Lögmannablaðið - 01.12.2003, Side 25

Lögmannablaðið - 01.12.2003, Side 25
25 LÖGGJÖF um fjármálafyrirtækisnýst í stuttu máli um öryggi og traust. Lagasetningin þarf að miða að því að tryggja hagsmuni innlánseig- enda og lúta að því að takmarka eða hafa stjórn á áhættu sem fólgin er í bankastarfsemi. Með lagasetningunni þarf einnig að huga að eftirliti með fjármálastarfsemi og tryggja fjármála- fyrirtækjum hér á landi jafna sam- keppnisstöðu með því að samræma innlendar reglur við þær reglur sem gilda á alþjóðlegum mörkuðum. Lög nr. 161/2002 eru heildarlög um fjármála- fyrirtæki og koma í stað laga um viðskiptabanka og sparisjóði nr. 113/1996, laga um aðrar lána- stofnanir nr. 123/1993, stofnanaþáttarins í lögum um verðbréfaviðskipti nr. 13/1996 (nú lög nr. 33/2003), og laga um rafeyrisfyrirtæki nr. 37/2002, auk þess sem breytingar urðu á reglum um rekstrarfélög verðbréfasjóða í lögum um verð- bréfasjóði nr. 10/1993 (nú lög nr. 30/2003 um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði). Í lögunum er vikið að ýmsum sameiginlegum reglum um fjármálafyrirtæki s.s. varðandi hlutafé, stofnfé og áhættu. Áhætta sem felst í banka- og fjármálastarfsemi er margþætt. Tjónsáhætta (credit risk) felur í sér að viðskiptavinir bankans standa ekki við þær skuldbindingar sem þeir hafa undirgengist. Markaðsáhætta (market risk) er sú áhætta nefnd þegar sveiflur á efnahagsstærðum á markaðinum valda því að verðbréfaeign bankans lækkar. Rekstraráhætta (operational risk) er stundum skilgreind sem öll önnur áhætta en tjóns- áhætta og markaðsáhætta, en fyrst og fremst er um að ræða áhættu vegna slakrar stjórnunar, ófull- nægjandi eftirlits, sviksamlegrar háttsemi o.fl. Kerfisbundin áhætta (systematic risk) er sú áhætta nefnd þegar vanskil eins fjármálafyrirtækis hafa áhrif á önnur fjármálafyrirtæki. Þessi áhrif geta komið fram í því að viðkomandi fjármálafyrirtæki getur ekki staðið við skuldbindingar gagnvart öðru fjármálafyrirtæki eða því að almenn hræðsla grípur um sig á fjármálamarkaði sem leiðir til þess að viðskiptavinir taka út fjármuni. Þessar tegundir af áhættu tengjast inn- byrðis. Slök stjórnun leiðir til ófull- nægjandi lánaeftirlits, sem hefur áhrif á tjónsáhættu bankans og áhættudreif- ingu verðbréfaeignar. Þetta getur leitt til þess að fjármálafyrirtækið getur ekki staðið við skuldbindingar sínar sem kemur af stað kerfisbundinni áhættu hjá öðrum fjármálafyrir- tækjum. Starfsemi banka og starfsheimildir samkvæmt lögum hafa tekið miklum breytingum á undanförnum árum. Starfsemin hefur færst úr því að vera eingöngu milliganga með innlán og útlán yfir í það að bankar eru farnir að veita víðtæka fjármálaþjónustu og stunda fjár- festingarbankastarfsemi. Þessar breytingar taka mið af þróun á alþjóðlegum fjármálamarkaði og fellur þessi þjónusta undir starfsheimildir banka eins og þær eru t.d. skilgreindar í tilskipunum Evrópusambandsins. Þetta er niðurstaða sem hefur skapast m.a. af hreinni þörf viðskiptalífsins og þeim hugmyndum sem almennt eru viður- kenndar í nútíma bankastarfsemi. Bankarnir hafa eignast hlut í einstökum fyrirtækjum og átt þátt í umbreytingarferli þeirra og hefur það í mörgum tilvikum skilað sér í stærri og öflugri fyrirtækjum sem hafa haft burði til þess að láta að sér kveða bæði hér á landi og erlendis. Þetta er sérstaklega mikilvægt hérlendis þar sem naumast er til að dreifa öðrum aðilum sem geta komið að verk- efnum með þessum hætti. Verðbréfasjóðum og líf- eyrissjóðum er þetta óheimilt í ljósi reglna um áhættudreifingu auk þess sem erfitt væri fyrir líf- eyrissjóði að standa að ýmsum sársaukafullum aðgerðum sem slíkar breytingar geta haft í för með sér. Löggjöf á evrópska efnahagssvæðinu felur í sér að starfsleyfi fjármálafyrirtækis í einu ríki veitir því heimild til þess að opna útibú í öðru ríki innan EES. Eftirlit með starfseminni er í höndum fjár- málaeftirlitsins í heimaríki fyrirtækisins. Fjár- L Ö G M A N N A B L A Ð I Ð Lög um fjármálafyrirtæki Helgi Sigurðsson hrl.

x

Lögmannablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.