Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2012, Qupperneq 20
Tíu leikmenn sem verða
að finna nýTT lið í janúar
20 Sport 24. október 2012 Miðvikudagur
n Nani, Florent Malouda og Stewart Downing eru allir komnir á endastöð
Nani
Á góðum degi er þessi
25 ára vængmaður einn
besti knattspyrnumaður
heims en á slæmum
dögum gerir hann lítið
meira gagn en miðlungs-
leikmaður hjá Swindon
Town. Nani er stútfullur af knattspyrnu-
hæfileikum en það er ákvarðanatakan
sem háir honum. Nani virðist þurfa á nýrri
áskorun að halda eftir fimm ár í herbúðum
United. Tækifærum hans fer fækkandi
hjá Sir Alex Ferguson og núna virðist rétti
tíminn fyrir Nani að róa á önnur mið.
Michel Vorm
Öfugt við flesta á
þessum lista er það
ekki takmarkaður
leiktími sem er
ástæða veru hans
á listanum. Heldur,
eins einkennilega og
það hljómar, hversu frábær markvörður
hann er. Swansea byrjaði tímabilið vel
en heldur hefur sigið á ógæfuhliðina
undanfarnar vikur. Vorm er einn albesti
markvörður ensku úrvalsdeildarinnar
og þarf að fara í stærra lið til að halda
áfram að vaxa og dafna. Swansea getur
vel fallið úr úrvalsdeildinni og það er
ekki gott fyrir toppmarkmann að hafa
fall á ferilskránni.
Florent Malouda
Florent Malouda er ekki
leikmaður sem passar inn í
framtíðaráform Robertos
Di Matteo, stjóra Chelsea.
Hann er orðinn 32 ára og
hans tími er einfaldlega
liðinn á Stamford Bridge. Nema hann vilji
verða áskrifandi að launatékkanum hjá
Chelsea fer hann fram á sölu í janúar og
finnur nýtt lið. Svo einfalt er það.
Sylvain Marveaux
Marveaux er ekki
þekktasta nafnið á
þessum lista enda
hefur hann lítið
spilað með Newcastle
síðan hann gekk í raðir
félagsins frá Rennes
árið 2011. Hjá Rennes spilaði Marveaux
frábærlega og var einn öflugasti
vængmaður frönsku deildarinnar. Hann
hefur hins vegar glímt við meiðsli en er nú
orðinn heill heilsu. Nái Marveaux sér ekki
á strik á næstu mánuðum er líklega útséð
með að þessi 26 ára leikmaður finni fjöl
sína í ensku úrvalsdeildinni.
John Guidetti
Guidetti er leikmaður
sem líklega mun aldrei
ná að komast að í
byrjunarliði City. Þessi
ungi sænski framherji fór
hamförum í fyrra þegar
hann var lánaður til
Feyenoord í Hollandi. Þar
tókst honum að skora 20 mörk í 23 leikjum.
Á þessum tímapunkti þarf þessi tvítugi
leikmaður að spila reglulega til að þróa
leik sinn áfram. Afar ólíklegt er að Roberto
Mancini, stjóri City, láti Carlos Tevez, Edin
Dzeko eða Mario Balotelli setjast á bekkinn
fyrir þennan unga leikmann. Hvort sem hann
verður seldur eða lánaður þarf leikmaðurinn
að yfirgefa City ekki seinna en í janúar.
Darren Bent
Darren Bent er einfaldlega of góður fyrir
miðlungslið Aston Villa. Þrátt fyrir að vera
ekki besti fótboltamaður í heimi skorar Bent
mörk eins og tölfræðin sýnir: Tæplega eitt
mark í öðrum hverjum leik í úrvalsdeildinni.
Með tilkomu Christians Benteke til Villa
gæti tækifærum Bent hins vegar farið
fækkandi. Hann virðist vera út úr myndinni
hjá enska landsliðinu og
fyrir utan það mun Villa
líklega seint komast
í fremstu röð liða á
Englandi. Darren Bent er
einungis 28 ára og á nóg
eftir á tanknum. Hann þarf hins vegar að
finna sér nýja áskorun hjá liði með góðum
leikmönnum sem geta veitt honum góða
þjónustu.
Kenwyne Jones
Kenwyne Jones hafði það orð á sér að vera
einn öflugasti framherji ensku úrvals-
deildarinnar þegar hann lék með Sunder-
land. Eftir að hann fór til Stoke City, undir
stjórn hins óútreiknanlega Tonys Pulis,
hefur ferill þessa stóra og stæðilega fram-
herja legið niður á við.
Hann skoraði einung-
is eitt mark í deildinni
í fyrra og tækifærin
á þessari leiktíð hafa
verið af skornum
skammti. Hér er á ferðinni hörkuleikmaður
sem fjölmörg félög gætu nýtt sér.
Stewart Downing
Aðhlátursefni ensku úrvalsdeildarinnar.
Það er sorglegt en satt. Downing er góður
leikmaður en hann hefur engan veginn
fundið sig á Anfield. Svo virðist sem pressan
við að spila fyrir Liverpool hafi einfaldlega
verið of mikil og það virðist ekki aftur snúið.
Downing mun aldrei slá í
gegn hjá Liverpool. Hann
gæti hins vegar enn
komið að góðum notum
hjá öðrum félögum í ensku úrvalsdeildinni
og það yrði líklega best fyrir hann ef
martröðin á Anfield tæki enda sem allra,
allra fyrst.
Þ
að verður væntanlega nóg
um að vera í janúar þegar
opnað verður fyrir félaga
skipti í ensku úrvals
deildinni. Vefmiðillinn
Bleacher Report tók á dögunum
saman lista yfir 10 leikmenn deildar
innar sem hreinlega verða að finna
sér nýtt félag þegar glugginn opnar.
Marouane Chamakh
Þessi 28 ára framherji
hefur átt afar erfitt upp-
dráttar hjá Arsenal frá því
að hann kom til félagsins
frá Bordeaux árið 2010. Hjá
Bordeaux átti hann fast
sæti og vakti athygli margra stórliða
með frammistöðu sinni í Meistara-
deildinni veturinn 2009–2010. Chamakh
lék 44 leiki á sinni fyrstu leiktíð hjá
Arsenal, 19 leiki í fyrra og það sem af er
þessu tímabili hefur Chamakh ekki enn
komið við sögu. Það er borðleggjandi að
þessi annars ágæti leikmaður þurfi að
finna nýtt félag í janúar til að koma ferli
sínum á rétt skrið.
Andrei Arshavin
Arshavin er ennþá hjá Arsenal
þrátt fyrir allt sem á undan er
gengið. Tækifærum þessa 31 árs
Rússa hjá Arsenal hefur farið fækkandi og
hans frægðarsól hjá félaginu er sest fyrir
löngu. Hann var lánaður til skamms tíma til
Zenit í Pétursborg fyrr á árinu og benti flest
til þess að hann yrði seldur í sumar. Arshavin
sýndi ágæta takta á EM í sumar og sýndi
að hann er langt í frá búinn að vera sem
knattspyrnumaður. Hann þarf hins vegar að
finna sér nýtt félag og eflaust eru þau mörg
sem gætu nýtt sér þjónustu hans.