Fréttablaðið - 05.11.2014, Síða 8
5. nóvember 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 8
SÝRLAND, AP Vígasveitir Íslamska ríkisins
hafa pyntað og misþyrmt meira en 150
Kúrdabörnum sem handtekin voru fyrr
á árinu skammt frá landamærabænum
Kobani. Þau voru meðal annars barin
með rafmagnssnúrum og vatnsslöngum.
Þetta fullyrða alþjóðlegu mannrétt-
indasamtökin Human Rights Watch, sem
hafa rætt við nokkur þeirra barna sem
rænt var í vor þar sem þau voru á heim-
leið til Kobani eftir að hafa verið í skóla-
prófum í borginni Aleppo.
Samtökin segja um fimmtíu þeirra hafa
sloppið fljótlega úr haldi vígamannanna,
en hinum hafi verið sleppt smám saman.
Þau síðustu fengu frelsið í lok október.
„Allt frá byrjun uppreisnarinnar í Sýr-
landi hafa börn mátt þola þann hrylling
sem fylgir handtöku og pyntingum, fyrst
af hálfu stjórnar Assads og nú af hálfu
Íslamska ríkisins,“ segir Fred Abrahams,
talsmaður Human Rights Watch. „Þessar
sannanir um pyntingar og misþyrming-
ar af hálfu Íslamska ríkisins sýna okkur
hvers vegna enginn ætti að styðja glæpa-
verk þeirra.“
Undanfarið ár hafa vígamennirnir
handtekið hundruð Kúrda í Sýrlandi og
jafnframt lagt kapp á að ná á sitt vald
Kúrdasvæðunum í norðaustanverðum
hluta Sýrlands. Á þriðjudaginn var svo
skýrt frá því að tugir þessara Kúrda
hafi verið látnir lausir, en engin skýring
fylgdi hvort það hafi verið liður í ein-
hverju samkomulagi við Kúrda.
Hörð átök geisa enn í Kobani, þar sem
vígasveitir íslamista hafa mætt harðri
mótspyrnu frá íbúum bæjarins þótt flest-
ir hafi þeir reyndar flúið átökin. Þeir sem
eftir eru tilheyra flestir þjóðvarnarsveit-
um sýrlenskra Kúrda, sem ganga undir
skammstöfuninni YPG og hafa jafnan
snúist til varnar þegar átökin í landinu
hafa borist inn á Kúrdasvæðin.
Íbúarnir hafa nýlega fengið liðsinni frá
Peshmarga-hersveitum íraskra Kúrda,
sem tyrknesk stjórnvöld hafa leyft að
fara yfir landamærin til Sýrlands.
Málið er umdeilt í Tyrklandi og hefur
yfirstjórn hersins harðlega mótmælt
þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að
leyfa vopnuðum Kúrdum að fara um tyrk-
neskt svæði á leið sinni frá Írak til Sýr-
lands. Tyrkneski herinn hefur áratugum
saman varið kröftum sínum að stórum
hluta í baráttu gegn sjálfstæðissinnuðum
Kúrdum í suðaustanverðu Tyrklandi.
gudsteinn@frettabladid.is
Vígasveitir pynta börn
Mannréttindasamtök segja fjölda barna hafa orðið fyrir pyntingum og misþyrmingum á Kúrdasvæðunum í
norðanverðu Sýrlandi, fyrst af hálfu hersveita Assadstjórnarinnar og síðan af hálfu vígasveita Íslamska ríkisins.
ÁRÁSIR Á KOBANI
Kúrdabærinn Kob-
ani í Sýrlandi, rétt
sunnan landamæra
Tyrklands, hefur
verið í hers hönd-
um vikum saman.
Fámennur hópur
heimamanna hefur
varist árásum víga-
sveitanna.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Í FLÓTTAMANNABÚÐUM Börn í flóttamannabúðum Kúrda í Tyrk-
landi, rétt handan landamæranna við Kobani. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FRAMKVÆMDIR Eimskipafélag
Íslands hefur ákveðið að ráðast
í byggingu á 10.000 tonna frysti-
geymslu á athafnasvæði sínu í
Hafnarfirði.
Fram kemur í tilkynningu að
ákvörðunin sé tekin í ljósi þess að
veruleg aukning hafi orðið í veið-
um og vinnslu á uppsjávarfiski.
Framkvæmdir eiga að hefjastfyrir
áramót og fyrsti áfangi tilbúinn til
notkunar sumarið 2015. - glp
Eimskip í framkvæmdir:
10.000 tonna
frystigeymsla
FRAMKVÆMDIR Athafnasvæði Eim-
skips við Hafnarfjarðarhöfn. MYND/EIMSKIP
VIÐSKIPTI Kærunefnd útboðsmála
hefur ákvarðað að samningsgerð
Sorpu bs. við Aikan A/S vegna
byggingar gas- og jarðgerðar-
stöðvar í Álfsnesi verði stöðvuð
tímabundið.
Íslenska gámafélagið (ÍG) og
dótturfyrirtæki þess, Metanorka
ehf., kærðu samningsgerðina til
nefndarinnar þann 9. október síð-
astliðinn með þeim rökum að hún
stangist á við lög um opinber inn-
kaup, og bjóða hefði átt verkið út
til að gæta að miklum einka- og
almannahagsmunum. Sorpa seg-
ist vera í fullum rétti og hafa hald-
ið því fram að tæknilausn Aikan
sé sú eina sem uppfylli markmið
byggðasamlagsins um meðhöndlun
lífræns heimilissorps, en tæknin
gerir sorpflokkun óþarfa. Þessu
hafa ÍG og Metanorka hafnað
alfarið.
Kærunefnd útboðsmála virðist
fallast á að Sorpa hafi ekki sýnt
fram á með fullnægjandi hætti að
aðrar lausnir séu ekki í boði, sem
var kjarni kærunnar.
Í ákvörðun kærunefndarinnar
segir jafnframt að sá hluti samn-
ings sem gerður er án útboðs skuli
ekki vera hærri en jafngildi einn-
ar milljónar evra, eða rúmlega 150
milljónir íslenskra króna.
Þrátt fyrir endurteknar beiðnir
Fréttablaðsins um upplýsingar um
samningsgerðina, og hversu stórt
hlutfall tæknilausnin er af um
þriggja milljarða króna heildar-
kostnaði við framkvæmdina, hafa
forsvarsmenn Sorpu kosið að halda
þeim upplýsingum fyrir sig.
„Af þeim gögnum sem liggja
fyrir í máli þessu verður ekki
annað ráðið en að verðgildi þeirra
samninga sem standi til að gera
við Aikan A/S um fyrirhugað verk
kunni að vera umfram framan-
greinda fjárhæð,“ segir í ákvörð-
un kærunefndarinnar. - shá
Kærunefnd dregur línu við 150 milljónir króna:
Samningsgerð Sorpu
við Aikan stöðvuð
Í ÁLFSNESI Sorpa ætlar sér að snar minnka sorpurðun með tilkomu nýrrar gas- og
jarðgerðarstöðvar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
grunnt á
því góða?
Dekkin eru einn mikilvægasti öryggisþáttur bílanna okkar, sér í lagi í
vetrarakstri. Frá 1. nóvember gerir löggjafinn auknar kröfur um
mynstursdýpt þeirra. Eftir það þurfa hjólbarðar bifreiða að hafa að
lágmarki 3,0 mm mynstursdýpt yfir vetrartímann.
Markmið breytinganna er að auka öryggi þitt og þinna í umferðinni.
Þetta snýst nefnilega um svo miklu meira en bílinn.
Opið kl. 8 – 17 virka dagawww.adal.is
Til að einfalda þér að ganga úr skugga um að dekkin þín uppfylli
þessar nýju kröfur bjóðum við þér að nálgast þar til gerða lyklakippu
á næstu skoðunarstöð okkar án endurgjalds á meðan birgðir endast.
Við tökum vel á móti þér.