Lögmannablaðið - 01.12.2008, Blaðsíða 23
LÖGMANNABLAÐIÐ – 4 / 2008 > 23
Krókhálsi 3 569-1900
PO
RT
h
ön
nu
n
Data copy
er góður pappír
í afar hentugum og
meðfærilegum
umbúðum.
Hvað gerir ljósritunarpappír góðan?
Ein pappírstegund til allra nota
• Ljósritunarpappírinn á að vera vel
hvítur
• Ljósritunarpappírinn þarf að taka
prentlit vel svo ólíkar fyrirmyndir verði
skýrar
• Hann þarf að vera fjölnota; hæfur til
ýmissa nota skrifstofunnar; jafnt í
svart/hvítu sem í lit, - í ljósritunarvél,
prentara og faxtæki
• Trygging sé fyrir vistvænu vinnsluferli
pappírsins
Fulltrúar Lögmannafélagsins áttu samráðsfund með
fulltrúum dómsmálaráðuneytisins þriðjudaginn 25.
nóvember s.l. þar sem rætt var um kostnað í opinberum
málum og hugmyndir ráðuneytisins til að draga úr
honum, rætt um vankanta á framkvæmd uppgjöra
vegna verjenda og réttargæslustarfa lögmanna og
ófullnægjandi upplýsingastreymi frá rannsóknaraðilum
í tengslum við afgreiðslu mála. Einnig hugsanlegar
breytingar á reglum um öflun málflutningsréttinda fyrir
Hæstarétti, þar sem opnað yrði fyrir þann möguleika að
tiltekin mál fyrir þriggja manna dómi yrðu gjaldgeng
sem prófmál. Rætt var um málskostnaðarákvarðanir
dómstóla og hvort hugsanlega mætti setja upp
sambærilegar viðmiðunarreglur og gilda um þóknun í
verjenda og réttargæslumálum. Fulltrúar félagsins
gerðu grein fyrir þeirri miklu óánægju meðal lögmanna
með þá breytingu sem dómsmálaráðherra gerði með
reglugerð nr. 45/2008 um skilyrði gjafsóknar og
starfshætti gjafsóknarnefndar. Var fulltrúum ráðu
neytisins afhent skýrsla sem sérstök nefnd á vegum
félagsins tók saman um gjafsóknarmálefni. Loks var
rætt um hvort gera ætti breytingar á fyrirkomulagi
námskeiða til öflunar réttinda til að vera héraðs
dómslögmaður, þannig að kennslu og hugsanlega
prófum yrði dreift á lengri tíma en nú er. Áfram verður
unnið með framangreind málefni í samráði við
ráðuneytið og félagsmenn Lögmannafélagsins.
I.I.
Samráðsfundur LMFÍ með
dómsmálaráðuneyti
Af vettvangi félagsins