Lögmannablaðið - 01.12.2010, Qupperneq 9

Lögmannablaðið - 01.12.2010, Qupperneq 9
lögMannaBlaðið tBl 04/10 9 Á léttUM nótUM líf leynist í lögmönnum föStudaGinn 22. oKtÓBeR 2010 fór fram í fyrsta sinn síðan árið 2006 meistaramót lmfÍ í knattspyrnu utan­ húss. mótið lagðist af á sínum tíma vegna áhugaleysis lögmanna og lélegs forms og var ekki fyrirséð að það yrði endurvakið fyrr en Jóhannes eiríksson ákvað að við svo búið mætti ekki standa: „fram þjáðir menn“, „Íslandi allt“, „gerumokkargerumokkar besta“ kallaði hann kotroskinn og viti menn. líf leyndist í lögmönnum sem spruttu upp af skrifborðsstólunum, greiddu yfir þunnan hvirfilinn, sóttu fótboltaskóna inn í geymslu og mættu á staðinn. Hinn aldni formaður knattspyrnudeildar lmfÍ, Smári Hilmarsson, var einnig mættur í KR gallanum sem saumaður var á öndverðri 20. öld og svo mátti þekkja ýmis andlit manna sem höfðu sparkað í tuðrur frá barnsaldri. var ekki að sjá annað en að menn væru í fantaformi og svo var tekist á innan vallar af festu en fyllstu háttvísi eins og jafnan þegar lögmenn eiga í hlut. fimm lið mættu til leiks; leX, loGoS fC, lögfræðistofa Reykjavíkur/ mörkin lögmannsstofa, Regula og vinir og S18. að venju fór mótið fór fram á gervigrasvelli Íþróttafélagsins fram, sem löngum hefur verið kallað Wembley okkar knattspyrnumanna í lmfÍ. liðin kepptu öll innbyrðis og spiluðu fjóra leiki hvert. Úrslit leikJa leX – Regula og vinir 0­3 loGoS fC – S18 3­1 lR/mörkin – leX 4­1 Regula og vinir – loGoS fC 5­0 S18 – lR/mörkin 1­4 loGoS fC – leX 2­0 Regula og vinir – lR/mörkin 1­2 leX – S18 0­5 lR/mörkin – loGoS fC 0­0 S18 – Regula og vinir 3­5 lOkastaða Sæti Lið Mörk Stig 1 lR/mörkin 10 ­ 3 10 2 Regula og vinir 14 ­ 4 9 3 loGoS fC 5 ­ 6 7 4 S18 10 ­ 12 3 5 leX 1 ­ 14 0 dómarar frá KSÍ dæmdu alla leiki og kom ekki til neinna eftirmála. Því reyndi ekki á kærunefnd teina og tótu sem ekki hefur verið kölluð saman síðan árið 1997. lið lögfræðistofu Reykjavíkur/ markarinnar bar sigur úr bítum en með liðinu spiluðu gestaspilararnir og KR­ ingarnir Gunnar Guðmundsson og Smári Hilmarsson. aldur sumra liðsmanna lR/markarinnar þótti heldur í hærri kantinum og fengu þeir glósur um hvort spilað væri í sérstakri öldungadeild. Heldur dró úr gríninu þegar hvert liðið á fætur öðru laut í gervigras fyrir lR/ mörkinni sem stóð að lokum uppi sem sigurvegari. „lengi leynist líf í lögmönnum“ hafði kammerjómfrúin á orði þegar hún afhenti verðlaunin í lokin og útdeildi verðlaunapeningum, kossum og hóli á þakkláta og sveitta sigurvegara. Þau tímamót áttu sér einnig stað að Jóhannes eiríksson tók formlega við formennsku í íþróttanefnd lmfÍ af Smára Hilmarssyni, sem gegnt hefur stöðunni frá 1995. (eða var það 1395?) Bjóðum við Jóhannes sérstaklega velkominn til starfa og væntum við mikils af vinnu hans á komandi árum. Fótboltanefndin. Barist um boltann.

x

Lögmannablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.