Lögmannablaðið - 01.11.2008, Blaðsíða 19
LÖGMANNABLAÐIÐ – 3 / 2008 > 19
Court of Queen’s Bench skiptist í
Family Division og General Division.
Family Division fjallar um hjóna-
skilnaðar-, forsjár-, ættleiðingar- og
barnaverndarmál. General Division
fjallar um önnur mál s.s. einkamál,
t .d. skaðabóta- og slysamál,
fasteigna mál og alvarleg sakamál en
unnt er að kveðja til 12 manna
kviðdóm í síðastnefnda málaflokkn-
um. Unnt er að áfrýja úrlausnum
Provincial Court of Manitoba í saka-
málum til Court of Queen’s Bench.
Einnig má skjóta þangað tilteknum
ákvörðunum valdsmanna í smærri
málum.
Manitoba Court of Appeal fer með
æðsta dómsvald í Manitoba. Skjóta
má úrlausnum Court of Queen’s
Bench og Provincial Court of Mani-
toba til dómstólsins. Við dómstólinn
eru skipaðir sjö dómarar og dæma
yfirleitt þrír í hverju máli en fimm í
hinum veigamestu málum.
Auk þessara þriggja dómstóla þá
fjallar alríkisdómstóll kanadíska
ríkisins um málefni á hendur kana-
díska ríkinu eða sem fjallað er um í
alríkisreglum. Hæstiréttur Kanada
er æðsti dómstóll kanadíska ríkisins
og unnt er að skjóta ákvörðunum
lægra settra dómstóla, þ.e. héraðs-
og alríkisdómstólsins, en rétturinn
ákveður hvaða mál eru tekin til
meðferðar.
Heimsóknin í dómhúsið var síðasti
viðburðurinn í hinni skipulögðu
dagskrá.
Því er ekki að neita að alvarlegar
fréttir af efnahagsvandanum á
Íslandi höfðu sín áhrif á þátttakendur
á meðan á ferðinni stóð. Eftir
stendur þó að ferðin var afar áhuga-
verð og skemmtileg, allt skipulag til
fyrirmyndar og gestrisni og mót-
tökur einstakar. Ferðin var að sumu
leyti ólík öðrum fræða ferðum Lög-
mannafélagsins vegna þeirrar
áherslu sem eðlilega var lögð á sögu
og menningu Vestur – Íslendinga
en allir þeir sem tóku á móti hópn-
um voru af íslenskum uppruna.
Ljóst er að aðlögunarhæfni, dugn-
aður og hugrekki íslensku frum-
byggjanna verður lengi í minnum
haft. Víst má telja að ferðin verði
ógleymanleg öllum þeim sem þátt
tóku.
Guðmundur Þór GuðmundssonKris Stefanson dómari.
Neil bardal útfararstjóri sýndi hópnum afar nýtískulega útfararstofu sem hann
er að byggja.