Það var stofnað 12.
desember 2001 í þeim tilgangi að vinna að um-
fjöllun og rannsóknum á sviði vinnuréttar, efla
samskipti milli þeirra sem starfa að vinnuréttar-
málum og stuðla að útgáfu greina og rita um
vinnurétt. Félagsmenn eru um 70 talsins.
Formaður félagsins er Sigurður Líndal, fyrrver-
andi prófessor. Aðrir í stjórn eru Hrafnhildur Stef-
ánsdóttir, yfirlögfræðingur Samtaka atvinnulífs-
ins, og Atli Gíslason hrl. Í varastjórn eru Magnús
Norðdahl, deildarstjóri lögfræðideildar ASÍ, og
Gunnar Björnsson, skrifstofustjóri starfsmanna-
skrifstofu fjármálaráðuneytisins.
Það sem af er hefur félagið haldið nokkra
fræðafundi. Fjallað hefur verið um Félagsdóm, til-
urð hans og hlutverk. Sigurður Líndal hafði fram-
sögu en skiptar skoðanir eru um þörfina á slíkum
sérdómstól og tilnefningar aðila í dóminn. Töldu
sumir fundarmanna að skipan dómsins hefði
reynst vel. Hægt sé að fá dóm á mjög skömmum
tíma og innan þess 7 daga frests sem er boðunar-
tími verkfalls. Slíkur möguleiki þurfi að vera fyrir
hendi. Flýtimeðferð fyrir almennum dómstólum
svari ekki þeim kröfum. Aðrir töldu skipan dóms-
ins vera barn síns tíma. Stærsti ágallinn sé að efn-
isdómum hans verði ekki áfrýjað. Fyrir komi að
Félagsdómur sé að taka ákvarðanir sem hafa áhrif
langt út fyrir vinnumarkaðinn. Það sé ein megin
röksemdin fyrir breytingum á réttinum.
Á öðrum fundi var rætt um félagafrelsi starfs-
manna í ljósi dóms Félagsdóms í máli nr. 2/2002.
Félagsdómur taldi að í forgangsrétti stéttarfélags
fælist ruðningsréttur, þ.e. að við uppsögn eigi
félagsmenn þess félags að sitja fyrir um vinnu
umfram félagsmenn annars félags sem ekki hafði
samið um forgangsrétt félagsmanna sinna að um-
ræddum störfum. Framsögu höfðu Ragnar Árna-
son hdl. og Lára V. Júlíusdóttir hrl. Umræður voru
líflegar en niðurstaða dómsins virtist koma
sumum félagsmönnum á óvart. Bótamál þeirra
starfsmanna sem Félagsdómur taldi að ólöglega
hefði verið sagt upp eru nú til meðferðar í Hæsta-
rétti.
Að loknum aðalfundi félagsins s.l. vor var
síðan fjallað um persónuvernd starfsmanna. Fram-
sögu höfðu Elsa Þorkelsdóttir, lögfræðingur hjá
Persónuvernd, og Bergþóra Ingólfsdóttir, Mandat
lögmannsstofu. Þessir fundir hafa verið haldnir í
hádeginu og verið mjög vel sóttir.
Þá hefur félagið gerst aðili að alþjóða vinnu-
réttarfélaginu, International Society for Labour
Law and Social Security, en það félag gengst
reglulega fyrir ráðstefnum á sviði vinnuréttar, nú
síðast í Montevideo.
Lögmenn sem hafa hugmyndir um efni eða
verkefni sem vert gæti verið að taka upp eru
hvattir til að koma þeim á framfæri við stjórnar-
menn.
L Ö G M A N N A B L A Ð I Ð
Stjórn Vinnuréttarfélags Íslands. F.v. Sigurður Líndal
formaður, Hrafnhildur Stefánsdóttir ritari og Atli
Gíslason.
Af fundi Vinnuréttarfélags Íslands.
Vinnuréttarfélag Íslands
Hrafnhildur Stefánsdóttir hrl.