Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2012, Side 12
Hækkandi verð á mat
veldur áHyggjum víða
S
ameinuðu þjóðirnar hafa var-
að við því að verð á kjöti og
mjólkurvörum muni hækka á
næstunni vegna öfgakennds
veðurfars í Bandaríkjunum
og á stórum svæðum í Evrópu. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Matvæla-
og landbúnaðarstofnun Sameinuðu
þjóðanna (FAO), sem breska blaðið
The Guardian vitnar til, mun heims-
framleiðsla á hveiti minnka um 5,2
prósent á þessu ári og uppskera sem
notuð er til að fóðra dýr minnka um
10 prósent miðað við árið 2011. Þetta
gæti leitt af sér talsverðar verðhækk-
anir á mat á næstu misserum.
Hveiti hækkar um fjórðung
„Mannfjöldi eykst en framleiðslan
heldur ekki í við neysluna,“ seg-
ir Abdolreza Abbassian, aðalhag-
fræðingur FAO, í samtali við The Gu-
ardian. Hann segir að verð á hveiti
hafi þegar hækkað um 25 prósent
á þessu ári, maís um 13 prósent og
mjólkurvörur um 7 prósent bara í
síðasta mánuði. Þá segir hann að al-
þjóðlegar varabirgðir af matvælum,
sem grípa má til þegar keyrir um
þverbak á einhverjum svæðum, séu
hættulega litlar. „Þetta þýðir að mat-
vælabirgðir eru af skornum skammti
og það er afar lítið svigrúm til að
bregðast við óvæntum uppákomum,“
segir Abbassian. Uppskerubrestur
hefur verið á kornmeti víða sem ger-
ir það að verkum að varabirgðir gætu
verið komnar að þrotum á næsta ári
– þrátt fyrir minnkandi eftirspurn
vegna hækkandi heimsmarkaðs-
verðs. Ensku bændasamtökin benda
einnig á að hveitiuppskera í Bret-
landi hafi ekki verið jafn lítil og frá ní-
unda áratug liðinnar aldar – afbrigði-
legu veðurfari sé þar um að kenna.
„Þungbært“
„Uppskera á sumum svæðum hefur
minnkað um 25–30 prósent,“ segir Pet-
er Kendall, forseti ensku bændasam-
takanna. Hann segir að undir venju-
legum kringumstæðum hafi bændur
getað stólað á að fá fjögur tonn út úr
hverri ekru lands. Þeir hafi hins vegar
átt í erfiðleikum með að fá þrjú tonn
og stundum aðeins fengið tvö tonn
á ekru. „Þetta hefur reynst bændum
þungbært,“ segir hann. Uppskeru-
brestur og hækkandi heimsmarkaðs-
verð kemur mörgum illa. Svínabænd-
ur á Englandi, sem reiða sig á kornmeti
til að fæða búfé sitt, eru til dæmis und-
ir talsverðum þrýstingi vegna hækk-
andi heimsmarkaðsverðs, að sögn
Kendalls.
Uppskera í Bandaríkjunum er
einnig léleg það sem af er þessu ári og
hefur hveiti-, soja- og maísuppskera
minnkað um tíu prósent á þessu ári
miðað við sama tímabil í fyrra. Þar sem
Bandaríkin eru langstærstu ræktend-
ur og útflytjendur kornmetis í heim-
inum er fyrirséð að þessi minnkun
muni hafa neikvæð áhrif. Uppskeru-
tíminn stendur enn yfir vestanhafs en
áætlanir gera ráð fyrir að uppskera á
maís verði sú minnsta í níu ár. Nærri
40 prósent af öllum maís sem ræktað-
ur er í Bandaríkjunum er notaður í líf-
rænt eldsneyti sem gerir það að verð
til neyslu hækkar vegna minna fram-
boðs.
Neyslumynstur breytist
The Guardian greinir frá því að bresk-
ir stórmarkaðir hafi ekki útilokað að
hækka verð á nauðsynjavörum (e.
staple foods) en áfram verði þó boð-
ið upp á „samkeppnishæft“ verð. Með
öðrum orðum þýðir þetta að verð
muni hækka, sé ástæða til þess. „Það
er enginn vafi á því að þetta hefur ver-
ið erfiður tími fyrir bændur sem hafa
glímt við erfitt veðurfar og hækkandi
verð á til dæmis eldsneyti,“ segir tals-
maður Waitrose-matvörukeðjunnar
í Bretlandi. Forsvarsmenn Sainsbury
taka í sama streng og segja að fyrir-
tækið muni í auknum mæli beina við-
skiptum sínum til breskra bænda og
styðja þannig betur við bakið á þeim.
Bresku neytendasamtökin Which?
birtu niðurstöður verðkönnunar í
breskum matvöruverslunum á dögun-
um. Samkvæmt niðurstöðum sam-
takanna kostar meðalkarfan í dag
76,83 pund, eða 15.096 krónur. Það
er hækkun upp á 5,66 pund frá sama
tíma á síðasta ári, eða 1.112 krónur.
„Hækkandi matvælaverð er eitt helsta
áhyggjuefni neytenda og hefur breytt
því hvernig þeir kaupa í matinn,“ seg-
ir framkvæmdastjóri Which?, Richard
Lloyd. Breskir neytendur eru í aukn-
um mæli farnir að beina viðskiptum
sínum til lágvöruverðsverslana, sam-
kvæmt könnun samtakanna, og sögð-
ust 40 prósent ætla að minnka útgjöld
við matarinnkaup.
Samkvæmt tölum FareShare í Bret-
landi – samtaka sem berjast gegn
hungri og sóun á mat – hefur neyslu-
minnstur tekjulítilla fjölskyldna breyst
í kjölfar hækkandi matvælaverðs og
hefur neysla þeirra á grænmeti og
ávöxtum minnkað um þriðjung á
undanförnum misserum. n
12 Erlent 15. október 2012 Mánudagur
n Varað við að matvælaverð hækki n Öfgakenndu veðurfari kennt um
„Afar lítið svigrúm
til að bregðast við
óvæntum uppákomum.
Áhætta Á meðfylgjandi korti frá Maplecroft, sem sérhæfir sig í
áhættugreiningu, sjást þau svæði sem eru í hvað mestri hættu að verða
fyrir matvælaskorti árið 2013. Áhættugreiningin byggðist meðal annars
á birgðum og aðgengi að matvælum.
Mjög mikil áhætta
Mikil áhætta
Miðlungs áhætta
Lítil áhætta
Engar upplýsingar
Matvælaöryggi í heiminum árið 2013
Haítí
Sýrland
Tjad
Suður-Súdan
Lýðveldið
Kongó
Sómalía
Búrúndí
Eþíópía
Jemen
Kómoros
Afganistan
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Léleg uppskera
Þessi mynd er tekin
í Indiana í Banda-
ríkjunum í sumar.
Miklir þurrkar voru á
þessu svæði í sumar
og uppskeran undir
meðallagi. MyNd ReuteRs
200 skelkaðir
Norðmenn
Tæplega 200 manns voru í hættu
þegar kviknaði í flugvél í flugtaki á
flugvellinum í Antalya í Tyrklandi
á sunnudagsmorgun. Eldurinn
virðist hafa kviknað í flugstjórnar-
klefanum en farþegar voru beðnir
að forða sér út um neyðarútganga
vélarinnar um leið og áhöfn-
in varð vör við reyk. Tuttugu og
sjö manns þurftu aðhlynningu á
sjúkrahúsi eftir uppákomuna en
enginn ku vera alvarlega slasað-
ur. Eins og von er olli atvikið miklu
uppnámi í vélinni en flestir far-
þegarnir voru Norðmenn. Förinni
var heitið til Noregs.
Tyrkir og Sýr-
lendingar deila
Sýrlenska ríkisstjórnin hefur
bannað allt farþegaflug frá Tyrk-
landi í sýrlenskri lofthelgi en áður
hafði herflug verið bannað innan
lofthelginnar. Utanríkisráðuneytið
greindi frá þessu í sýrlenska ríkis-
sjónvarpinu um helgina en köldu
hefur andað á milli þjóðanna
undanfarnar vikur. Í síðustu viku
neyddu Tyrkir sýrlenska farþega-
vél til að lenda í Tyrklandi – þar
sem í henni var leitað. Grunur lék
á um að vélin hafi verið notuð til
að flytja rússnesk vopn fyrir Sýr-
landsher.
Tyrkneska ríkisstjórnin hefur
lýst yfir stuðningi við stjórnarand-
stæðinga og kallað eftir afsögn
Bashar al-Assad forseta Sýrlands.
Ráðist inn í
fátækrahverfi
Hundruð brasilískra lögreglu-
manna fóru inn í tvö hættulegustu
fátækrahverfin í Rio de Janeiro á
sunnudag í viðleitni til að sporna
við eiturlyfjasölu sem þar þrífst.
Notast var við brynvarða bíla og
þyrlur í aðgerðinni ásamt því að
hermenn úr brasilíska hernum og
sérsveitarmenn veittu lögreglu-
mönnunum stuðning, en blóðugir
bardagar hafa verið háðir í gegn-
um tíðina á milli lögreglunnar og
eiturlyfjasala í fátækrahverfum.
Hverfin tvö, Jacarezinho og
Manguinhos munu vera alræmd
fyrir sölu og framleiðslu krakks
sem hefur náð mikilli útbreiðslu
á meðal eiturlyfjaneytenda í fá-
tækrahverfunum.
Aðgerðin mun vera liður í að
draga úr hættu á vissum svæðum
borgarinnar fyrir Ólympíuleikana
2014.