Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2012, Page 4
Vændur um gagnastuld
n Saka æskuvin Bjarna Randvers um að stela trúnaðargögnum
A
ðstandendur Vantrúar saka
æskuvin Bjarna Randvers Sig-
urvinssonar um að hafa stolið
trúnaðargögnum frá félaginu,
að því er fram kemur í nýrri færslu á
vef Vantrúar. Í færslunni sem ber
heitið „Ingvar Valgeirsson stal trún-
aðargögnum“ segir að hann hafi far-
ið inn á læst spjallborð Vantrúar og
stolið þaðan gögnum með því að
taka skjáskot af samræðum félaga
Vantrúar um Bjarna.
Bjarni, stundakennari við Guð-
fræði- og trúarbragðafræðideild HÍ,
var nýlega sýknaður af kæru Vantrúar
um óvönduð vinnubrögð við kennslu.
Félagið taldi sig ekki njóta sannmæl-
is í námskeiðinu Nýtrúarhreyfingar
en siðanefnd HÍ taldi ekki sannað að
hann hefði reynt að rægja félagið eða
ala á fordómum í garð þess.
Ef marka má nýja færslu á vef-
síðunni er málinu ekki lokið. Þar er
Ingvar sakaður um refsiverða hátt-
semi. Þar kemur fram að Vantrú hafi
kært þjófnaðinn til lögreglu en því
hafi tvisvar verið vísað frá. Þá seg-
ir að Vantrú hafi grennslast fyrir um
það hvernig þessi gögn komust í
hendur Bjarna allt frá því upp komst
um þjófnaðinn. „Á haustmánuð-
um hafði félagsmaður samband við
einstakling sem grunur lék á að ætti
aðild að málinu. Viðkomandi játaði
að hafa stolið trúnaðarsamtölum fé-
lagsmanna Vantrúar og komið til
Bjarna Randvers. Þessi maður heitir
Ingvar Valgeirsson og er æskuvinur
Bjarna Randvers frá Akureyri.“
Þá kemur fram að Ingvar hafi
aldrei fengið aðgang að spjallborði
Vantrúar og að hann tengist félaginu
ekki á neinn hátt nema hann þekki
einn í félaginu og hafi notað að-
gangsorð hans til að komast inn á
spjallborðið. n
4 Fréttir 15. október 2012 Mánudagur
Bjarni nýlega sýknaður Vantrú kærði
Bjarna fyrir óvönduð vinnubrögð í kennslu.
Hann var sýknaður.
S
kortur á geðlæknum á Ís-
landi hefur orðið til þess
að einstaklingar sem þurfa
á þjónustu þeirra að halda
þurfa oft að bíða vikum
saman eftir að komast að. Kristinn
Tómasson, formaður geðlæknafé-
lags Íslands, segir biðtíma eftir að
komast að hjá geðlækni óþarflega
langan en skortur á heimilislækn-
um sé hluti af vandanum.
Heilbrigðiskerfið ein heild
„Það er ákveðin vöntun á geðlækn-
um til að starfa í almennri mót-
töku. Biðtími eftir að komast að hjá
geðlækni er óþarflega langur, það
er ekki spurning. En maður þarf að
horfa á heildarmyndina. Það vant-
ar heimilislækna og það þýðir að
það er erfitt fyrir geðlækna að koma
þeim sjúklingum sem þeir eru að
sinna frá sér aftur til heimilislæknis,
þetta myndar því hring. Þetta spilar
saman þar sem heilbrigðiskerfið er
sem betur fer ein heild og við þurf-
um að vera í nánu samstarfi við alla
aðila og til þess að kerfið virki vel
má ekki neinn hlekkur vera rofinn.“
Grunnþjónustan hjá
heilsugæslunni
Kristinn bendir á að langflestir geð-
læknar taki aðeins við nýjum sjúkl-
ingum í gegnum tilvísanir frá öðru
heilbrigðisstarfsfólki og segir þá
sem þurfi nauðsynlega að kom-
ast undir læknishendur komast að.
„Langflestir geðlæknir vinna ein-
vörðungu með tilvísanir. Þannig
að fái þeir tilvísun frá öðrum aðila
í heilbrigðiskerfinu um að taka við
viðkomandi kemst sá einstakling-
ur að innan nokkurs tíma. Sumir
geðlæknar taka sem sagt ekki við
sjúklingum sem hafa ekki farið fyrst
til síns heimilislæknis. Þetta flæk-
ir málið fyrir þá sem ekki eru með
heimilislækni. En grunnþjónustan
er í gegnum heilsugæsluna og
mað ur vill að fólk leiti þangað með
sína geðheilsu alveg eins og það fer
þangað með alla aðra sjúkdóma.
Öll rútínuð meðferð við venjuleg-
um veikindum er í hendi heimilis-
lækna og á að vera þar. Heimilis-
læknar eru mjög góðir og færir í
að sinna almennum geðröskun-
um og geðsjúkdómum og gera það
vel svona yfirleitt og upp til hópa.
Geðlæknar eiga fyrst og fremst að
sjá um það sem á að heita erfiðari
mál. Vandinn er þá kannski með
þessi erfiðari mál og þegar greiðist
úr þeim að þegar það er skortur á
heimilislæknum og þeirra tími er
smekkbókaður líka að þá myndast
þessi hringrás.“
Lítil nýliðun innan stéttarinnar
Lítil nýliðun hefur átt sér stað innan
geðlæknastéttarinnar og margir af
þeim sem fara utan í sérfræðinám
í geðlækningum snúa ekki aftur
heim til starfa. Einnig er nokkuð um
að geðlæknar sem lengi hafa starf-
að hér á landi hafi flust erlendis þar
sem laun eru hærri og aðstæður til
starfa betri. Kristinn segir mikil-
vægt að skapa aðlaðandi vinnu-
skilyrði fyrir geðlækna hér á landi
svo að þeir sem fara utan til náms
komi frekar aftur heim til starfa.
„Það er alveg ljóst að geðlæknar
gerast gamlir og það hefur ekki ver-
ið sú nýliðun sem við hefðum viljað
sjá í stéttinni. Það er þó ungt fólk á
leiðinni sem maður vonar að muni
koma inn en við þurfum að tryggja
að vinnuaðstæður fyrir geðlækna
séu góðar og tryggar þannig að ís-
lenskir geðlæknar sem eru erlendis
vilji koma til starfa hjá okkur hvort
sem það er á sjúkrahúsum eða á
stofum út í bæ.“ n
Vítahringur
læknaskorts
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
n Biðtími eftir að komast að hjá geðlækni óþarflega langur
„Sumir geðlækn-
ar taka sem sagt
ekki við sjúklingum sem
hafa ekki farið fyrst til
síns heimilislæknis
Langur biðtími
Einstaklingar sem
glíma við vanlíðan
þurfa oft að bíða í
langan tíma eftir
að komast að hjá
geðlækni.
Skortur á geðlæknum Kristinn Tóm-
asson, formaður geðlæknafélags Íslands,
segir mikilvægt að læknar í sérfræðinámi
vilji snúa heim að loknu námi.
Sunndal vill
fá Íslendinga
Á þriðjudaginn, 16. október,
stendur Sunndal Næringssel-
skap og atvinnuþróunarfélagið
Industriinkubatoren PiFF Sunn-
dal fyrir sameiginlegum kynn-
ingarfundi í Hörpu. Á fundinum
verða kynntir atvinnumöguleik-
ar í sveitarfélaginu Sunndal í
Mið-Noregi. Að fundinum standa
stærstu fyrirtæki sveitarfélagsins
og sveitarstjórn bæjarins.
Áhugasömum gefst tækifæri
til þess að ræða beint við æðstu
menn viðkomandi fyrirtækja á
kynningunni í Hörpu um lausar
stöður, auk þess sem hægt verð-
ur að panta viðtöl eftir fundinn á
þriðjudag eða miðvikudag. Bæjar-
stjórinn hyggst þar að auki kynna
sveitarfélagið og hvað það hefur
að bjóða íbúum sínum, bæði nú-
verandi og væntanlegum. Full-
trúi frá norsku atvinnumiðluninni
NAV verður einnig á staðnum og
geta gestir fengið upplýsingar frá
honum um það hvernig er að flytja
til Noregs og setjast þar að.
Þrír á móti
Ragnheiði
Ragnheiður Elín Árnadóttir, odd-
viti Sjálfstæðisflokksins í Suður-
kjördæmi, fær þrjú mótframboð
gegn sér í prófkjöri flokksins í kjör-
dæminu.
Þeir sem bjóða sig fram
gegn Ragnheiði eru þeir Hall-
dór Gunnarsson, sóknarprestur
í Holti, Kjartan Ólafsson, fyrrum
þingmaður og Árni Johnsen, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins. Kjart-
an gegndi þingsetu í Suðurkjör-
dæmi fyrir Sjálfstæðisflokkinn á
árunum 2004–2009.
Haldinn var kjördæmisráðs-
fundur í Vík í Mýrdal um helgina
þar sem þetta kom fram. Var þar
samþykkt að halda prófkjör í kjör-
dæminu í janúar. Vildi Ragnheið-
ur að kosið yrði strax í prófkjöri en
ekki varð af því.