Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2012, Page 18
Áttu fótum sínum fjör að launa
n Stórstjörnur hætt komnar þegar óeirðir brutust út í Afríkubikarnum
N
okkrar stórstjörnur úr enska
boltanum þurftu á vopnaðri
vernd að halda þegar þeir yfir-
gáfu leikvöllinn eftir landsleik
Senegal og Fílabeinsstrandarinnar
í undankeppni Afríkubikarkeppn-
innar um helgina. Toure-bræður,
Didier Drogba, Gervinho og Demba
Ba eru meðal þeirra sem sagðir eru
hafa verið hætt komnir vegna óeirða
sem brutust út þegar gestirnir frá
Fílabeinsströndinni komust tveim-
ur mörkum yfir en leikinn þurfti að
flauta af í kjölfarið vegna óánægju
áhorfenda.
Lætin hófust fyrir alvöru þegar
dómari leiksins dæmdi víti á heima-
menn sem Drogba skoraði úr og
kom gestunum í 0–2 en tap hefði
sent landslið Senegal út úr keppn-
inni. Það voru aðdáendur hreint
ekki sáttir við en vandræðin hófust
þó ekki með vítaspyrnudóminum.
Höfðu áhorfendur kveikt elda og
látið ófriðlega strax við fyrsta mark
gestanna frá Fílabeinsströndinni og
fimm mínútum áður en Drogba fékk
dæmt vítið hljóp einstaklingur inn á
völlinn og náði næstum til Drogba
áður en lögreglumenn náðu að draga
hann uppi.
Við seinna markið fór síðan að
rigna grjóthnullungum og ýmsu
öðru lauslegu inn á völlinn og skot-
unum var beint sérstaklega að helstu
stjörnum Fílabeinsstrandarinnar.
Um tíma var óttast um Toure-bræð-
ur, Kolo og Yaya, en síðar kom í ljós
að þeir sluppu með skrekkinn. Kald-
hæðnislegt er að einn af fáum sem
slasaðist við óeirðirnar var íþrótta-
málaráðherra Senegal sem reyndi af
megni að fá landa sína til að hætta
vitleysunni en hafði lítið fyrir erfiði
sitt annað en handleggsbrot.
Ekki liggur fyrir þegar þetta er
skrifað hvort síðustu fimmtán mín-
útur leiksins verða spilaðar en það er
ólíklegt. Fyrri leikur liðanna endaði
4–2 fyrir Fílabeinsströndinni og því
samtals 6–2 ef úrslit seinni leiksins fá
að standa. n
18 Sport 15. október 2012 Mánudagur
Í
slenska landsliðið hefur aldrei
getað leikið fram á völlinn en það
er vissulega að spila betur nú en
það hefur gert lengi,“ segir Bjarni
Felixson, fyrrum íþróttafrétta-
maður, um landsliðið í knattspyrnu
eftir að Svíinn Lars Lagerbäck tók við
liðinu. Bjarni er ekki efins um að liðið
leikur betri knattspyrnu en áður og
segir stig eða fleiri gegn Svisslending-
um á morgun þýða að möguleikar Ís-
lands að ná árangri í riðlinum stór-
aukist. Undir það tekur Sigurður
Ragnar Eyjólfsson, þjálfari kvenna-
landsliðsins, sem sér mikinn mun á
karlaliðinu til hins betra eftir komu
Svíans meðan Willum Þór Þórsson,
þjálfari, er ekki sannfærður ennþá.
Lagerbäck kom með stemningu
Undir stjórn Svíans hefur íslenska
landsliðið sigrað tvo af þremur
landsleikjum sínum í undankeppni
Heimsmeistarakeppninnar í Brasilíu
árið 2014 og er liðið í öðru sæti síns
riðils með sex stig á eftir Sviss sem
hefur landað sjö stigum í þremur
leikjum. Það er einmitt landslið Sviss
sem Ísland mætir á Laugardalsvelli á
morgun en það landslið er að flestra
mati það sterkasta í riðli Íslands. Ná-
ist þar eitt stig eða fleiri eru skrambi
margir vegir færir íslenska lands-
liðinu.
Stigin segja allt sem segja þarf
Bjarni Felixson hefur aldrei legið á
skoðunum sínum á fótboltanum en
hann er ekki í vafa um jákvæð teikn
hjá landsliðinu eftir að Lars Lager-
bäck tók við liðinu. „Það er töluverð-
ur munur til hins betra. Liðið spilar
meira en það gerði áður og léttara er
yfir liðinu. Vissulega hefur liðið ver-
ið að leika mjög aftarlega en ég sé
samt mun. Úrslitin í Albaníu voru
stórkostleg þó við eiginlega rændum
þeim stigum þar. En það er árangur-
inn hjá liðinu sem segir manni að
það spili betur. Við erum með sex stig
í þessum riðli og það eru stigin sem
gilda.“
Annar og betri andi nú en áður
Þjálfari kvennalandsliðsins, Sigurð-
ur Ragnar Eyjólfsson, tekur undir
með Bjarna að verulegur munur sé á
leik íslenska karlaliðsins eftir tilkomu
sænska þjálfarans. „Mér líst rosalega
vel á byrjunina. Það er rosalega sterkt
að vera með sex stig af níu mögulegum
og við búnir með tvo útileiki. Almennt
finnst mér liðið vera að spila sannfær-
andi og framfarir eru áberandi milli
ára. Það spilar mun skipulagðari vörn
en áður og það eru komnir í hópinn
hæfileikaríkir einstaklingar sem skipta
sköpum eins og við sáum í aukaspyrn-
unni hjá Gylfa [í Albaníu]. Samt vantar
í liðið sterka leikmenn eins og Kolbein
[Sigþórsson] þannig að það á kannski
ennþá meira inni. Það er líka auðvelt
að finna að það er stemning í hópnum
sjálfum þannig að ef liðið fær góðan
stuðning gegn Sviss væri stórkostlegt
að ná góðum úrslitum þar.
Ennþá spurningarmerki
Willum Þór Þórsson, þjálfari, er sá eini
í hópnum sem enn setur spurningar-
merki við fingraför Lars Lagerbäck á
landsliðinu og er ekki fyllilega sann-
færður um ágæti Svíans sem þjálfara.
„Liðið er almennt varkárara en það var
áður og menn hikandi við að fara fram
á völlinn. Reyndar er erfitt að meta
nokkuð af þessum síðasta leik gegn Al-
baníu en ef við tökum hina leikina þá
var Noregsleikurinn [sem Ísland vann
2–0] mjög jákvæður að því leyti að við
vorum tilbúnir í þann leik sem lið.
Það var stemning í liðinu til að verja
markið og við erum auðvitað búnir að
nýta föstu leikatriðin mjög vel. En svo
gleymdu menn sér aðeins í leiknum
gegn Kýpur [sem Ísland tapaði 1–0] þó
mér fyndist þjálfarinn reyndar standa
sig vel í kjölfarið. Hann tók tapið dá-
lítið á sjálfan sig í því tilfelli. Það verð-
ur gaman að sjá liðið eiga við Sviss í
þessari jákvæðu stöðu sem landsliðið
hefur komið sér í og stemningin al-
mennt kringum liðið er góð. Þó ég telji
reyndar að Ólafur Jóhannesson eigi
nú smá heiður af því. Hann byrjaði að
taka þessa stráka inn og skapa aga og
mér finnst Ísland ekki hafa átt landslið
sem á meiri möguleika á að ná langt
um tíu ára skeið eða svo. n
Meiri gredda og
betri stemning
n Álitsgjafar DV segja karlalandsliðið varnarsinnaðra nú
Albert Örn Eyþórsson
blaðamaður skrifar albert@dv.is
Ósáttir stuðningsmenn Mikil ástríða er fyrir fótbolta víða í Afríku og kannski fullmikil á köflum.
Þjálfun heill-
ar Zidane
Frönsku kempuna Zinedine
Zidane klæjar meira í puttana
dag frá degi að taka til við þjálf-
un að því er fram kemur í viðtali
við kappann í franska tímaritinu
L´Equipe. Stjarnan er nú háttsett
hjá Real Madrid á Spáni sem yfir-
maður knattspyrnumála en hann
hefur áður lýst yfir vilja til að koma
meira að boltanum en svo. Að-
spurður hvort til greina komi að
þjálfa franska landsliðið útilokaði
Frakkinn það ekki en sex ár eru nú
liðin síðan hann setti skóna á hill-
una hinsta sinni sem knattspyrnu-
maður.
Balotelli engin
fyrirmynd
Unglingaakademía Manchest-
er City letur guttana til að taka
Ítalann Mario Balotelli sem sér-
staka fyrirmynd en svo virðist
sem forráðamenn City séu ört
að missa þolinmæðina gagn-
vart stælum Ítalans. Gerði hann
sér lítið fyrir og flaug til Ítalíu
nokkrum klukkustundum eftir
að hafa leikið hörmulega með
City gegn Sunderland fyrir viku
þar sem honum var skipt út af.
Yfirmaður knattspyrnumála hjá
City hvetur ungmennin frem-
ur að líta til Gareth Barry eða
markvarðarins Joe Hart sem
góðra fyrirmynda í boltanum.
Ekkert að
hugsa um
United
Framherjinn Robert Lewandowski
segist ekki eyða sekúndu í hugs-
anir um að spila fyrir Manchest-
er United einn daginn. Vitað er að
Alex Ferguson stjóri MU hefur um
tíma haft augastað á þessum eitr-
aða sóknarmanni sem er aðeins
24 ára. Hann hefur um tíma þótt
einn allra besti sóknarmaðurinn
í þýska boltanum en segist ein-
beita sér að því að standa sig fyrir
Borussia Dortmund en þó aldrei
hafa útilokað að hann fari yfir til
Englands einn daginn.
Íslenska
karlalandsliðið
Álitsgjafar DV eru
á þeirri skoðun
að liðið spili betri
bolta eftir að Lars
Lagerbäck tók við
liðinu.