Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2012, Síða 11
Ævintýrið sem sligar Kópavog
Fréttir 11Miðvikudagur 24. október 2012
N
ei,nei. Það var ekki komið á
dagskrá þá,“ segir Gunnar
Birgisson, fyrrverandi
bæjastjóri Kópavogsbæjar,
aðspurður hvort verktakar hafi haft
vitneskju um að breyta ætti Glað-
heimasvæðinu þegar þeir hófu
uppkaup þar í ágúst árið 2005.
Fleiri en einn heimildarmaður sem
DV talaði við fullyrða að Gunnar
hafi lofað verktökum því að svæð-
inu yrði breytt. Því hafi þeir hafið
uppkaup á svæðinu. Kópavogsbær
gæti ekki fjármagnað uppkaup á
svæðinu og því hafi Gunnar fengið
verktakana til að sjá um uppkaup-
in. Gunnar þvertekur fyrir að hafa
lofað verktökum því að byggt yrði
á svæðinu áður en þeir hófu upp-
kaup þar í ágúst árið 2005.
Verðið ekki of hátt
Líkt og fram kemur í úttekt DV
greiddi Kópavogsbær 3,2 millj-
arða króna fyrir Glaðheimasvæðið.
Gunnar telur ekki að Kópavogsbær
hafi farið of geyst í kaup á Glað-
heimasvæðinu vorið 2006. „Menn
voru búnir að sjá að það var hægt
að úthluta svæðinu enda mikil eft-
irspurn á þessum tíma. Það var því
ekkert vandamál með það,“ segir
hann.
„Það var útilokað að hesta-
mannasvæði gæti verið við
Reykjanesbrautina til framtíðar.
Það var verið að byggja allt í kring-
um svæðið og vorum við því að loka
Glaðheimasvæðið inni. Meirihlut-
inn í Kópavogsbæ árið 1988 gerði
vitlausan 50 ára leigusamning við
hestamannafélagið Gust til ársins
2038. Við þurftum því að kaupa
upp þennan samning. Þess vegna
var verðið svona hátt,“ segir Gunn-
ar. Því hafi einungis tvennt verið í
boði. Að hætta að byggja allt í kring
um Glaðheimasvæðið eða að færa
hestamannafélagið upp á Kjóa-
velli.
Þess skal getið að fasteignamat
hesthúsanna nam 483 milljónum
króna á þessum tíma. „Okkur þótti
verðið hátt en þetta var niður-
staðan,“ segir Gunnar aðspurð-
ur hvort ekki hafi verið greitt of
hátt verð fyrir svæðið. Það sé hins
vegar álitamál hvað sé hátt verð.
„Það er ekki endilega rétt að ræða
fasteignamat hesthúsanna í þessu
sambandi,“ segir hann. Fasteiga-
mat á hesthúsunum hafi heldur
ekki verið í samræmi við þau verð
sem verktakar voru að kaupa hest-
húsin á. „Verðmatið helgaðist af
þeim verðum sem verktakar höfðu
verið að kaupa húsin á.“
Aldrei heyrt um
samkomulag við Straum
Samkvæmt heimildum DV höfðu
forsvarsmenn KGR-eignarhalds-
félags og Ingimundar hf. gert
samkomulag við fjárfestingabank-
ann Straum-Burðarás um að kaupa
allt svæðið fyrir alls sex milljarða
króna snemma árs 2006. KGR hafði
þá þegar greitt um 1.400 milljón-
ir króna fyrir uppkaup á hesthús-
um og hafði veitt hestamanna-
félaginu Gusti vilyrði fyrir því að
kaupa restina af hesthúsunum
fyrir þrjá milljarða króna. Heim-
ildir DV herma að Gunnar hafi
komið í veg fyrir umrætt samkomu-
lag við Straum-Burðarás. KGR-
eignarhaldsfélag og Ingimundur hf.
hafi síðan verið þvingaðir til að selja
svæðið.
Aðspurður um þetta atriði segist
Gunnar aldrei hafa heyrt af þessu
samkomulagi verktaka við Straum-
Burðarás. Svokölluð mínikrísa hafi
hins vegar komið upp í upphafi árs
2006 vegna neikvæðra frétta um ís-
lenskt fjármálalíf erlendis, meðal
annars frá Danske Bank. Sú krísa
hafi hægt á kaupum verktaka sem
síðar leiddi til þess að hestamanna-
félagið Gustur leitaði til Kópa-
vogsbæjar og óskaði eftir því að
bærinn keypti hesthúsin á Glað-
heimasvæðinu.
Hefðbundið að greiða
10 prósent kaupverðs
Þann 31. mars 2006 keypti
Hestamannfélagið Gustur um
40 prósent af öllum hesthúsum
á Glaðheimasvæðinu af KGR-
eignarhaldsfélagi og Ingimundi
hf. líkt og fram kemur í úttekt.
Eftir það óskaði Gustur síðan
eftir því að Kópavogsbær keypti
öll hesthúsin á svæðinu. Félagið
hafði frest til 15. maí til að standa
skil á kaupverðinu. Þann 9. maí
2006 var samþykkt á fundi bæjar-
stjórnar að kaupa allt svæðið af
hestamannafélaginu eða inn-
an við sex vikum eftir að Gustur
hafði gert samning við verktak-
ana.
Í janúar árið 2007 tilkynnti
Kópavogsbær að Glaðheima-
svæðið hefði verið selt fyrir 6,4
milljarða króna. Kaupendur voru
Kaupangur, sem keypti 2/3 hluta
svæðisins á 4,3 milljarða króna,
og Fasteignafélagið SMI ehf., sem
keypti þriðjungshlut á 2,1 millj-
arð króna. Kaupendur greiddu
tíu prósent af kaupverðinu við
undirritun. Kaupangur og SMI
skiluðu síðan svæðinu sem þeir
höfðu keypt af Kópavogsbæ eftir
hrun.
Varðandi kaupverðið segir
Gunnar að umræddir samningar
við söluna hafi verið hefðbundnir.
„Samið er um staðgreiðslu á tíu
prósentum af kaupverðinu og
restin er greidd með skuldabréfi,“
segir hann. Þessir samningar
hafi skilað Kópavogsbæ 1,5 millj-
arða króna hagnaði. Þegar hann
er inntur eftir því að umræddur
hagnaður hafi ekki enn skilað sér í
bæjarsjóð Kópavogs segist Gunn-
ar ekki hafa getað séð hrunið fyrir.
Gunnar þvertekur fyrir loforð
n Kannast ekki við að hafa rætt við verktakana
Verktakar komu út á sléttu
Þann 31. mars 2006 keypti Hesta-
mannfélagið Gustur um 40 prósent
af öllum hesthúsum á Glaðheima-
svæðinu. Seljendur voru KGR-
eignarhaldsfélag og útgerðafélagið
Ingimundur hf. en samtals greiddi
hestmannafélagið 1,1 milljarð fyr-
ir þessi hús. Hestamönnum bar
að greiða umræddan 1,1 milljarð
króna til VBS-fjárfestingabanka
fyrir 15. maí en VBS hafði milli-
göngu um að aflétta veðum af eign-
um á svæðinu. Því ákváðu hesta-
menn að leita til Kópavogsbæjar og
óskuðu eftir því að bærinn keypti
öll hesthús á svæðinu.
Samkvæmt heimildum DV
græddu verktakarnir sem höfðu
keypt upp húsin á Glaðheima-
svæðinu á um sjö mánaða tímabili
lítið á uppkaupunum. Þeir hafi
nokkurn veginn komið út á sléttu.
Annar aðili sem DV ræddi við segir
að það megi heldur ekki gleyma því
að hestamenn beri líka sína ábyrgð
í þessu máli. Himinhá tilboð frá
verktökunum hafi villt um fyrir
mörgum hestamönnum – margir
hverjir hafi verið haldnir „pen-
ingaglýju“.
Bærinn borgaði sexfalt
fasteignamat
Það var síðan á fundi bæjarstjórnar
þann 9. maí 2006 sem samþykkt var
að kaupa hesthúsin á Glaðheima-
svæðinu af Hestamannafélaginu
Gusti fyrir 3,2 milljarða króna –
innan við sex vikum eftir að Gustur
hafði gert samning við verktakana.
Fulltrúar minnihlutans í Kópavogi
lögðust hart gegn þessum kaupum.
„Þetta er vondur samningur sem er
að tryggja lóðabröskurum gróða,“
sagði Flosi Eiríksson, oddviti Sam-
fylkingarinnar í bæjarstjórn í sam-
tali við Morgunblaðið. Þess skal
getið að Gunnar Birgisson þurfti
að víkja af fundum um málið vegna
vanhæfni þar sem konan hans átti
hesthús á svæðinu.
Guðmundur Örn Jónsson, full-
trúi Samfylkingarinnar í skipulags-
nefnd Kópavogsbæjar, ritaði grein
í Morgunblaðið í júní 2006 um
Gustsmálið sem var eitt helsta
kosningamálið í bæjarstjórnar-
kosningunum í Kópavogi í maí
2006. Í grein Guðmundar kom fram
að samkvæmt samningi sem var
í gildi á milli Kópavogsbæjar og
Gusts fyrir kaupin, hafi komið fram
að „hvenær sem bæjarstjórn telur
þörf á að taka landið í sínar hend-
ur … er leigutaka skylt að láta leigu-
rétt sinn af hendi“. Einnig stóð þar
að „fyrir byggingar og önnur mann-
virki á landinu skal bæjarsjóður þá
greiða leigutaka eftir mati“ og „fyrir
leiguréttinn greiðist ekkert“.
Kópavogsbæ hafi því ekki borið
að greiða neitt fyrir landið heldur
einungis fyrir hesthúsin, sam-
kvæmt mati, en slíkt mat fór aldrei
fram. Samkvæmt fasteignamati
vorið 2006 voru hesthúsin á svæð-
inu metin á 483 milljónir króna.
Kópavogsbær greiddi því hesta-
mannfélaginu Gusti rúmlega
sexfalt fasteignamat hesthúsanna
eða 3,2 milljarða króna eins og áður
kom fram. Er þá ótalinn tveggja
milljarða kostnaður sem bærinn
bauðst til að borga fyrir flutning að-
stöðu hestamanna upp á Kjóavelli.
Kostnaður að nálgast
14 milljarða
Fréttatíminn fjallaði um Glað-
heimaævintýri Kópavogsbæjar árið
2011. Þar var vitnað í kostnaðarút-
tekt fjármálastjóra bæjarins. Í janúar
árið 2011 var talið að ævintýrið hefði
þegar kostað Kópavogsbæ um 12
milljarða króna. Í samtali við Frétta-
tímann sagði Gunnar Birgisson auð-
velt að vera vitur eftir á aðspurður
hvort bærinn hefði farið of geyst í
uppkaup í góðærinu. „Kannski sást
þú fyrir hrunið. Ég gerði það ekki.
Og ef hrunið hefði ekki komið til
værum við í fínum málum,“ sagði
Gunnar í samtali við Fréttatímann.
Frá upphafi árs 2011 til dags-
ins í dag hefur vísitala neysluverðs
hækkað um tæplega tíu prósent.
Því má ætla að kostnaður Kópa-
vogsbæjar vegna Glaðheimaæv-
intýrisins nemi varla undir 13,5
milljörðum króna í dag séu verð-
bætur og vaxtakostnaður frá upp-
hafi árs 2011 tekinn með. Þá er
ótalin krafa Þorsteins Hjaltested
Vatnsendabónda á hendur Kópa-
vogbæ sem fer fram á rúma sex
milljarða króna frá bænum vegna
vanefnda á samningi milli hans og
Kópavogsbæjar um kaup á landi
Vatnsenda. Þá kröfu sendi Hæsti-
réttur nýlega aftur til héraðsdóms
til efnismeðferðar.
Hins vegar er ljóst að ákvörðun
Kópavogsbæjar um uppkaup á
Glaðheimasvæðinu árið 2006 og
það sem fylgdi á eftir þykja enn mjög
umdeild – ákvörðun sem var tekinn
á örfáum vikum án þess að kanna til
hlítar hvaða áhrif hún hefði. Stórar
ákvarðanir eins og uppbygging
á svæði fyrir hestamenn á Kjóa-
völlum, samningar við Garðabæ
um vatnsréttindi og kaup á Vatns-
endalandi af Þorsteini Hjaltested.
Slíkir hlutir voru langt í frá kannað-
ir til hlítar. Nánar verður fjallað um
þennan kostnað Kópavogsbæjar
vegna kaupa á Vatnsendasvæðinu í
næstu úttekt DV. n
Gunnar Birgisson
Jakúb í Rúmfatalagernum
Engilbert Runólfsson
Ármann Kr. Ólafsson„Kannski sást þú
fyrir hrunið. Ég
gerði það ekki. Og ef
hrunið hefði ekki komið til
værum við í fínum málum.
Gunnar Birgisson
við Fréttatímann 2011
Ávinningur
Umsögn Þórarins Hjaltasonar bæjar-
verkfræðings og Guðrúnar Pálsdóttur,
fjármála- og hagsýslustjóra, varðandi
kaup Kópavogsbæjar á Glaðheima-
svæðinu þann 6. maí 2006:
„Niðurstöður okkar eru þær að Kópa-
vogsbær muni hafa fjárhagslegan
ávinning af viljayfirlýsingunni og að hún
hafi ekki íþyngjandi áhrif á rekstrar-
kostnað sveitarfélagsins til framtíðar.“
„Þetta er vondur
samningur sem er
að tryggja lóðabröskur-
um gróða.
Flosi Eiríksson
við Morgunglaðið 2006