Lögmannablaðið - 01.11.2008, Page 4
4 < LÖGMANNABLAÐIÐ – 3 / 2008
Á sama tíma og íslenskir lögmenn fjölmenntu í
ferð Lögmannafélagsins til Nýja Íslands í
Vesturheimi í ferð til fortíðar, bankaði fortíðin upp
á hér heima. Á örfáum sólarhringum hrundi
íslenska bankakerfið svo að segja til grunna.
Íslenska bankakreppan er sú stærsta í sögunni
þegar miðað er við landsframleiðslu.
Eftir þessar miklu hamfarir blasir við breytt mynd
- Nýja Ísland, segja sumir. Ekki er ýkja langt síðan
farið var að tala um nýja hagkerfið og gamla
hagkerfið hér á landi. Það er dálítið kaldhæðnislegt
gömlu bankarnir störfuðu í nýja hagkerfinu en
„Nýju“ bankarnir munu í raun starfa í gamla
hagkerfinu. Það er ekki síður kaldhæðnislegt að
íslenskir lögmenn, sem héldu á vit fortíðar Nýja
Íslands í Vesturheimi, snéru heim til nýrrar fortíðar
í gamla landinu.
Framundan er mikil endurskoðun á reglum um
fjármálamarkaði, ekki bara hér á landi heldur á
heimsvísu. Ísland hefur verið hluti af alþjóðlegu
fjármálahagkerfi og vonandi verður sú raunin
áfram. Á sama hátt og Íslendingar héldu áfram að
sækja sjóinn og björg í bú, þrátt fyrir reglulega
skipskaða og mikið manntjón, þá verða þeir að
halda áfram þátttöku sinni í alþjóðlegum
viðskiptum, þrátt fyrir það áfall sem nú hefur riðið
yfir. Hér á landi er til staðar gríðarleg þekking og
hæfni á sviði fjármálastarfsemi og hún mun finna
sér farveg á nýjan leik þegar um hægist.
Formaður Lögmannafélagsins fjallar í pistli sínum
hér í blaðinu um mikilvægi lögmanna við þær
aðstæður sem nú eru uppi á Íslandi. Fullyrða má
að lögmenn muni á næstu misserum gegna lykil-
hlutverki í því að greiða úr þeirri miklu flækju sem
hrun bankakerfisins veldur í samfélaginu. Í upp-
lausnarástandi er mikil hætta á að gripið sé til
óyndisúrræða. Þá er mikilvægt að lögmenn gegni
því hlutverki sínu að efla rétt og hrinda órétti.
Hrun íslensku bankanna og sú mikla efnahags-
kreppa sem við nú siglum inn í, má ekki verða til
þess að kvikað sé frá þeim grundvallargildum sem
íslenskt samfélag byggir á. Af sögunni má draga
þann lærdóm að djúp kreppa getur verið gróðrarstía
fyrir hvers kyns öfgastefnu og forræðishyggju.
Mikil hætta er á því að neyð og örvænting kalli á
úrræði sem vega munu að þeim grundvallar-
réttindum sem samfélagið byggist á, einkum og sér
í lagi eignarréttinum og athafnafrelsinu. Þá reynir
á réttarríkið og erindreka þess, lögmennina.
Frá ritstjórn:
Borgar Þór Einarsson hdl.
Nýja Ísland