Lögmannablaðið - 01.12.2010, Síða 13
Úr MyndAsAfni
Í SÍðaSta töluBlaði lög
mannablaðsins var sagt frá fyrsta
knattspyrnumótinu á vegum lmfÍ
sem haldið var árið 1995. Jafnframt
var umfjöllun um kærunefnd teina og
tótu og sagt að hún hefði aldrei þurft
að koma saman enda sýndu lögmenn
félögum sínum vinsemd og virðingu
í hvívetna. Það gerðist þó einu sinni
að kærunefndin kom saman og fer
hér á eftir dramatísk frásögn Þórunnar
Guðmundsdóttur sem er annar helmingur
tvíeykisins sem skipar nefndina.
Þegar kom að haustmóti lmfi í
knattspyrnu 1997 hafði liðið „Reynsla
og léttleiki“ sem leitt var af Jóni Steinari
Gunnlaugssyni unnið nokkur mót í röð.
Jón Steinar var í liðinu (reynslan) og svo
safnaði hann að sér 2527 ára gömlum
hlaupagikkjum (léttleikinn). JSG stóð
allan leikina á markalínunni og öskraði
á hlaupagikkina: „Hingað með boltann“,
gikkirnir voru út um allan völl að sækja
boltann, gáfu hann svo á Jón Steinar,
sem þrusaði honum í markið. Þessi
leikaðferð gafst mjög vel vegna þess
að liðið stóð uppi sem sigurvegari mót
eftir mót, og gott ef Jón Steinar var ekki
markahæstur í einhverjum mótum.
Því miður man ég ekki hvað liðið
hét sem vann haustmótið 1997, en það
var ekki lið Reynslu og léttleika. eftir
mótið uppgötvaði Jón Steinar að í liðinu
sem vann var Steinar Þór Guðgeirsson
landsliðsmaður í fótbolta, sem var að
vísu búinn að ljúka laganámi en hann
átti ekki að útskrifast formlega fyrr en í
lok október 1997. mótið var haldið fyrir
þann tíma. Jón Steinar taldi að þar með
væri Steinar Þór ekki löglegur leikmaður
og krafðist þess að titillinn væri hirtur af
vinningsliðinu og afhentur Reynslu og
léttleika sem var í öðru sæti. Það skal
tekið fram að kæran var ekkert grín.
Kærunefndin hlustaði ekki á þetta og
neitaði að breyta úrslitunum, Steinar Þór
var talinn löglegur leikmaður. Úrslitin
stóðu.
EI
Úr knattspyrnusögu lMfí
sigurvegarar á fyrsta fótboltamóti lMfí utanhúss var lið Jóns steinars gunnlaugssonar, reynsla og léttleiki.
efri röð f.v. Bjarki diegó, Jón ármann guðjónsson, Jóhannes karl sveinsson, Jón steinar gunnlaugsson
og ragnar Baldursson. neðri röð f.v.: ásgeir ragnarsson, Jónas Þór guðmundsson og Jóhannes Bjarni
Björnsson.
lögMannaBlaðið tBl 04/10 13