Fréttablaðið - 05.11.2014, Side 10
5. nóvember 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 10
MEXÍKÓ, AP Fyrrverandi bæjarstjóri
í Iguala í Mexíkó hefur verið hand-
tekinn ásamt eiginkonu sinni. Bæj-
arstjórinn er sakaður um að hafa
skipað mönnum sínum að gera árás
á hóp háskólanema í lok september.
Sex námsmenn létu lífið í árás-
inni og 43 virðast hafa verið numd-
ir á brott. Málið hefur varpað nýju
ljósi á náin tengsl ráðamanna sums
staðar í Mexíkó við fíkniefnagengi,
sem vaða þar uppi.
Bæjarstjórahjónin fyrrverandi,
þau Jose Luis Abarca og Maria de
los Angeles Pineda, sýndu engan
mótþróa þegar þau voru handtekin
í Mexíkóborg snemma þriðjudags.
Talsmaður mexíkósku sambands-
lögreglunnar staðfesti handtökuna
á Twitter-síðu sinni í gær.
Enn er allt óljóst um afdrif
námsmannanna 43 þrátt fyrir að
lögregla hafi lagt töluvert kapp á
að upplýsa málið. Íbúar í Iguala og
víðar í Guerrero-héraði hafa kraf-
ist svara og staðið fyrir mótmæl-
um nánast daglega.
Það voru lögreglumenn sem réð-
ust á námsmenn við lítinn kenn-
araháskóla í Ayotzinapa, sem
er skammt frá Iguala, þann 26.
september síðastliðinn. Þessi til-
tekni hópur lögreglumanna hefur
starfað náið með glæpamönnum
úr fíkniefnagenginu Guerreros
Unidos.
Stjórnvöld í Mexíkó segja nú
að skipun um árásina á skólann
hafi komið beint frá bæjarstjóran-
um. Hann hafi staðið í þeirri trú
að námsmennirnir hafi ætlað sér
að trufla ræðu bæjarstjórafrúar-
innar síðar um daginn, en hún er
jafnframt sögð hafa starfað með
glæpagenginu. Leitin að náms-
mönnunum hefur meðal annars
borist upp í hæðirnar fyrir ofan
Iguala, þar sem um þrjátíu lík hafa
fundist í fjöldagröfum. Enn hefur
þó ekki fengist staðfest að neitt af
þessum líkum sé af námsmönn-
unum.
Þann 19. október tók stjórnin
í Mexíkóborg ákvörðun um að
senda sambandslögreglumenn til
Iguala og taka þar við löggæslu.
Lögreglumönnum bæjarins hefur
verið vikið frá störfum.
gudsteinn@frettabladid.is
Bæjarstjórahjónin
í Iguala handtekin
Bæjarstjórinn sakaður um að hafa í lok september fyrirskipað árás á háskólanema
sem hafi ætlað að trufla ræðu bæjarstjórafrúarinnar. Málið hefur varpað nýju
ljósi á tengsl mexíkóskra ráðamanna við uppivöðslusöm fíkniefnagengi.
REIÐI Íbúar í Chilpancingo, höfuðstað Guerrero-héraðs, kasta grjóti í hús héraðsstjórans. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BÆJARSTJÓRA HJÓNIN FYRRVERANDI
Jose Luis Abarca ásamt eiginkonu sinni
Mariu de los Angeles Pineda Villa.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
NISSAN QASHQAI SE
Nýskr. 06/13, ekinn 36 þús. km.
dísil, beinskiptur.
VERÐ kr. 4.130 þús.
Rnr. 142545.
HONDA ACCORD
Nýskr. 07/13, ekinn 34 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 4.490 þús.
Rnr. 282149.
Kletthálsi 11 -110 Reykjavík
Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is
www.bilaland.is
www.facebook.com/bilaland.is
KIA CEED EX
Nýskr. 10/12, ekinn 47 þús. km.
dísil, beinskiptur.
Rnr. 142539.
TOYOTA YARIS HYBRID
Nýskr. 10/12, ekinn 28 þús km.
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 2.890 þús.
Rnr. 282157.
NISSAN NOTE VISIA
Nýskr. 05/13, ekinn 31 þús km.
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 2.570 þús.
Rnr. 141822.
DACIA DUSTER 4x4
Nýskr. 03/13, ekinn 75 þús. km.
dísil, beinskiptur.
VERÐ kr. 2.760 þús.
Rnr. 142533.
RENAULT MEGANE SP. TOURER
Nýskr. 06/13, ekinn 55 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 2.990 þús.
Rnr. 142531.
Frábært verð!
2.860 þús.
GOTT ÚRVAL
NOTAÐRA BÍLA
Skoðaðu úrvalið á
bilaland.is
ALLT AÐ 80% LÁNAMÖGULEIKAR
TÖKUM NOTAÐAN
UPPÍ NOTAÐAN!
GERÐU FRÁBÆR KAUP!
Takið vel á móti
fermingarbörnunum
Þau safna fyrir
Hjálparstarf
kirkjunnar
PIPA
R
\
TB
W
A
SÍA
122
90
0