Lögmannablaðið - 01.11.2008, Qupperneq 30

Lögmannablaðið - 01.11.2008, Qupperneq 30
30 < LÖGMANNABLAÐIÐ – 3 / 2008 byggja hús í blautri mýri. Til þess að það væri mögulegt þyrfti fyrst að veita vatninu burtu og þurrka byggingar- svæðið. Á því væri býsna mikið af stöðnu vatni og öðrum óhreinindum sem væru útlendu lagaboðin. Svo þyrfti að draga byggingarefnið saman en það væru íslensk lög, íslenskar venjur og íslenskir dómar. Þá fyrst væri hægt að byggja úr efninu, koma rannsóknum fyrir í kerfi og búa til kennslubækur. Auk Lárusar var Einar Arnórsson ráðinn til skólans og Jón Kristjánsson haustið 1909. Sex nemendur hófu nám við lagaskólann í upphafi en í nóvember bættist sá sjöundi við. Lagaskólinn var einn af þremur embættismannaskólum landsins sem rann í Háskóla Íslands þegar hann var stofnaður þann 17. júní 1911. Þaðan útskrifuðust fyrstu kandídatarnir með íslenskt embættispróf í lögum sumarið 1912. Á nýju ári kemur út bók um lagadeild Háskóla Íslands sem undirrituð ritstýrir. Eyrún Ingadóttir Lárus H. bjarnason Einar arnórsson jón Kristjánsson Útgáfa íslenskra lögfræðirita 1908­1918 Mikið starf beið þremenninganna sem urðu kennarar lagaskólans en á næstu tíu árum sömdu þeir níu kennslubækur í lögum auk þess að skrifa fjölda greina um lögfræðileg málefni. 1910: Íslenskur sjóréttur eftir Jón Kristjánsson. Prentað sem handrit. 1911: Dómstólar og réttarfar á Íslandi eftir Einar Arnórs son. 1911: Ný lögfræðisleg formálabók eftir Einar Arnórs­ son. 1912: Íslenzkur kirkjuréttur eftir Einar Arnórsson. 1913: Íslenzk stjórnlagafræði eftir Lárus H. Bjarnason. Prentuð sem handrit. 1913: Réttarstaða Íslands eftir Einar Arnórsson. 1913: Íslenskur kröfurjettur (sjerstaki parturinn) eftir Jón Kristjánsson. 1916: Íslenskur verslunarrjettur, ætlaður verslunar­ skólanum eftir Jón Kristjánsson. 1918: Meðferð opinberra mála eftir Einar Arnórsson. Fylgirit með Árbók Háskóla Íslands háskólaárið 1918­ 1919. Lárus H. bjarnason var ötull baráttumaður fyrir stofnun Háskóla Íslands. Í blaðinu Reykjavík 3. apríl 1909 birtist ræða sem hann flutti á alþingi er háskólamálið var til umræðu.

x

Lögmannablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.